Vikan

Útgáva

Vikan - 06.09.1973, Síða 42

Vikan - 06.09.1973, Síða 42
— Slefaði! öskraði pabbi,. ég slefaði ekki neitt! Ef ég gæti skil- ið hvaðan þú færð alla þessa vit- leysu? Já, góði, ég sá nú nóg til... Hvað hafði hún séð? Ég sá iíka myndina með Brigitte Bardot og ég sá ekki að pabbi slefaði. .. — Nú hef ég þrátt fyrir allt hugsað mér aö leika þessa plötu eins mikið og ég vil, lýsti mamma yfir. Og ef það skyldi ekki henta, þér, geturðu setzt niöur i kjallara meö tappa i eyrunum! Ég flissaði. Pabbi sitjandi á koll niðri i kjallara með tappa i eyrun- um, meðan mamma gaf sig Viktor Klimeko á vald á sófanum i dagstofunni! — Nei, að mér heilum og lif- andi! Mildi, geðprúði pabbi haföi á/ augabragði breytzt i grenjandi ljón. Stóll valt og Viktor þagnaði.' Pabbi hafði greinilega tekið hann af. En mamma setti hann strax á aftur. Þetta fer illa með plötuna, hugsaði ég, og svo hugsaði ég um verð plötunnar. Þau gátu vel fariö betur með svo dýra breiðskifu. Platan var komin af staö á ný og flauelið rann eins og svart sýróp úr hálsi Viktors. — Eigum við að halda svona áfram i alla nótt? spurði pabbi reiðpr. — Þú getur bara farið og lagt þig, sagði mamma jafn reið. Þetta var svei mér ánægjulegur afmælisdagur! Nú kennir hún i brjósti um sjálfa sig, það heyrði ég. Og ég kenndi i brjósti um hana. Gat hún ekki fengið aö hafa Viktor sinn i friði? Bara eina einustu nótt? Þó að ég kenni auðvitað i brjósti um pabba líka. Það gat ekki verið gaman að vera farinn að nálgast fertugt og þurfa að vfkká buxurn- ar tvisvar á ári og horfa á greið- una fulla af hári á hverjum morgni og vita, að maöur er ekki neinn Viktor Klimenko. Ég meina, karlmenn finna líka til. Þeir draga inn magann og lyfta þungum hlutum til að sýna hversu sterkir þeir eru, og blikka sætar stelpur. Ég vorkenni þeim nákvæmlega jafn mikið og mömmu, þegar hún ber krem undir augun og dæsir og segir að meira sé ekki hægt að krefjast eftir þrjú börn . . . Nei, eitthvað varð að gerast. Fullorðið fólk er svo ferlega barnalegt, eins og pabbi og manna eru nú, maður varð að gera eitthvað. Ég stóð upp og gekk niður. — Ertu vakandi? sagði mamma. — Af hverju sefuröu ekki? spurði pabbi. — Það er ekki hægt að sofa, þegar þið hagið ykkur svona, sagði ég og gekk yfir að plötuspil- aranum. Viktor þagði einmitt þá. Ég tók plötuna, sneri mér aö for- eldrum minum og braut hana á hnénu. Hún var seig, en að lok- um var Viktor i tveim bitum. — Svona sagði ég. Þetta var gott á hann. Hann var að eyði- leggja hjónaband ykkar, tókuð þið ekki eftir þvi? Mamma og pabbi gláptu bara á mig. — Næst færöu Ragga Bjarna, mamma, sagði ég. Og þú færð Ellý Vilhjálms, pabbi. Þá fær maöur kannski frið i húsinu1 Það var dauðaþögn i stofunni. Mamma einblindi á brot sinnar seinfundnu hamingju. Pabbi ein- blindi á mömmu. Svo brast hann i hlátur. Hann hló svo mikið aö hann datt niður i djúpan stól, og Hubbe kom þjótandi og flaug upp á hné honum og sleikti andlit hans. Þá byrjaði mamma lika að hlæja, og allt ieinu varö hún mjög ungleg I útliti og augu hennar voru glöð og glettin. — Tibi est victoria, barnið mitt, sagöi hún og faömaöi mig. — Hvað þýðir það? Er það rússneska? — Nei, þaö er latina, og þaö þýöir, að þú hefur sigraö. Gáfaða barn, farðu nú og leggöu þig, svo að foreldrar þinir geti fengiö sér bjór og smurt brauð. Hið Ijúfa lif framhald af bls 19. á braut, -sem i fyrstu vekur spennu, en svæfir smám saman skilningarvitin. Sérstaklega er þetta auðvelt I Róm. Talitha var vinsæl I veizlum. Hún var glað- vær, djörf og veigraði sér ekki viö að klæðast gagnsæjum flikum á meðan heimurinn stóö enn á öndinni af hneykslun yfir stuttu pilsunum. Samfélag auðjöfranna i Róm er sjúkt samfélag. „Litill hluti fólksins hérna neytir eiturlyfja,” var mér sagt. „Kókains, heróins eða annarra lyfja. Astandiö hér er þó enn verra en I London, en innan miklu þrengri hrings. Eiturlyfjaneytenu„r i Róm eru vellauðugir, þeir eru reiöubúnir til að greiða offjár fyrir ánægjuna. Þvi dýrari sem hún er, þeim mun meira bragö er að henni. Þess vegna sjá dreifendurnir þeim fyrir hæfilega miklu magni. Otsendarar vitis hafa þrælatök á börnum Paradísar.” Þessi orð sagði erlendur frétta- maöur þegar hann lýsti heimin- um, sem Talitha og Paul lifðu i og sem ég kynntist litillega á meðan á dvöl minni i Róm stóð. Villtar vwizlur hinna ungu. Ég neýtti ekki eiturlyfja og ég fullyrði ekki, að margir hinna yngri auðmanna i Róm geri það. En þetta var umhverfið, sem Talitha og Paul hrærðust i. Og það hafði sin áhrif. Sonur þeirra fæddist 1969. Hvaða nafn gáfu þau honum? Tara Gabriel Grammófónn Getty. „Grammófónninn er uppáhalds hljóðfæri mannsins mins”, sagði Talitha við blaðamenn. Hún hætti algjörlega að gæta hófs. Hún bar barnið um i poka, sem hún batt á bakiö á sér. Hún klæddist eins og Fransiskusar- munkur. Á daginn sat hún hjá hippunum, á nóttunni daðraði hún i villtum veizlum hjá yngri auð- mönnum Rómaborgar. Ég átti tal við myndarlegan eldri mann, sem enn var mikið gefinn fyrir konur. Hann sagðist hafa þekkt Talithu. „Hún umgekkst hippana mikið. Hún kunni þvi vel að umgangast yfir- stéttarfólk, en var of lffsglöð til þess aö einangra sig með þvi”. Að þvi kom, að Talitha geröi til- raun til þess aö draga sig út úr hringiðunni. í oVtóber 1970 byggðu Talitha og Paul fjögurra hæða hús i Chelsea i London. „Við ætlum ekki aö hætta að búa i Róm,” sagöi Talitha, „þvi að þar vinnur Paul, en ég sakna London svö' mikið, að við höfum ákveðið að eiga hús hérna lika.” En ef nýja húsið átti að stöðva flóðbylgjuna, mistókst sú fyrir- ætlun. A jólakvöld áriö 1970 var Talitha aftur komin til Rómar og hélt villtustu veizlu sina til þessa. Hún leigöisvinastiu á .bóndagarði i hæðunum utan við Róm og bauð vinuni-. 'inum að halda jólin hátið- leg meö þvi að drekka kampavln úr sturtum, sem ætlaðar voru til að þrifa svinin. Þar var lika á boðstólum kindamjólkurbað handa þeim sem þurftu aö þrifa likamann auk sálarinnar. „Veslings litla rika stúlkan” var týnd aftur, og leitaði enn hamingjunnar á veginum, sem liggur til glötunar. Endalokin voru á næstu grös- um. 1 febrúar 1971 fór Talitha frá Róm og tók son sinn og barnfóstru hans með sér. Hún fór til hússins i Chelsea. Paul varð eftir I Róm. Ekkert var tilkynnt opinber- lega um þetta og þess var ekki einu sinni getið I slúöurdálkum blaðanna. En þremur mánuðum siðar, i mai 1971 sótti Paul um skilnaö. 1. júli 1971 rauf Talitha skyndi- lega þögnina og tilkynnti i London, að hún byggi ekki lengur með Paul. Hann vildi heldur búa i Róm, en hún kynni betur við sig I London. Skilnaðurinn ætti sér ein- göngu landafræðilegar orsakir. En henni gazt ekki að skilnaði. Hún var skyldurækin gagnvart syni sínum. Hún vildi sættast við mann sinn 'og fór til Rómar og geröi örvæntingarfulla tilraun til þess aö bjarga hjónabandinu. Hún skildi barn sitt eftir og kom ein til Rómar laugardaginn 10. júli 1971. Hún og Paul eyddu nokkrum klukkustundum saman. Seinna var haft eftir Paul I brezk- um blöðum, að hann heföi verið andvigur sættum og þau heföu rifizt. Þetta vissi amma Talithu. Hún hefur sagt Hank van der Meyden, að Talitha hafi hringt i hana þetta laugardagskvöld til að segja henni, að þau Paul hefðu ekki komið sér saman og hún ætlaði aftur til London á mánudeginum. Hvernig eyddi hún siðustu klukkustundunum þennan dag og þeim fyrstu daginn eftir? „Enginn vina þeirra er I Róm i júli og ágúst,” var mér sagt. „Þar er allt of heitt. Allir fara til Kapri eöa Sardiniu eða eitthvað annað. Hún hefur ekki getaö farið til margra vina sinna” 1 brezkum blööum hefur verið haft eftir Paul, að Talitha hafi farið i rúmiö skömmu eftir mið- 42 VIKAN 36. TBL.

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.