Vikan

Issue

Vikan - 20.09.1973, Page 25

Vikan - 20.09.1973, Page 25
* ~ V * I eim til Reykvíkinga Spjallað við Þóru Þórðardóttur, sem er orðin 74 ára og keypti sér nýjan Toyota-bil fyrir skömmu. dreif hún sig til aö taka ökupróf. — Þaö er náttúrlega erfiöara að læra núna, heldur en þegar maöur var ungur. Þá var umferö- in svo litil. Þó er hún skipulegri núna, ef almennilega er ekiö og vegirnir eru náttúrlega miklu betri. Þá var eini vegurinn, sem eitthvað var hægt aö hreyfa sig á, smáspotti i Sogamýrinni. Ég ók dýralækninum stundum upp aö Korpúlfsstööum og vegurinn þangaö var allur einn kattargörn, nema þessi smáspotti i Sogamýr- inni. — Var þá ekki þungfært i snjónum um veturinn? — Þaö var töluvert mikiö um snjóa þennan vetur og færöin var stundum slæm, en viö höföum keöjur á bilnum og þeir skriöu alltaf. Billinn, sem ég haföi, var af Opelgerð og var ágætis farar- tæki. En ég er ósköp fegin þvi aö þurfa ekki aö vera að setja á keðj- ur núna. Þvi myndi ég ekki nenna. Ég lenti aldrei i vandræö- um á bilnum minum i vetur. Hann skreið oft framhjá öðrum, sem stóöu fastir. — Hvernig bil áttu? — Ég keypti mér Toyota Corolla Sprintex. Kunningjar minir voru aö segja mér að kaupa notaöan bil, en ég vil ekki hvað sem er. Ég vildi fá almennilegan bil úr þvi að ég var aö fá mér hann á annað borö. Ég sé ekki eft- ir þvi aö kaupa Toyota. Hann hef- ur reynzt mér ákaflega vel og aldrei bilað nokkur skapaöur hlutur i honum. Þeir hafa lika lit- iö eftir honum fyrir mig á' verk- stæöinu. Svipurinn á þeim var hálfskritinn, þegar ég kom þang- aö á honum fyrst. Þeim fannst ég visl svolitið gömul til aö vera á svona bil. Þeir hafa sagt mér, aö til þeirra komi menn, sem hafi langað til aö eignast bilinn minn, en ég er ekkert aö hugsa um aö selja hann. Hann vekur svolitla eftirtekt sumra, þvi aö hann er litið eitt frábrugöinn öörum Toyotabifreiöum, enda var hann svolitið dýrari. Það kom til min maður i vetur og vildi endilega fá mig til að selja sér hann og var aö benda mér á hina og aöra bila, sem hentuöu mér betur. Ég sagði nú litiö viö hann, en hugsaöi meö mér, hvaöa hornhagldadruslur það væru og hann gæti sjálfur átt þær. — Hvaö var vinnutiminn lang- ur i mjólkurakstrinum? — Þaö var svolitið misjafnt. Mjólkin kom ofan aö um sjöleytið og þá byrjuöum viö aö aka henni út. Ég þurfti að hlaða bflinn tvisvar og mig minnir að ég hafi veriö búin að fara tvær ferðir um klukkan ellefu. Eftir hádegiö þurfti ég að fara og rukka og safna sa man flöskum, þvi að þær komu aldrei allar til skila á morgnana. En mér þótti þetta skemmtileg vinna. Mér hefur alltaf þótt gaman aö aka bfl og mig langaði mikiö til aö læra aö fljúga. Þvi haföi ég ekki ráö á, þegar ég var yngri, þó aö ég láti allt eftir mér núna, þegar ég er komin á áttræðisaldur. Mér þykir óskaplega gaman aö feröast meö flugvélum og ég er ékki búin aö gefa upp alla von um aö fá aö taka i flugvél. — En hefuröu nokkurn tlma stýrt skipi? — Ég er ek'ki eins hrifin af þvi að vera á vatni. Ég hef ferðast á skipum, en mér likar það ekki eins vel og aö feröast á landi eöa i lofti. Þóra hefur viöa farið, bæði hér heima og erlendis. Henni þykir gaman aö sækja aörar þjóðir heim, en finnst það þó ekki jafn- ast á viö feröalög hér heima. Hún var búin aö fara um allt land áöur en hún eignaöist bil. Einusinni fór hún riðandi austur i öræfasveit. — Viö fengum hesta i Fljóts- hverfinu og riðum yfir vötnin. Fljótshverfingar fylgdu okkur austur á miðjan sand og þar tóku öræfingar á móti okkur. Hestarn- ir voru vanir vötnunum og vatniö var hvergi mjög djúpt á þeim. En mest dáöist ég aö þvi, hve vel þeir fótuöu sig á jöklinum, en viö fór- um yfir Jökulsá á Jökli. Þaö var i eina skiptiö i feröinni, sem ég fann til þreytu. Mér fannst áin svo hrikaleg, þar sem hún kom undan jöklinum. En mér finnst yndislegt að feröast á hestum. Fyrst þegar ég fór noröur Sprengisand og viö fórum yfir Köldukvisl, lá viö að ég óskaöi þess aö vera komin á hestbak. — Hefuröu feröast svolitiö á bilnum þinum? — Þaö er nú ekki mikið. I fyrrasumar fór ég til Vopnafjarö- ar og þaö er eina langa feröalag- iö, sem ég hef farið i á honum. Svo hef ég farið þó nokkuö hérna i kringum bæinn, en ég treysti mér varla til þess aö fara I langar feröir á honum. En billinn minn er afbragö. Aö stjórna honum er engu likara en aö vera á góöum hesti. Þaö þarf ekki nema rétt aö snerta bensingjöfina til að hann geysist áfram. Þóra lét ekki sitja viö oröin tóm, heldur bauö mér i ökuferö. Hún tók öruggum og styrkum höndum um stjórntæki bifreiöar- innar og ók án þess aö setja upp gleraugu. Henni fataöist hvergi i akstrinum og ég gleymdi þvl fljótt, aö ég sat I bil, sem sjötiu og fjögra ára gömul kona ók. 38. TBL. VIKAN 25

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.