Vikan

Issue

Vikan - 25.10.1973, Page 3

Vikan - 25.10.1973, Page 3
SKOPSKYGGN A ALLA NEMA SJÁLFAN SIG „Hann vildi hvergi vilja eiga heima nema i fjölmenni. Þaðan vill hann svo koma út i dreifbýli og fásinni með glaðhlakkalegu fasi og viömóti gestsins. Hann þykir vinum sinum traustur og veit- ull, en andstæðingum harðleikinn og fjandmönnum grimmur. Hann bregður sér i margan ham og er skopskyggn á menn og málefni nema sjálfan sig. bá hefðarpersónu sér hann aðeins i ljósi alvörunnar”. Sjá palladóm Lúpusar um Steingrim Hermannsson alþingismann á bls 10. ÞÚ VERÐUR FALLEGRI EFTIR TUTTUGU ÁR „Ég var feit, ljóshærð stúlka. Þegar ég var sautján ára, leit Korda á myndir af mér og sagði að ég hefði andlit, sem yrði fegurra eftir tuttugu ár. Tuttugu ár! Hvern langar til að lifa eftir tuttugu ár, þegar hann er sautján ára? En hann hefur reynzt sannspár. Núna hefur andlit mitt einmitt fengið ákveðna drætti. Það sést, að undir holdinu eru bein, ,og mér fellur það betur þannig.” Þetta er brot úr 'grein um LilliPalmer þar sem hún segir frá sjálfri sér og iifsviðhorfum sinum. Sjá bls. 24, JÖKULL i BÁÐUM LEIKHÚSUNUM Jökull Jakobsson er tvimælalaust i fremstu röð leikritaskálda hér á landi um þessar mundir. Til marks um það má nefna, að á þessu leikári bjóöa bæði leikhús höfuðstaðarins upp á verk eftir hann. t Iðnó verður „Kertalog” sýnt einhvern tima undir vorið, en það leikrit hlaut verðlaun félagsins á 75 ára afmæli þess. Og „Klukkustrengir” koma á svið bjóðleikhússins innan skamms, en þá samdi Jökull fyrir Leikfélag Akureyrar i fyrravetur. Við birtum yfirlitsgrein um leikritun Jökuls Jakobssonar frá upphafi á bls. 20. KÆRI LESANDI: ,,Þar er lífið einfalt og hefur haldizt óbreytt öldum saman. Stórfjölskyldan er enn við lýði, — allar kynslóðir búa saman undir einu þaki. Það er glæpur að slá til barns4 Þeir smáu hafa lika ríka sjálfsvitund. Hjii Hindúum ræður þjóðfélagsstétt sú, er barn fæðist inn í, hvað úr þyí verður. Opin- berlega hefur stétfamunurinn að vísu verið afnuminn, en hann ræður engu að síður mestu um stöðu og starf fólksins. Það er fyrst við dauðann, sem enginn stéttamunur er. Konungur og lægst settu þegnar þeirra eru brenndir á sama bakka hins heilaga fljóts Bagmati. Brosandi leggur faðirson sinn á bálköstinn. „Lífið er ekki svo mikilvægt", segir hann og stráir öskunni í fljótið. Börn dansa í kringum hann. Undir hakakrossi, sem er sóltákn búddhatrúarmanna, kenna tíbezkir munkar búddísk fræði. Fyrir framan þá sitja hipp- ar hvarvetna úr heiminum og leita „eilífs friðar". Þessi svipmynd er úr fróðlegri grein um Nepal, litið sjálfstætt ríki á Indlandsskaga, sem telur um 8 milljónir íbúa. Nepal er orðið býsna þekkt, en þangað hefur ferðamannastraumur farið vaxandi undanfarin ár. Greinin er á bls. 6. VIKAN Útgefandi: Hilmirhf. Ritstjóri: Gylfi Gröndal. Blaðamenn: Matt- hildur Edwald, Kristín Halldórsdóttir og Trausti Ólafsson. Útlitsteikning. Þorbergur Kristinsson. Auglýsingastjórar: Sigríður Þorvaldsdóttir og Sigríður ólafsdóttir. Ritstjórn, auglýsingar, afgreiðsla og dreifing, Síðu- múla 12. Símar: 35320 35323. Póst hólf 533. Verð í lausasölu kr. 100.00. Áskriftarverðer 1000.00 kr. fyrir 13 tölublöð ársf jórðungslega eða 1950.00 kr. fyrir26 tölublöð hálfsárslega. Áskriftarverðið greiðist fyrirfram. Gjalddag- ar eru: nóvember, febrúar, mai og ágúst. Vikan BLS. GREINAR 6 Nepal, grein um landið, sem fimm fjölskyldur eiga 8 Dekurbarn fjölskyldu og flokks. Lúpus skrifar palladóm um Stein- grím Hermannsson alþingismann 20 Frá Pókók til Klukkustrengja, grein um leikrit Jökuls Jakobs- sonar í tilefni af sýningu Þjóðleik- hússins á nýjasta verki hans. 24 Endalaus fegurð, leikkonan Lilli Palmer, sem ásamt Merlene Dietrich og Ingrid Bergman hefur staðið lengst á frægðartindinum, segir frá sjálfri sér og lífsvið- horfum sínum 30 Siðlaust seladráp, örstutt grein með litmyndum SÖGUR: 12 Þegar neyðin er stærst..., smásaga eftir Unu Þ. Árnadóttur með teikningu eftir Bjarna Jónsson 16 Götustrákurinn, framhaldssaga, 4. hluti. 32 Hver er Laurel? framhaldssaga, 5. hluti Ý MISLEGT: 28 Heimatilbúinn sófi, þáttur í umsjá Evu Vilhelmsd. 26 3M — músik með meiru 14 Úr dagbók læknis 15 Síðan síðast 46 Svolítið um sjónvarp FORSiÐAN Forsíðuna prýðir að þessu sinni hljómsveitin Júdas, Maggi Kjartans og félagar. Þeir dvöldu í London í sumar við upptöku á nýrri hljóm- plötu. Myndin er tekin klukkan 4 að nóttu niður við Thames-f Ijót, við einn hinna gömlu luktarstaura, sem lýsa gangvegi meðfram ánni. Myndina tók Edvard Sverrisson, en hann segir nánar frá þessari upptöku i popp- þættinum í dag. 43. TBL. VIKAN 3

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.