Vikan

Ataaseq assigiiaat ilaat

Vikan - 25.10.1973, Qupperneq 21

Vikan - 25.10.1973, Qupperneq 21
hans ílytja ekki ncinn boðskap i þeim skilningi, að þau séu gagnrýnin á neina eina stefnu eða kerfi framar öðrum, og þeim er ekki ætlað að svara neinum spurningum i eitt skipti fyrir öll. Jökull leiðir persónur sinar oftast fram á sviðið úr gráum hversdagsleikanum. Litið er um, að stórviðburðir gerist i leikritum hans. Á sviðinu getur áhorfandinn virt þessar persónur og lif þeirra fyrir sér. Kannski eru þetta manneskjur. sem við könnumst vel við. Þær gætu buið i næsta húsi, jafnvel á hæðinni fyrir neðan, en við veigrum okkur við að viðurkenna, að þær beri nokkurn svip af okkur sjálfum. Okkur gengur mæta vel að skilja þetta fólk á sviðinu, og þó skiljum við það kannski alls ekki. Við kennum einhverrar óskýrðrar angurværðar og finnum á vissan hátt til með Signýju, Jialidóri og Eiriki, já og jafnvel henni Sigurlaugu á fjórtán, sem er búin að vaka yfir syni sinum i nitján ár og biða eftir þvi að hann fái lausnina. Þó að við hlæjum að Þuriði, verður hún okkur ósjálfrátt nákomin, og annað fólk á greiðari aðgang að lijarta okkar en áður. 1 ,,Hart i bak” og ..Sjóleiðin til Bagdad” sýndi sig áþreifanlega, hve vel Jökli lætur að skapa stemningar og segja sögu i ein- földum orðum og æði leikpersóna sinna. Kannski kemur þetta enn betur fram i næsta leikriti hans. ..Sumarið 37”, sem Leikfélagið frumsýndi i byrjun árs 1968. ,, Að segja það án þess að segja það”, segir athafnamaðurinn i viður- kenningartóni um likræðu prestsins yfir eiginkonu sinni. Þessi orð gætu eins verið yfirskrift „Sumarsins 37”. Orð og setningar á mörkum ljóðsins veita okkur innsýn i lif persónanna, einnig utan sviðs- ins. „Sumarið 37” er að þvi leyti ólikt fyrri verkum Jökuls, að nú gerist leikurinn i „finu” húsi. Jafnvel þar finnast draumar, sem aldrei geta ræst, nema þá það hafi gerst sumarið '37 og sá daumur verði aldrei samur ov áður. Sjálfsagt breytir engu að taka kaþólska trú, og kannski er „ekkert til við þessu nema wiský”. A listahátið 1972 sýndi Leikfélag Reykjavikur enn nýtt leikrit Jökuls. „Dóminó” ber glögg merki höfundar sins, og þar kemur gjörla fram, hve vel Jökull er i takt við timann. Plastframleiðandinn og eiginkona hans eiga sér tvimælalaust margar hliðstæður á íslandi, og hver kannast ekki við dótturina, táninginn, sem drepur timann með hassi og sýru og leitar þar þeirrar lifsfullnægju, sem hún finnur ekki annars staðar. Og nú á þessu leikári bjóða bæði leikhús höfuðstaðarins upp á sýningar á leikritum eftir Jökul. t Iðnó verður „Kertalog” sýnt undir vorið, og „Klukkustrengir” koma á svið Þjóðleikhússins innan skamms. Jökull Jakobsson skrifaði „Klukku- strengi” fyrir Leikfélag Akureyrar i fyrravetur.. Leikritið gerist i litlu sam- félagi, þar sem hver einstaklingur á erfitt með að komast úr þeim stakki, sem honum hefur verið sniðinn. Orgelstill- arinn kemur til bæjarins, og kven- peningurinn þar leitast við að finna i þessum manni þá drætti, sem hverja og eina vantar i lifsmynd sina.",,Mér datt aldrei i hug ég' ætti eítir að upplifa það i okkar litla bæ”, segir Jórunn, sem er i stjórn kvenfélagsins. Þetta er i fyrsta skipti, sem Þjóðleik- húsið sýnir leikrit eftir Jökul, og verður gaman að sjá hvernig til tekst, Brynja Benediktsdóttir leikstýrir verkinu og setur upp þá klukkustrengi, sem Jökull Jakobsson og leikkraftar Þjóðleikhússins leggja henni til „Það gerðist ekkert. Ég get alveg svarið það”. Valgcrður Dan og Guðrún Ásmundsdóttir í „Sjóleiðinni til Bagdad.” Guðrún Stephensen og Jón Laxdal i Dóminó. „Signý, við komum bæði. Burt héðan.” Guðrún Ásmundsdóttir og Helgi Skúlason i „Sjóleiðinni til Bagdad.” 43. TBL. VIKAN 21

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.