Vikan

Issue

Vikan - 25.10.1973, Page 27

Vikan - 25.10.1973, Page 27
er hanabjalkastigi upp á efra loftiö eða ekki, bert steingólf eða dúklagt, málað eða ómálað, skiptir ekki máli. Það varð fljót- lega ljtfM, þegar liða tók á þessar tvær vikur, sem dvalið var við upptökuna i London Það var júlimánuður og þægi- Iíeg hitamolla grúfði yfir Lundúnum. Komudagur var laugardagur og fyrsti dagur i stúdióinu mánudagur. Dagurinn var notaður til þess að stilla upp, finna sándið, spila dálitið og reyna að slappa af. Annars er eftirfarandi lýsingu að finna i dagbókarkroti frá þessum minnisstæða degi, mánudeginum 9. júli.: „Strákarnir fóru i stúdió i fyrsta skipti i dag. Þeir reyndu að „filaða”, eins og það heitir vist á skiljanlegri poppislenzku. Fram eftir degi sagði tauga- spenningurinn töluvert til sin. Allur „filingurinn”, sem náðst hafði upp á Islandi, var horfinn úti veður og vind. Maggi sagði, aö þetta væri eins og hljómarnir rúlluðu niður brekku á fullu i stað þess að fara hægt og sigandi upp i móti. Sjö lög voru tekin upp til prufu að hafa með sér heim á hótel og bera saman við upptöku, sem gerð var i Stapanum, áður en lagt var i ann yfir pollinn. Fjögur af þessum sjö lögum, voru hljóð- rituð eftir að jiðið var rekið út á „pub” til að fá sér brauðsneið og bjór. Þau reyndust mun betri en fyrstu þrjú. Gamli suðurnesja „filingurinn” virtist endur- fæddur.” Svo segir dagbókarkrotið frá mánudeginum 9. júli, en við þessu má bæta skemmtilegu atviki, sem átti sér stað um kvöldið, en ekki var skrásett sökum góðrar matarlystar og heilbrigðs þorsta. -Þegar allir voru saman komnir á hótelið um kvöldið, var hlustáð á upptökuna. Kom i ljós, að þeir spiluðu allt of hratt. Uppgötvaðist þá svik tauganna og var um- hverfinu kennt um. Og liklega var það ekkifjarstæðukennt eftir allt. Sveitamaður af Suðurnesj. og jafnvel harðsviruð útgáfa af mal- biksfólki, kemst ekki hjá þvi aö verða fyrir áhr. frá ysi og þys, stórborgarinnar, án þess raun- verulega aö gera sér grein fyrir þvi. En þarna var það, ritað I segulbandsspólu, ósýnilegt á brúnu eða hvernig sem menn vilja hafa það. En eftir að menn höfðu gert sér grein fyrir þessu með taugarnar, varð einhverjum að orði, að jafnvel þótt þeir heföu spilaö hratt, þá heföu þeir aldrei spilað eins hratt og segulbandið gaf til kynna. Upphófust nú miklar bollaleggingar og endan- leg útkoma þeirra rökræðna var sú, að þetta væri i fyrsta skipti, sem segulbandið færi til útlanda Victor vélamaður var hjálplegur, þegar ræða þurfti um framburð einstakra orða en allirtextar plötunnar eru á ensku. Það kom að þvi að syngja þurfti harmóniuna i nokkrum lögum og ekki var það lengi gert . Hérna eru þeir allir fjórir, Vignir. Manni. Finnbogi og Hrólfur if.v.) Myndin er tekin ofan úr upptökuherberginu. og það væri bara taugastressað,' eins og þeir. Var það i fyrsta og liklega siðasta skipti, sem menn sáu berum augum stressað segul- band (Siðar kom i ljós, að i þetta skipti hafði aðeins verið um mis mun á straumstyrkleika að ræða. Það þurfti 60 Hz mótstöðu segul- bandið i stað 50 vegna þess að á enska kerfinu eru 230 volt i stað ■220 hérna heima) En hvað segir þessi saga.Þegar einhver yfirgefur sitt vana bundna umhverti og kemur i annað, gjörólikt, er ekki við öðru að búast, en að sá hinn sami verði Og hér er sjáifur engmeerinn eðu vélamaðurinn Victor. Hans móralska hjalp verður seint metin til fjár. fyrir þessum utanaðkomandi a- hrifum, án þess að gera sér grein fyrir þvi. Hljómlistarmenn, sem halda utan til upptöku, verða að gera sér grein fyrir þvi, að það sem þeir hljóðrita .erlendis, undir erlendum áhrifum, getur hæglega orðið allt annað, en ætlað var i upphafi. En með tilliti til alls, þá þarf það heldur ekki að vera neitt slæmt. - Sem sagt, mánudagurinn varð lærdómsrikur og nú reyndu menn að losa sig úr viðjum stór- borgarinnar. losa sig við tauga- spennuna sem hlaðizt hafði upp eftir komuna til London. Dagarnir, sem fóru i hönd, voru hvildardagar sannka llaðir. Ekkert var gert annað, en að firina beztu matsölustaðina, læra að rata og reyna að slappa af fyrir daginn stóra, sem var föstu- dagurinn 13. júli. Þann dag hófst hinn raunverulegi stúdiótimi, þá skildi byrjað fyrir alvöru. Upptöku tónlistar sem þessarar er hagað þannig, að fyrst er tekið upp grunnspilið-, i þessu tilfelli trommur, gitarundirspil, bassa- leikur og pianó. Þvi átti að ljúka á tveimur nóttum. Timinn, sem kosið var að hljóðrita grunnspilið á, var frá þvi klukkan 9 að kvöldi og fram undir morgun. Má með sanni segja, að það sé mjög svo Framhald á bls. 35 Og hérna er myndavélin komin aðeins nær og hvilik svipbrigði. 43. TBL. VIKAN 27

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.