Vikan - 25.10.1973, Qupperneq 29
Fyrir þá, sem orðnir eru leiðir á gamla sófanum eða
hjónarúminu, er hér bráðskemmtileg tillaga að hring-
laga sófa, sem auðveldlega má útbúa heima. Svona
sófi er tilvalinn samastaður fyrir alla fjölskylduna, þar
sem setið er á rökstolum eða horft á sjónvarpið.
Sófinn á myndinni er með velúr-áklæði sem kannski
er ekki beint hagkvæmt en nota má riff lað flauel í
staðinn. Stóru pylsuna væri upplagt að sauma úr
bútum, e.t.v. i réttri breidd en misjafnlega löngum.
Einnig væri blátt denim upplagt og má þá sauma sfora
gallabuxnavasa á hliðar pylsunnar. Hér er upphækkun
undir sófanum en, þar sem þykk gólfteppi eru á
gólfum er það ekki nauðsyn.
Saumið dýnuáklæðið saman með 2 saumum, (sjá
teikn.) og klippið nákvæman hring, sem er 2 m í
þvermál, (munið saumförin.) Saumið E-kantinp við
hringinn, rétta móti réttu og faldið brúnina. Dragið
snúruna gegnum faldinn. Klæðið dýnuna áklæðinu og
dragið snúruna saman undir dýnunni, (sjá teikn.)
áklæðið á að vera slétt á yfirborðinu. Efnið í stóru B-
pylsuna er saumað saman rétta móti réttu, í langt rör,
en saumið rennilásana tvo i þennan saum. Snúið við og
saumið endana saman gegnum annan rennilásinn.
Fyllið pylsuna þétt með kurli. A-hnakkapúðinn er
saumaður eins, nema í endana eru C-hringirnir
saumaðir og einn rennilás er saumaður í langa
sauminn. Fyllið þétt með kurli, ef ekki á að nota
hnakkapúðann undir rúmföt. 5 borðar halda hnakka-
púðanum við pylsuna en undir púðanum er borðinn
tekinn saman með stálþráð beygðum i ferkant, sem er
12 cm x borðabreiddin. (Sjá teikn, af þverskurði
púðans.) Hver borði er dreginn kringum hnakka-
púðann, gegnum stálþráðsferkantinn og utan um
pylsuna. Á annan enda borðans eru 2 málmhringir
saumaðir og undir pylsunni er borðinn strekktur
gegnum hringina.
LEIDARVISIR OG ÞAÐ SEM ÞARF AÐ ÚTVEGA:
Efni: í allt, 21 m í90 cm breidd. Því erskipt pannig: 3
stykki, 2 m x 90 cm (yfirborð dýnunnar D), 1 stykki,
6,30 m x 30 cm (dýnubrúnin E.) 1 stykki 8,15 m x 90 cm
(pylsan B.) 1 stykki, 2,70 m x 90 cm (hnakkapúðinn A.)
2 hringir, C, 29 cm í þvermál.
DÝNA: 2 m lengd x 2 m breidd x 15 cm þykkt, skorin i
nákvæman hring, (fæst hjá Listadún).
PYLSA: ca 30 kg svampkurl, (fæst hjá Listadún)
SNÚRA: ca7 m löng, (til að draga í dýnuáklæðið.)
RENNILÁSAR: tveir 40 cm í pylsuna, einn 40 cm i
hnakkapúðann.
BORDAR: 5 stykki, 2,50 m löng, (má sauma úr efninu
eða kaupa hjá Jóni Brynjólfssyni.)
MÁLMHRINGIR: 10 stykki, 5 cm i þvermál.
STÁLÞRÁÐUR: (3 mm ) 5 stykki, 45 cm langir.
^5?
29 cm\
2 stk.
630 cm
90 cm
90cm
ATHUGIÐ: Það er ekki reiknað með saumförum svo
klippa þarf 1-2 cm útfyrir.
I330cm
Yfjrþorí
, v- Zdringir.
borfli G&. 2SOcn\ v
hndkkdpvé
tZcm Std/þráður
[>otn
pyisa
þy/e.ránið af hnakkdpú&a
43. TBL. VIKAN 29