Vikan - 25.10.1973, Side 30
SIÐLAUST
SELADRÁP
Miskunnarlaus og hrottafengin
slátrun selskópa við strendur
Kanada, á Nýf undnalandi og
Labrador og allt norður til Græn-
lands hlýtur að vekja megna and-
styggð allra. Afsláttaraðferðin er
einföld, kóparnir eru rotaðir og síð-
an eru þeir flegnir, því að skirvnin
eru það, sem veiðimennirnir sækjast
eftir. En þeir hirða ekki um að af lífa
kópana, heldur er alqengt, að þeir
rakni úr rotmu, flegnir og skreiðast
oft langar leiðir eftir is, áður en líf
þeirra fjarar út. Kanadamenn og
Norðmenn standa fremstir í flokki í
þessum veiðum, þó að fleiri komi
viðsögu. Þrátt fyrir að tilraunir hafi
verið gerðar til jáess að binda endi á
þetta grimmdarlega dráp, hef ur enn
ekki tekizt að útrýma því, og er bágt
til þess að vita, að slíkt sinnuleysi og
virðingarleysi skuli viðgangast.