Vikan

Útgáva

Vikan - 25.10.1973, Síða 45

Vikan - 25.10.1973, Síða 45
Electrolux skildi lögfræðinginn eftir með 'gapandi munn og pennann á lofti. Dómarinn var settlegur og þrekinn maður, kinnasiður og þreytulegur til augnanna. Hann hlustaði á herra Hawthorne, án þess að taka fram i fyrir honum. Hann horfði upp i loftið, allan timann, en viö og við leit hann samt á Jimmy, sem hoppaði á milli Laurel og Michaels. Þau höfðu ekki lengur neitt til að halda athygli hans vakandi... hann var búinn að leika sér með lyklakippu Michaels, vasaklút Laurel, og litinn spegil, og Laurel vissi, að hann var að missa þolin- mæðina, en samt hélt herra Hawthorne sifellt áfram aö tala. Það var ekki fyrr en lögfræð- ingurinn kom að ástæðunni fyrir þvi, aö Laurel hafði yfirgefið barnið, að dómarinn beindi athygli sinni að henni og augu þeirra mættust. Laurel ók sér vandræðalega og leit undan. Að lokum þagnaði lögfræðingurinn og löng þögn fylgdi á eftir. Dómarinn hallaði sér fram á oln- bogana, nuddaði augun og leit að lokum á Michael. — Herra Devereux, hafiö þér hugsað yöur að taka við hinni brotthlaupnu konu yðar aftur? — Ég er kaþólikki, yöar náð. — Það er ekki svar við spurn- ingu minni, eða finnst yður það? Það að þér játið kaþólska trú, kemur ekki málinu við, nema þér óskið að ganga f hjónaband ööru sinni. En ég var að spyrja aö þvi, hvort þér viöurkennduð konu yöar, sem hæfa móður barnsins yðar og hvort þér væruð reiðu- búinn til að stofna meö henni heimili? Michael starði á dómarann, opnaði munninn, eins og til aö segja eitthvað, en lokaöi svo munninum aftur. Laurel sá hvernig hann beit saman tönnum, meöan hann var aö yfirvega svarið. — Jæja, herra Devereux? —- Hún hefir búið á heimili minu siðan I april. Dómarinn virtist siður en svo ánægöur meö þetta svar. Hann og Michael virtu hvor annan fyrir sér um stund, en svo sneri dóm- arinn sér aö Laurel. — Lögfræð- ingurinn yðar gaf stutta yfir- lýsingu um það hvers vegna þér yfirgáfuð barnið, En hann hefir ekki nefnt ástæðuna fyrir þvi, að þér sneruð aftur til fjölskyldu mannsins yðar? Getiö þér gefið nokkra skýringu á þvi? — Bróöursonur minn mun erfa mikil auðæfi, yðar náð, sagöi Paul. — Hún hafði næstum gleymt þvi. — Hún vissi ekkert um það, Paul.. sagöi Michael og sneri sér að bróöur sinum. — Ég sagði henni ekkert um þessa erfðaskrá. — Ég vissi ekkert um þetta, fyrr en löngu eftir að ég sneri aftur, sagöi Laurel. — Ég vildi aðeins reyna að bæta fyrir brot mitt. — Þegar börn fæðast nú á dögum, vitum við að þau fæðast inn i vonda og ógnvekjandi veröld, frú Devereux. En þannig hefir það ætiö verið. Það leysir ekki vandamál þeirra, að yfirgefa þau úg láta þau alast upp móðurlaus. Dómarinn virti fyrir sér plöggin, sem lögfræðingurinn hafði lagt fyrir framan hann. — Fangelsis- dómur, allt að niutiu dögum er venjulegasta refsingin fyrir slik- um brotum i þessu fylki. En þar sem ljóst er, aö barnið hefur ekki verið vanrækt aö nokkru leyti og að þetta hefir gengið fyrir sig i öðru fylki, þá horfir málið öðru visi við. En ef til skilnaðar kfemur milli ykkar hjónanna, þá fær herra Devereux skilyrðislausan rétt til barnsins, við hvaöa dóm- stól sem er, ef öll gögn verða lögö fram. — Rétturinn ákveður þvi, að dæma Laurel Jean Devereux i niutiu daga fangelsi... Laurel stundi þungan og þrýsti höfði Jimmys fastar að brjósti sinu, þar til hann kveinkaði sér. ... og að rifta svo þeim dómi og setja yöur, Laurel Jean Dever- eux, undir umsjá eiginmanns yðar, Michael Devereux, I þessa niutiu daga. Á þeim tima getur herra Devereux gert það upp við sig, hvort hann álitur yöur hæfa til að annast son yðar og ala hann upp á sómasamlegan hátt, ef til skilnaðar kemur. Siðan var rétti slitið. Herra Hawthorne ljómaði af ánægju og tók i hendur þeirra allra. — Þetta gekk betur en ég haföi þorað að vona. Michael leit á Laurel og augna- ráð hans kom henni til að skjálfa, siðan sneri hann sér á hæli og skundaði út úr herberginu. — Þér veröið að hafa bróður minn afsakaöan, herra Hawt- horne, sagði Paul. — Þér hafið unnið verk yðar vel og viö erum öll mjög þakklát. Hann sneri sér að Laurel. — Ertu ekki sammála, Laurel? Nú getur Michael haft auga með þér. En þá veröur hann lika að taka þig með sér til Phoenix. Laurel hné niður I harðan stólinn aftur. Hún þurfti þá ekki að fara i fangelsi. Hún fékk að vera um kyrrt hjá Jimmy — að minnsta kosti fyrst um sinn. En svo rann það upp fyrir henni hvað þessi frestur hafði I för meö sér, hún yrði að búa ein með Michael... Hún minntist þess hve eindregið Janet hafði varað hana við þvi. Og svo, eins og I sjón- hending, minntist hún skuggans, sem hafði veriö svo ógnvekjandi og stór i garðinum og verunnar, sem bar við gluggann hjá henni... Frh. inæsta blaði. 43. TBL. VIKAN 45

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.