Vikan - 02.01.1975, Blaðsíða 27
Augnlæknirinn William Lang. Hann dó áriO 1937. Meöan hann lifði var
hann að visu vel metinn læknir, en á engan hátt brautryðjandi. Nú er
hann orðinn heimsfrægur fyrir lækningar slnar, sem hann framkvæmir
nærri fjörutiu árum eftir dauða sinn.
William Lang lést árið 1937, þegar hann
var 85 ára. En með aðstoð miðils fæst
hann enn við lækningar og hefur læknað
fólk svo þúsundum skiptir. Miðillinn heit-
ir George Chapman og er fyrrverandi
slökkviliðsmaður.
Enski læknirinn William Lang
fæddist árið 1852 og lést árið 1937,
áttatiu og fimm ára að aldri.
Hann var dugmikill og virtur
augnlæknir á sinni tið, en var þó á
engan hátt brautryðjandi i lækn-
ingum og olli engum straum-
hvörfum f sögu læknislistarinnar.
Þrátt fyrir það er William Lang
nú ef til vill einn þekktasti læknir i
heimi.
Þrjátlu og sjö árum eftir dauða
sinn er hann semsé enn að gera
læknisaðgerðir á fólki svo hundr-
uðum skiptir.
Þetta hljómar mjög ótrúlega,
reyndar virðist þetta helber upp-
spuni og ósannindi. Og flestir
hljóta aö álita, að svo sé. En allir
sjúklingarnir, sem Lang hefur
læknaö á undanförnum árum, eru
á öndverðum meiöi. Þeim finnst
það I hæsta máta eðlilegt og ekk-
ert til að gera veöur út af, að Lang
skuli enn vera að fást við lækn-
ingar.
Vitaskuld hefur Lang ekki snúið
aftur til jaröarinnar I llkaman-
um. Nei, hann stundar lækning-
arnar gegnum mibil, sem opnar
llkama sinn fyrir sál læknisins.
Og gegnum miðilinn annast lækn-
irinn sjúklinga slna. Hann beinir
læknisaðgerðunum þó ekki að
likama sjúklinganna, heldur anda
þeirra. Smám saman hefur and-
inn svo þau áhrif á likama sjúk-
iinganna, að hann verður heil-
brigður.
Töluveröur hópur fólks trúir
þessu statt og stöðugt. Þaö eru
spiritistarnir, eða andatrúar-
mennirnir, eins og þeir eru stund-
um kallaðir. Þeirra álit er, að
látnir geti talað og hafst ýmislegt
annað að gegnum miðla. t Eng-
landi, þar sem lækningar Langs
fara fram, stendur spíritisminn á
sérstaklega gömlum merg.
Sjö þúsund
handayf irleggjendur.
Richard Ellidge, aðalritari
landssambands enskra splritista,
gefur þær upplýsingar, að hreyf-
ingin hafi fyrst fariö að láta kveba
verulega að sér á miðri siðustu
öld. Nú eru 460 spiritistafélög I
landssambandiriu og samtals eru
meðlimirnir i kringum 20.000.
1 niu af tlu splritistakirkjum
fara fram lækningar með handa-
yfirlagningu, og þeir, sem þær
framkvæma, eru kalíaði „heal-
ers”. Þeir hafa myndað meö sér
Læknirinn
lést árið 1937
-En fæst enn
við lækningar
w
Þetta er miðillinn George Chapman, 53ja ára að aldri. Hann var fyrr-
um slökkviliðsmaður, en eftir að hann uppgötvaði miðilshefileika sina
hefur hann gefið sig nær eingöngu að andalæknlngum.
sérsamband, sem þeir kalla The
national Federation of Spiritual
Healers, og i sambandinu eru 7000
manns.
Að sögn Richards Ellidge álita
spiritistarnir, að lækna megi alla
sjúkdóma með handayfirlagn-
ingu, ef unnt er að stilla sál sjúk-
linganna inn á bylgjurnar, sem
læknarnir senda frá sér. Líkam-
inn læknar sig sjálfur af öllum
meinum, ef þessi kraftur frá
læknunum varir nógu lengi til
þess að hafa djúptæk áhrif á sál
sjúklingsins og skapa I henni vilja
til að gera likamann heilan.
Læknirinn er verkfæri anda-
kraftsins. Geti andárnir sannfært
sjúklinginn um það gegnum
miðilinn, aö hann veröi frlskur,
læknast hann.
— Þvi miður hefur okkur ekki
tekist aö sannfæra lækna um, aö
þetta sé staðreynd, segir Richard
Ellidge. — Við höfum bent þeim
á, aö þeir geti notað sömu aöferð-
irogkomið sannfæringu um bata
inn hjá sjúklingunum. Þá myndi
þeim uka áreiöaidega batna. Eri
læknarnir hafa ekki verib fúsir til
samstarfs við okkur. Þess I stað
neita þeir álgerlega að taka nokk-
urt mið af starfi okkar....
Slökkviliðsmaöurinn.
Ellidge finnst ekkert tiltöku-
mál, að löngu dáinn læknir skuli
lækna gegnum miöil.
— Margir miölar starfa undir
handleiöslu látinna lækna, segir
hann. — William Lange er bara
einn margra lækna, sem hafa
1 niu af tlu spiritistakirkjum fara fram lækningar með handayfirlagn-
ingum.
haldið starfi sinu áfram eftir
dauðann.
Miöillinn, sem William Lange
starfar I gegnum, heitir George
Chapman og á heima I Aylesbury
i Buckinghamshire. Hann er53ja
ára að aldri, geðugur maður með
alskegg. Hann hefur verið miðill
Langs I meira en 25 ár og hefur
unnið sér mikið álit sem slfkur.
Hann hefur heldur ekki tapað á
þvi fjárhagslega aö gerast að-
stoðarmaður augnlæknisins.
George Chapman var lærlingur
á bifreiðaverkstæöi, þangað til
styrjöldin skall á. Þá var hann
innritaður i flugherinn, þar sem
hann þjálfaöi og kenndi hnefa-
leika, skotfimi og návigistækni.
Aö strlðinu loknu gerðist hann
slökkviliðsmaður.
Einn yfirmanna hans á slökkvi-
stöðinni var áhugamaður um
andatrú. Hann vakti áhuga Chap-
mans á henni og fékk hann til þess
að vera með á nokkrum miðils-
fundum.
Brátt var svo komiö, að Chap-
man fór að falla I trans, og i
transinum komst hann i samband
við fjórar andaverur. Þær voru
indiánahöföingi, sem kvaðst heita
Einmana stjarnan, indverji aö
nafni Ram-a-dini, ungur maöur,
sem hét Leopoldi og kínverski
læknirinn Chang Woo. Frá þeim
flutti hann boöskap að handan.
En brátt komst Chapman einn-
ig I samband viö William Lang,
og áöur en langt um leiö var hann
eini andinn, sem flutti boðskap
gegnum Chapman. Hann sagði,
að hann heföi verið útvalinn tií
þessaöstarfa gegnum Chapman.
Síöan hefur Lang læknað fjöldann
allan af sjúklingum gegnum
Chapman.
Kraftarnir
A ensku er til orðatiltækið
„sleeping partner” og meö þvl er
átt við mann, sem leggur meira
eða riiinna fé I fyrirtæki, en tekur
ekki þátt I rekstri- þess. Hluthaf-
inn sofandi hefur ekki afskipti af
neinu I rekstrinum, en þiggur sinn
hluta af ágóöanum. George Chap-
man er eins konar sofandi hlut-
hafi Williams Lang.
Þegar læknirinn hugar að sjúk-
lingum sinum, tekur hann sér ból-
festu I llkama Chapmans, sem er
i transi. Segja má, að Chapman
fái William Lang llkama sinn. Sál
Chapmans er hvergi nærri viö
lækningarnar, þvi aö hann hefur
enga hugmynd um, hvernig and-
legur kraftur Langs starfar.
Hver er þessi furöulegi kraft-
ur?
Chapman segir hann vera af
guölegum uppruna. — Hann kem-
ur beint frá guði og er af sama
toga og krafturinn, sem Jesús
gerði kraftaverkin með.
AndaKjcaminn.
Spiritistarnir lýsa trú sinni
nokkurn veginn á þennan hátt:
Likamlegt ég okkar skiptir
minnstu máli i tilveru okkar.
Þetta kemur glöggt fram i þvl,
hve stuttan tima við búum I
likamanum miðað við að andinn
lifir eilíflega.
Jarðvist okkar er eiginlega
ekkert annað en stuttur reynslu;
og námstimi fyrir eilifðina.
Andallkaminn er úr þunnu, en
sterku efni, og getur tekið sér ból-
festu I jarðneska likamanum og
umlukt hann. En andalikaminn er
ekkihiðsamaog andinn, sálin.
Sálin ert þú sjálfur. Það er hún,
sem hugsar, skapar og fram-
kvæmir. Og hún er I jaröneska
likamanum. En þótt jarðneski
likaminn deyi, heldur þú samt
áfram að lifa sem andavera.
Lang læknir sker ekki upp i
þeim skilningi, að hann beiti
skurðarhnlf. Raunar beitir hann
engum læknisráðum viö jarð-
neska likamann. Hann beitir
áhrifum sinum aðeins að anda-
Hkamanum. Viö sllkar „anda-
uppskuröi” er jarðneski likaminn
ekki snertur.
Samt álitur Chapman, að
stundum megi greina mörk eftir
uppskurði á jarðneskum llkama
sjúklinganna, en þau mörk hverfa
mjög fljótt. En örin á andallkam-
anum eru mjög greinileg og sýna,
að á honum hefur verið gerð að-
gerð.
Firðarlækningar
Þegar andalæknir sker upp,
f jarlægir hann ekki sjúka llkams-
hlutann eins og jarðneskir læknar
gera. Nei, andalæknirinn læknar
sjúka liffærið (I andallkamanum)
og gerir það fært um að starfa
áfram á eðlilegan hátt. Ef hann
finnur eitthvað, sem er sérstak-
lega hættulegt, eins og til^dæmis
igerö, verður hann þó að fjar-
lægja hana úr andallkamanum.
Komi það fyrir, að sjúklingur
verði magnvana, leysir Lang
læknir það á einfaldan hátt. Hann
lánar sjúklingunum bara svolitla
orku úr andallkama Chapmans.
, Chapman segist hafa orðiö var
við, að Lang hafi á þann hátt búið
til ný innri llffæri I staö þeirra
sjúku.
Sjúklingur þarf ekki endilega
að koma til Chapmans til þess að
fá bata. Vitaskuld er það auðveld-
ara, en verði þvi ekki komiö vjð,
reynir Chapman firðarlækningar.
Þegar Georg Chapmaft fær bréf
frá sjúklingi einþvers staöar að
úr heiminum. 'hefur hann undir-
eins samþatla við Lang og segir
honum, hvað hrjáir sjúklinginn.
Og þá tekur Lang til starfa.
Chapman leggur samt áherslu
á, aö firðarlækningar séu ekki
eins áhrifamiklar og nærlækning-
ar. Hann telur það stafa af þvi, að
viö sllkar kringumstæöur verður
Lang að lækna beint gegnum
sjúkan anda sjúklingsins og nýtur
ekki aðstoðar miðils.
Gamall maður
Vitaskuld er unnt aö afgreiða
lækningar eins og Chapmans og
Langs með þvl einu að segja, að
þær séu tómur uppspuni og geti
alls ekki átt sér stað, eöa segja,
að fólkinu sé svo sem ekki of gott
að trúa á þessa endemis þvælu.
Sum okkar segja þó, að fólk, sem
trúir slíku og þviliku, séu óttaleg-
ir blábjánar.
En sllkar fullyrðingar koma að
engu haldi. Við komumst engu
nær sannleikanum með þeim.
Og fjöldinn allur af fólki er
reiöubúinn að vitna um lækning-
arnar.
Engin ástæða virðist vera til
þess að efast um heiðarleika
slökkviliösmannsins fyrrverandi.
Honum til réttlætingar nægir að
benda á, að þótf hann llti á þaö
sem eðlilegt og sjálfsagt, aö löngu
dáinn læknir skuli miðla krafti
gegnum hann, veit hann eins lltið
um þennan kraft og hver annar
efagjarn maður.
Fjöldi fólks hefur notið lækn-
inga Langs og Chapmans, og
meðal þess er hópur efagjarnra
manna. Og þetta fólk kann frá
mörgu markverðu að segja.
Areiöanlega eru ekki állir á
einu máli um réttmæti lækninga-
aðferða eins og þeirra, sem
Chapman beitir. En eitt er vlst:
Hann hefur hjálpað mörgum
sjúklingum, sem til hans hafa
leitað, og það er góðra gjalda
vert. Viö skulum lika hafa þaö
hugfast, aö viö erum engu nær
með þvi að dæma sllkar lækning-
ar kukl og fát, án þess að gefa
nánari gaum að þvi, um hvað er
að ræða.
*
26 VIKAN l.TBL.
l.TBL.VIKAN 27