Vikan

Eksemplar

Vikan - 30.01.1975, Side 23

Vikan - 30.01.1975, Side 23
Georgie Fame Tónlist Georgie, Fame og hljómsveitar hans, The Blue Flames, var underground tónlist- in fyrir 10—11 árum. Eftir þvi muna vist fáir, en þessi hljóm- sveit var viöurkennd sem ein sú besta á þeim tima. Flamingo klúbburinn i London var eftirsótt- ur og þekktur fyrir þaö eitt aö hýsa Georgie Fame og hljómsveit hans. Ariö 1965 skaut hann Bitlun- um aftur fyrir sig og komst i efsta sæti vinsældalistans meö laginu Yeh Yeh. Ariö eftir kom lagiö Get Away. Þaö sama ár leysti Fame upp hljómsveitina, og eftir þaö var hann meira i fréttunum fyrir hjónaskilnaö heldur en tónlist. En þá kom Bonnie og Clyde timabiliö svonefnda, og Fame söng lagiö úr kvikmyndinni inn á plötu, sem varö mjög svo vinsæl. Siöan ekki söguna meir fyrr en seint á sl. ári, þegar hann endurreisir hljóm- sveitina Blue Flames og hljóörit- ar stóra plötu, sem nýkomin er á markaö. BBC hefur gert sjón- varpsþátt um Georgie Fame, og hann er, aö þvi er viröist, nokkuö vel á veg kominn meö aö slá I gegn aftur. Aöspuröur, hvers vegna hann leysti upp Blue Flames, sagöi hann fyrir nokkru, aö hann hafi þurft aö skipta um umhverfi. Eft- ir aö hafa leyst upp hljómsveit- ina, geröi hann stóra plötu meö stórri hljómsveit eöa The Harry South Orchestra. En svo stofnaöi hann aöra litla hljómsveit, þar sem m.a. Jon Hiseman lék á trommur. En þaö varöi ekki lengi. Siöan hefur hann, aö þvi er viröist, ekkert gert merkilegt. En nú eru þaö Blue Flames aftur. Þrir úr gömlu hljómsveitinni eru meö honum i þetta skipti en öllum ber saman um, aö þaö, sem hljómsveitin sé aö gera núna, sé miklu efnismeira og betra en áö- ur. George spilar betur, syngur betur og gerir yfirleitt allt miklu betur en áöur. Viö gerö þessarar nýjustu plötu naut hann aöstoöar stórs hóps aöstoöarhljóöfæraleik- ara, og hann var ekki af lakara taginu. Meöal þeirra voru Steve Gregory, Stan Sultsman, Alan Skidmore, Eddie Thornton og Colin Green. Þaö eru sem sagt allar horfur á þvi, aö Geórgie eigi góöa möguleika á þvl aö slá i gegn aftur. En hvaö tekur hann til bragös, ef sú fjárfesting, sem hann hefur lagt I meö gerö þessarar nýju plötu, reynist ekki arövænleg. ,,Ég mun halda áfram aö spila, svo lengi sem einhver er til þess aö hlusta á mig. Kannski safna ég nokkrum pianóum, svo aö ég veröi viö öllu búinn, þegar og'ef rússarnir skyldu einhvern tima koma. Þá gef ég gefiö þessi pianó á pubbana, svo viö getum meö smátilfæringum notiö tónlistar á- fram. En svo sleppt sé öllu gamni, þá eru þaö krárnar, sem halda lifinu i ensku músikinni i dag. Þess vegna er ég mjög sáttur viö þaö aö leika aöeins á krám”. En fréttir frá Englandi herma, aö áhugi fólks beinist nokkuö aö Georgie Fame þessa stundina. Aö visu gerir hann þaö alltaf,þegar einhver gamall og frægur tekur tilhendinni og gerir eitthvaö nýtt. Ahuginn fyrir þvi gamla og þvi, sem fólk heldur aö hafi veriö þaö besta, er alltaf fyrir hendi, svona til aö byrja meö. En svo er bara aö biöa og sjá til, hvort hann end- ist eitthvaö. .5. TBL. VIKAN 23

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.