Vikan - 11.12.1975, Síða 33
ugur og að mörgu leyti vel til þess
fallinn.
Eisti bíllinn I notkun er stiga-
bíll frá 1933, 42 Sra gamall, en
ennþá góður til síns brúks og stund-
um notaður, þó hann fái jafnan
að hvíla sig úti 1 horni í Ártúns-
höfðanum.
Þar — vel á minnst — virðist
vera aðalskorturinn á fullkomnu
slökkviliði. Vegna mannfæðar,
segir slökkviliðsstjóri er aðeins hægt
að hafa þar einn brunavörð að
staðaldri, til að aka og sjá um nýj-
asta og stærsta slökkvibllinn hér á
landi.
Einn brunavörður — og að vísu
hefur aðalsjúkrabíllinn þar sitt að-
setur. BIll fjórtán, og ef svo ótrú-
lega skyldi vilja til, að hann vxri
ekki I stöðugri notkun og úti I bæ
alian sólarhringinn, þá eru þar að
vlsu tveir menn I viðbót til starfa.
En um það virðist tómt mál að
tala, þvl að meðaltali mun einn
sjúkraflutningur vera framkvæmdur
á hverjum klukkutlma sólarhrings-
ins, og hver tekur um hálftíma.
Á þessari stöð þyrftu að vera
fleiri menn. Sennilega tveir menn
til viðbótar svo vel sé, og öllum
þjónað dýggilega...
Gult Ijós og baull
Fullorðin hjón fyrir bíl á Grensás-
vegi.
Fjórtán og sextán af stöðinni.
Hjónin lágu á miðri götu og
námu höfuðin saman, en allt I
kring blóð, glerbrot, húfur og skór.
Lögregluþjónar á hlaupum, forvitið
fólk allt I kring. Ég fæ mig ekki
til að taka mynd. Nóg er komið
I bili. Konan fyrst upp I sextán,
maðurinn I fjórtán. Ég held mér
dauðahaldi á meðan sírenur hvlna
Svo er blóðið þvegið af börunum,
og við höldum áfram — kannski
blða fleiri...
,,Sextán á stöðinni.”
G.K.
Fyrir nokkrum árum var hús-
bóndinn svo mikið númer á heim-
ilinu, að hann þurfti skilyrðislaust
sitt eigið herbergi, húsbónda-
herbergið svokallaða, og hús-
bóndastóll var sjálfsagt húsgagn
á hverju heimiii.
Sigurður Már Helgason for-
stjóri MODEL—HÚSGAGNA HF
sá, að við svo búið mátti ekki
standa, og þótt ekki væri farið að
minnast á kvennaárið fyrir 2-3
árum, fannst honum þá mál til
komið að rétta hlut kvenna að
nokkru og sendi á markaðinn
þennan bráðfallega og þægilega
stól, sem sjá má á meðfylgjandi
mynd, og auglýsti hann sem svar-
ið við húsbóndastólrium.
Eins og menn eflaust hafa tek-
ið eftir, eru húsbóndastólarnir
svonefndu sannkallaðir hæginda-
stólar, djúpir með hátt bak.
Sigurður sagðist hafa tekið eftir
því, að kvenfólk vildi helst ekki
sitja I slíkum stólum, háa bakið
ruglaði hárgreiðslunni, dýpt stóls-
ins gerði þeim erfitt fyrir með
handavinnu, og auk þess ættu
konur ekki gott með að standa á
fætur úr slíkum stól með kven-
legum yndisþokka!
Stóllinn á meðfylgjandi mynd
leysir öll þessi vandamál með
sóma og prýði, án þess að verða
um leið að hreinræktuðum vinnu-
stól. Enda hefur hann notið
mikilla vinsælda, ekki bara af
kvenþjóðinni, heldur einnig karl-
mönnum, þvl þótt þeir hafi
kannski ekki eins miklar áhyggjur
af hárgreiðslunni, sem virðist
reyndar þessa dagana ekkert
minna mál hjá þeim en konun-
um, þá er ckki þar með sagt, að
þeirvilji endilega sökkva sér niður
I djúpan hægindastól, um leið
og þeir koma hcim frá vinnu.
Og nú spyrjum við þig, lesandi
góður: VILTU VINNA STÓL?
Þú átt kost á þvl að hljóta
þennan fallega og þægilega stól
frá VIKUNNI og MODEL-HÚS-
G'ÖGNUM HF, og allt sem þú
þarft að gera, er að senda
VIKUNNI svör við nokkrum
spurningum, sem bundnar eru
efni framhaldssögunnar okkar,
MARIANNE. Skilafrestur er til
22. desember, og verður vinnings-
hafi látinn vita fyrir jól. Stóllinn
er 33.500-36.700 kr. virði, eftir
því hvaða áklæði er valið. svo það
er til nokkurs að vinna.
DESEMBERGETRAUN VIKUNN
AR
Framhaldssagan okkar, Mari-
anne eftir Juliette Benzoni, er
viðburðarík og spennandi. í
þessu blaði birtist þriðji hluti
hennar, en svör við spurning-
unum I getrauninni okkar er að
finna einhvers staðar I fyrri hlur-
um hennar.
1. Hvað két mððursystir Mari-
annes?
2. Hvað hét ábótinn. sem flutti
Marianne sem barn frá Frakk/andi
til Englands?
.1. Hvaða ár giftist Marianne?
Sendið svörin í umslagi merktu
DESEMBERGETR AUN VIK-
UNNAR. PÓSTHÓLF 533,
REYKJAVfK. Skilafrestur er til
22. descmber, og verður vinnings-
hafi látinn vita fyrir jól.
VILTU VINNA STÓL?
VILTU VINNA
50. TBL. VIKAN 33