Vikan - 03.06.1976, Blaðsíða 15
Benjamin David Goodman og var
þriðji elsti af 11 börnum fátæks
skraddara, sem bjó í Chicago.
Foreldrarnir hétu David Goodman
og Dora (Grisinsky) Goodman.
Þau höfðu flust til Bandaríkjanna í
leit að betra lífi. Bæði voru þau
gyðingar, hann upprunninn frá
Varsjá í Póllandi en móðirin frá
Kovno i Litháen. Faðirinn var
eitthvað menntaður í hljómlist, en
móðirin lærði aldrei að lesa né
skrifa. Litli strákurinn á stuttbux-
unum, síðar heimsfrægur undir
nafninu Benny Goodman hefur
sjálfur sagt um fátæktina þar
heima: — Ég man eftir því þegar
við bjuggum í kjallarholu yfir vetur
og höfðum ekkert eldsneyti til að
hlýja okkur við. Þá kom jafnvel
fyrir, að við höfðum heldur ekkert
að borða.
Pabbinn komst að því, að
guðshúsið þeirra, The Kehelah
Jacob Synagogue, lánaði gyð-
ingabörnum hljóðfæri fyrir um 25
sent á viku og sá þeim jafnframt
fyrir einhverri kennslu. Þessvegna
var það, að hann sendi þrjá elstu
strákana morgun einn til syna-
gogunnar, og áttu þeir þar að velja
sér hljóðfæri til að læra á.
Þegar þeir komu þangað sýnd-
ist elsti strákurinn, Harry, vera sá
eini þeirra, sem gæti valdið
stærsta hljóðfærinu, túbunni, sá
næstelsti, Freddie, fékk trompet,
en Benny virtist varla geta valdið
þyngra hljóðfæri en klarinettunni.
Er ekki að orðlengja það, að
strákarnir þrír fóru að læra á þessi
hljóðfæri. Ferekki sögum af Harry
né Freddie, en Benny var svo
fljótur að læra, að ári sfðar kom
hann í fyrsta sinn opinberlega
fram á skólahljómleikum og lék þá
kafla úr trompetkonsert eftir
Haydn. Tveim árum síðar var
hann farinn að vinna fyrir sér og
leika á ýmsum skemmtistöðum.
Eitt sinn var hann að leika í hljóm-
sveit um borð í skemmtibáti á
Lake Michigan, þegar hinn frægi
trompetleikari Bix Beiderbecke
hreinlega rak hann af hljómsveit-
arpallinum. Hann vildi ekki neina
samvinnu við þennan stuttbuxna-
strák. Það átti þó eftir að breytast.'
Skólaganga Bennys varð aldrei
nein að ráði, því hugurinn var allur
við hljómlistina, hún var algjörlega
í fyrsta sæti ( huga hans. En að
sama skapi efldist klarinettuleikur
hans, og þegar hann var sextán
ára hafði hinn þekkti hljómsveitar-
23. TBL. VIKAN 15