Vikan - 03.06.1976, Blaðsíða 20
C ROWIN
CAR200
Verð: 9.733
CAR300
Verð: 12.892
mwmm
C5C702
Verð: 24.116
8 rósa segulband
+ útvorp.
lltl; - a. (£} r. DD
CSC902
Verð: 31.665
Stereo segulband
+ útvarp.
CSC8000
Verá: 16.555
8 rúsa segulband.
CSC802
Verð: 16.555
Stereo segulband.
Athugið!
Setjum viðtœkin í samdœgurs
Skipholti 19, við Nóatún
Sémrr 23-800 og 23-500
Klapparstíg 26
sími 19-800
Hún hafði farið út á morgun-
göngu og fundið Peter Atkins
dáinn, hjá læknum við klaustrið.
Susanna fór ásamt hinum, með
dr. Weisensteir f fararbroddi, að
fjarlægari hlið klausturgarðsins.
Atkins' lá með höfuðið i
læknum, sem liðaðist fram með
klausturveggnum. Kannski hafði
hann fallið niður úr einum glugg-
ann og drukknað.
Og þó...
Súsanna kraup við hlið dr.
Weisenstein. „Hvaða áverkar eru
þetta?” spurði hún, og benti á
blett aftan á hálsi Atkins.
„Það er sennilega þetta, sem
hefur kostað hann lifið. Kannski
hefur hann fallið niður.”
.Marlene var nú komin til
þeirra. Hún leit mjög illa út.
„Þjáðist hann?”
„Sennilega ekki lengi. Eg skal
hjálpa þér,” hrópaði hann.
En það var of seint. Marlene
gaf frá sér lágt titrandi andvarp,
og síðan leið yfir hana. Dr.
Weisenstein stökk á fætur og
greip hana. Hinir flýttu sér lika
til hennar og söfnuðust kringum
hana.
Súsanna fékk nú nokkrar mín-
útur fyrir sjálfa sig, og hún notaði
þær til að athuga Iíkið. Hún varð
að fá að vita vissu sina. Hún
leitaði vandræðalega í vösum
Atkins. Vegabréf, kúlupenni,
lyklar, veski fullt af viðskipta-
kortum og peningum, og loks
mynd af lítilli stúlku u.þ.b. tíu
ára. Hún skoðaði pennann betur.
Svart blek. Það var einmitt sami
litur og í bréfinu' frá Absalom.
Gat verið að Atkins væri bréfrit-
arinn?
Hún stóð upp. Dr. Weisen-
stein hafði snúið sér við, og starði
nú undrandi á hana. Susanna
rétti honum eigur Atkins, „Þú
munt hafa orð fyrir okkur, er það
ekki?” spurði hún hratt. „Sendi-
ráðið ætti að fá þetta.”
Weisenstein slakaði á. „Það er
alveg rétt. Því hafði ég gleymt.
Við ættum strax að sækja hjálp.”
Lögreglan beið eftir þeim
þegar þau komu aftur á hótelið,
taugaóstyrk og þögul. Þeim var
smalað saman i matsalinn, og
aftur voru þau umkringd vopn-
aðri lögreglu.
Þetta var önnur ógæfan, sem
dundi yfir hópinn. Nú voru allir
orðnir hræddir og. vildu aðeins
komast heim.
Loksins var þeim raeð upp.
Þau áttu að fara með rútunni,
undir vopnuðu eftirliti, til Sofia.
Þar áttu yfirheyrslurrrar að fara
fram.
Súsanna reyndi að nálgast
Endicottsysturnar, á meðan hún
beið eftir rútunni. Nú gafst henni
tækifæri til að athuga hvort
Hroki og hleypidómar voru enn í
tösku Azaleu.
„Þetta er hræðilega þungt,”
sagði hún við Azaleu. „Ég skal
halda á þessu fyrir þig, þá getur
þú hjálpað Cristine í staðinn.”
„Ö, þakka þér fyrir. Þetta var
20 VIKAN 23. TBL.