Vikan

Issue

Vikan - 03.06.1976, Page 43

Vikan - 03.06.1976, Page 43
hrísgrjóninsjóðaviðvæganhitaí 15 rnínútur. Setjið saman við 1 stk. rselleríog 1 lauk, sem hvorttveggja er skorið í smáa bita, og- sjóðið áfram í 5 mínútur. Síðan er kjötið sett saman við og ef þörf krefur dálítið meira vatn. Þegar allt er orðiðvelheitt.errétturinnskreyttur nteð rauðri og grænni papriku, sem skorin er í strimla. Berið soyasósu með og gjarnan Chutney. RÍKIR RIDDARAR. Þeireru búnir«úrfranskbrauði, og þetta er réttu r, sem vel má bera fyrir gesti með kaffibolla. Skerið þurrt franskbrauð í fingurþykkar sneiðar og fjarlægið skorpuna. Þeytið saman 1/4 Itr af mjólk, 1/4 Itr af rjóma, 1 eggjarauðu, 1 egg,2tskaf vanillusykri og 2 msk af strásykri. Leggið brauðið í bleyti í þessa blöndu. Steikið síðan í smjöri á pönnu. Setjið á bökunarplötu og smyrjið eplamauki ofan á, og ef vill má setja möndluflögur saman við það. Síðan eru settir á þetta marengstoppar (1 eggjahvíta og 50—60 grflórsykur) og bakað, þar til marengsinn hefurfengiðásig lit. I staðinn fyrir marengstopp má nota rjómatopp. LANGT BRAUÐ. Brúniðsvínakjötsafganga ásamt sveppum (nýjum eða niðursoðn- um), sáldrið yfir dálitlu hveiti, þynnið með rjóma og chilisósu. Smyrjið franksbrauðsneiðar, sem skornareru langsum eftir brauðinu og setjið maukið þar á, hyljið með rifnumosti. Setjiðí275° heitan ofn, þartil osturinn hefur fengið á sig lit. Berið fram heitt. KJÖTPÆ. í þetta má nota hvaða kjöt sem er. Hnoðið saman deig úr 4 dl af hveiti, 200graf smjörlíki, örlitlu salti og 5 msk af vatni. Fletjið út í ferkantaðan hleif. Á miðjan hleifinn eru látnar kjöt- og ostasneiðar til skiptis í lögum. Síðan eru hornin brotin saman inn að miðju. Tveir langir deigstrimlar eru settir yfir samskeytin. Penslið með þeyttu eggi og bakið við 225° í ca. 20—25 mínútur. Berið fram með salati.

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.