Vikan - 14.10.1976, Blaðsíða 18
Allir snúa sér við og horfa á eftir
honum. Enginn kemst hjá því að
takaeftirþessum reista, karlmann-
lega manni, sem gengur inn gólfið.
Þegarhannbrosirmásjá, aðtennur
hans eru jafn hvítar og óaðfinnan-
legar og jakkafötin, sem hann
klæðist. Andrúmsloftið er töfrum
hlaðið, þvíaðhérer Jack Nicholson
á ferðinni.
Hann er ekki bara myndarlegur
og töfrandi, þessi fyrrverandi skrif-
stofumaður kvikmyndavers, held-
ur er hann líka frábær leikari.
Sögurnar um fortíð hans eru
margar og segja flestar frá mikilli
drykkju og i-ivennafari. En nú hefur
hann hlaupið at sér hornin og hallar
sér bara að einni konu. Hinn nýi
Jack Nicholson er dæmigerður
svartur sauður, sem snúið hefur af
villu síns vegar.
Nicholson hóf frægðarferil sinn
fryrir fimm árum i kvikmyndinni
,,Easy Rider", Þar lék hann
kófdrukkinn lögfræðing. i mynd-
inni ,,Five Easy Pieces" var hann
nálægt því að vinna til sinna fyrstu
óskarsverðlauna. Á hæla þeirrar
myndiar kom svo „Carna! Knowe-
dge" og rokkóperan „Topíjfnv".
Þegar hann lék á móti Fay
Dunaway í myndinni „China-
town", sem sýnd var hér heima
ekki alls fyrir löngu, féil hún fyrir
töfrum hans, eins og svo margar
aðrar á undan henni. Rómantíkin
blossaði meðan á kvikmyndatök-
unni stóð, og Fay hefur lýst því
yfir, að hann sé „undursamlegur,
ómótstæðilegur, en jafnframt
vonlaus og með sjúklegt skop-
skyn."
Ásamt öllum þeim tómu bjór-
flöskum, sem Jack hefur skilið
eftir sig, hafa höfundar slúður-
dálkanna gert sér mikinn mat úr
ástarlífi hans. Nú þarf hann ekki
lengur að berjast við að koma
sjálfum sér á framfæri, heldur
þveröfugt. Gagnrýnendur hafa
lofsungið hann og ekki síst nú eftir
að hann fékk óskarsverðlaunin
Jack Nirholson með fyrrverandi eiginkonu sinni Söndru Knight og dóttur þeirra, Jennifer.
sem besti leikari ársins fyrir leik
sinn í kvikmyndinni „One Flew
over the Cuckoo's Nest". Kvik-
myndaframleiðendur halda því
statt og stöðugt fram, aö hans
muni ætið verða minnst sem eins
af bestu leikurum sögunnar.
Frægð hans má líka mæla í
pokum aðdáendabréfa.
Aðdáendur hans hafa tekið
hann í guðatölu í dag, en hvað
verður á morgun?
Jack Nicholson glottir eins og
honum er tamt og segir: — Hvers
vegna að spyrja slíks. Er ekki best
að njóta frægðarinnar, meðan hún
gefst?
Flestum gæti dottið í hug, að
maður eins og Nicholson gæti
valið úr kvenfólki, en sé hann
spurður að því, hristir hann bara
höfuðið.
Það eitt að þú ert kvikmynda-
Meó Oliver Reed I kvikmyndinni \The Specialist.
18 VIKAN 42. TBL.