Vikan - 02.12.1976, Side 5
JÖLAKRANS MEÐ
SESAMFRÆJUM
(Forsíðumyndin)
50 gr pressuger (5 tsk þurrger)
1/2 1 mjólk
1/2 tsk salt
1 egg
150 gr smjör eða smjörlíki
ca. 11/21 hveiti
egg til penslunar
sesamfræ.
Útbúið gerdeig á venjulegan máta
og látið lyftast um helming. Hnoðið
saman og mótið annnaðhvort ca. 50
bollur (rúnnstykki) eða 3 — 4
kransa. Látið lyfta sér á bökunar-
plötunni. Penslið með sundurslegnu
eggi og stráið sesamfræum ríkulega
yfir. Klippið hök í kransinn og
brjótið til beggja hliða. Sesamfræin
hafa hnetukennt bragð og verða
stökk og bragðgóð við baksturinn.
Kælið alveg og látið síðan í fryst-
inn.
HAFRAMAKKARÓNUR
250 gr smjör eða smjörlíki
250 gr púðursykur
1 egg
200 gr hveiti
125 gr haframjöl
Hrærið smjör og sykur vel. Setjið
eggið saman við og að siðustu hveiti
og haframjöl. Mótið með teskeið á
plötu og þrýstið vel niður. Bakið við
175° þar til makkarónurnar verða
gulbrúnar.
SULTUSNITTUR
120 gr hveiti
2 msk sykur
1 tsk lyftiduft
125 gr smjör eða smjörlíki
2 msk kalt vatn
ca. 1 1/2 dl þykk sulta
Þurrefnunum blandað saman. Mylj-
ið smjörið saman við, bætið vatninu
í og hnoðið rösklega saman. Rúllið
deiginu i lengjur ca. 2 1/2 sm i
þvermál. Setjið á bökunarplötu og
þrýstið rauf niður í lengjurnar eftir
miðjunni og fyllið með sultu. Bakið
við 175° þar til það verður ljósgult.
Skerið síðan á ská, þegar lengjurnar
hafa kólnað aðeins.
SVESKJUKÖKUR
Ca. 225 gr steinlausar sveskjur
1 1/2 dl heilhveiti
2 1/4 dl hveiti
1 tsk lyftiduft
1 1/2 dl sykur
125 gr smjörlíki eða smjör
1 egg.
Sveskjurnar soðnar mjúkar í litlu
vatni. Búið til mauk úr þeim ef til
Eldhús
Yikunnar
UMSJÖN:
DRÖFN
FARESTVEIT
vill með dsditlu af soðinu. Maukið ó
að vera þykkt. Blandið saman
þurrefnunum, myljið smjörið sam-
an við, setjið eggið útí, hnoðið
deigið slétt, og gerið það fljótt.
Skiptið deiginu í tvennt, fletjið út 2
ferhyrninga 40X40 sm og setjið á
bökunarplötuna með maukinu á
milli. Bakið við 175°, þar til
kökumar eru fallega brúnar.
Skerið síðan í ferninga, þegar
kökurnar hafa kólnað aðeins.
OPNU-
RUGLINGUR
í 48. TBL.
Við frágang 48. tbl. urðu þau
afleitu mistök, að opnur á 4—5
og 44—45 í litaformi víxluðust,
og var of seint úr að bæta,
þegar mistökin urðu Ijós. Rugl-
ingurinn er að vísu hverjum
manni augljós, þegar blaðinu
er flett, þannig að naumast er
hætta á, að hann valdi neinum
misskilningi. En það er auð-
vitað engin afsökun fyrir slæm-
um mistökum, og lesendur eru
beðnir velvirðingar.
„Smjörlíkió sem allir þekkja”
SILFUR-
SKEIFAN
BORÐSMJÖRLÍKI
49. TBL. VIKAN 5