Vikan

Eksemplar

Vikan - 02.12.1976, Side 7

Vikan - 02.12.1976, Side 7
KRYDDKÖKUR Notið sömu uppskrift og i sultu snitturnar, en blandið saman við hveitið 1 tsk af kardimommum og 1 1/2 tsk af kanil. Rúllið helming deigsins í lengju ca. 5 sm í þvermál og kælið. Skerið i þunnar sneiðar, sem penslaðar eru með eggjahvítu og söxuðum möndlum stráð yfir. Hinn helmingur deigsins rúllaður í lengju, sem er 3 sm i þvermál. Skerið í bita, sem siðan er þrýst á með gaffli. Kökurnar bakaðar við 175°, þar til þær eru fallega ljósbrúnar. VATNSDEIG 1/4 1 vatn 125 gr smjör eða smjörlíki 125 gr hveiti 4 litil egg (mega ekki vega meira en 200 g) Sjóðið saman vatn og smjör. Takið pottinn af hitanum og hrærið hveitið saman við. Eggin hrærð saman við, eitt í senn. Setjið með skeið á plötuna, bakið við 210° í 20—30 mínútur. Opnið ekki ofninn fyrr en eftir 15 mínútur. Kökumar má frysta og fylla siðan eftir þvi sem á að nota þær. Til dæmis með ostakremi og nota með súpu, eða sem ábæti með rjómfyllingu og flórsykri stráð yfir, eða með vanillu- kremi og súkkulaðibráð yfir. SANDKÖKUR 1 egg 185 gr flórsykur 75 gr saxaðar möndlur 125 gr lint smjör 250 gr hveiti Hrærið egg og sykur vel. Hrærið möndlurnar og smjörið saman við, hnoðið síðan hveitið vel upp í. Látið deigið bíða um stund. Bakið í smámótum við 165°. Losið úr mótunum, þegar kökurnar hafa aðeins kólnað. Gott er að fylla þær með rjóma. JÓLABAKSTUR HÚSMÖÐUR- INNAR, SEM HEFUR LlTINN TÍMA. 4 tegundir úr sama deigi. 350 gr smjör eða smjörlíki ca. 500 gr hveiti (ca. 9 dl) 1 tsk lyftiduft 250 gr sykur (tæpl. 3 dl) 1 egg (eða nokkrar msk. vatn). Myljið smjörið í hveitið blandað lyfitiduftinu. Blandið sykri saman við. Skiptið deiginu í fernt og bragðbætið hvern hluta eftir þvi hvaða tegund er um að ræða, og síðan er deigið hnoðað með eggi eða örlitlu vatni, ef þarf. Gyðingakökur. Engu er bætt í deigið. Búið til aflanga rúllu og skerið deigið í sneiðar eftir að það hefur beðið um stund í kælinum. Setjið á bökunar- plötu og penslið með sundurslegnu eggi. Þrýstið 1/2 möndlu niður í hverja köku. Stráið kanilsykri yfir. Engiferkökur. Blandið 1 /2 tsk engifer með 1 tsk af sykri og hrærið upp í deigið, mótið það í ferkantaða lengju. Kælið og skerið i sneiðar. Penslið með sund- urslegnu eggi og stráið söxuðum sultuðum engifer yfir, sé hann fáanlegur, annars söxuðu súkkati. Vanillukransar. Setjið 30 gr af fintsöxuðum möndl- um og 1 — 2 tsk af vanillusykri saman við. Sprautið i 8 sm lengjur og mótið úr þeim kransa. Finnskar kökur. Setjið 1/2 — 1 tsk af rifnu sitrónu- hýði saman við deigið. Rúllið út í fingurþykkar lengjur. Penslið með sundurslegnu eggi og skerið á ská í litil brauð. Stráið yfir blöndu af fíntrifnum möndlum og grófum sykri (perlusykri). „Hagsýn húsmóöir notar Jurta” jar«* 49. TBL. VIKAN 7

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.