Vikan - 02.12.1976, Blaðsíða 9
""■ <
Stöðvarstjóri á Indlandi hafði
fengið ströng fyrirmæli um að taka
sér ekkert óvenjulegt fyrir hendur
án beinnar skipunarfrá yfirboðara.
sínum. Þess vegna sendi hann
eftirfarandi símskeyti:
„Skrifstofa járnbrautanna,
Kalkútta: Tígrisdýr á stöðvarpalli
etandi lestarstjóra. Sendið fyrir-
skipanir."
★ ★ ★
— Sundurliðaðan reikning.
Takk!
Arthur Schanbel spilaði stund-
um undir fyrir vin sinn, Albert
Einstein, sem lék á fiðlu. Einu sinni
tók Schnabel eftir grófri villu í
taktinum hjá Einstein. ,,Nei-nei-
nei," hrópaði hann. „Albert,
kanntu ekki að telja? 1-2-3-4."
★ ★ ★
„Égerorðindauðleiðá rottunum
hérna/'sagðifrú Hansen matsölu-
konaviðvinkonusína ,frúJensen.
„Hefurðu reynt að kaupa þetta
rottukex handa þeim?" lagði frú
Jensen til.
„Nei, heyrðu nú, góða mín,
hverskonar heimili heldurðu eigin-
lega að ég starfræki? Ég get bara
sagt þér, að ef kvikindin geta ekki
gert sér að góðu sama mat og við
hin, þá geta þau bara soltið mín
vegna."
★ ★ ★
— Gerðu mér greiða. Beindu
skotinu í áttina að sjúkravagn-
inum.
★ ★ ★
„Það varsvo heittá norðaustur-
landi í sumar, að einu sinni sást
hundurelta kött, og þeir röltu báðir í
hægðum sínum með lafandi út úr
sér tunguna."
★ ★ ★
I NÆSTU lflKU
JÖLABLAÐ - 104 SlÐUR - JÖLABLAÐ
Næsta tölublað Vikunnar er okkar árlega jólablað, og nú er það stærra en nokkru sinni fyrr, því auk þess sem
það er tvöfalt stærra en venjulegt blað, þá fylgir því vitanlega Myndasögublaðið sem allir krakkar — frá tveggja
ára til tíræðs — vilja lesa og safna. Og það er fullt af athyglisverðu efni í jólablaðinu. Má þar nefna viðtal við
Auði Laxness, smásögu eftir Guðmund Gíslason Hagalín, sem hann samdi sérstaklega fyrir Vikuna, grein eftir
sr. Bolla Gústafsson í Laufási um Jón Hinriksson á Helluvaði, frásögn af degi í lífi sr. Jóns Bjarman, viðtal við
Emilíu Kofoed-Hansen, sem nú heitir Lyberopoulos og býr i Aþenu, smásögu eftir Anton Tjekhov, appskriftir af
jólasælgæti, jólaföndur og margt fleira. Jólablaðið er 96 síður að stærð og 8 síðna myndasögublað að auki, sem
sagt 104 siðna blað — og hefur aldrei verið stærra.
VIKAN Útgefandi: Hilmir h.f. Ritstjóri: Kristín Halldórsdóttir. Blaðamenn: Guðmundur Karlsson,
Sigurjón Jóhannsson, Aðalsteinn Ásb. Sigurðsson, Útlitsteiknari: Þorbergur Krístinsson. Ljósmyndari: Jim
Smart. Auglýsingastjóri: Ingvar Sveinsson. Ritstjórn, augiýsingar, afgreiðsla og drrifing Síðumúia 12.
Simar 35320-35323. Pósthólf 533. Verð í lausasölu kr. 350. Askriftarverð kr. 3.900 'yrir 13 tölublöð
ársfjórðungslega, kr. 7.370 fyrir 26 tölublöð hálfsárslega eða kr. 13.650 i ársáskrift. Askriftarverð greiðist
fyrirfram. Gjalddagar: nóvember, febrúar, maí, ágúst.
49. TBL. VIKAN 9