Vikan - 02.12.1976, Síða 11
Þessi jólaplata hefur gjörsam-
lega farið fram hjá mér og núna
fæst hún ekki í hljómplötuversl-
unum (allavega ekki í fjórum, sem
ég hef farið í), svo að ég er
ákaflega óhamingjusöm þessa
dagana.
Nú kemur stóra spurningin.
HVAR GET ÉG FENGIÐ PLÖT-
UNA?
Ég vona (samvisku þinnar
vegna) að þú getir gefið mér gott
svar.
Kær kveðja. LínaJó.
Það er svo sannarlega leiðinlegt
að frétta það, að þú sért svona
óhamingjusöm þessa dagana.
Pósturinn sá llka aumur á þér, fór
á stúfana og grennslaðist fyrir um
blessaða jólaplötuna. i hljóm-
p/ötuverslun Fálkans á Laugavegi
24, fengust þær upplýsingar að
platan myndi sennilega fást þar
þegar líða tæki að jólum. Það er
nefnileg venjan, i flestum hljóm-
plötuverslunum, að geyma allar
jólaplötur niðri i kjallara eða uppi á
háalofti og draga þær svo fram í
dags/jósið um jólin. Pósturinn
vonar þess vegna að þú fáir
plötuna áður en /angt um liöur og
getir tekið aftur þina fyrri gleði.
GRUNNSKÓLI/MENNTASKÓLI.
Kæri Póstur!
Mig langar til að biðja þig að
gefa mér nokkrar upplýsingar ef
þú getur. Ég er í 9. bekk
grunnskóla og þá er enginn 4.
bekkur eins og áður. Hvernig er
það, kemst ég beint úr 9. bekk í
menntaskóla? Hvaða skilyrði setia
menntaskólarnir fyrir 9. bekkinga?
Heldurðu að þú vildi segja mér allt
sem þú veist um menntaskóla?
Hvað er húsmæðraskólanám
langt? Geturðu mælt með ein-
hverjum sérstökum? Ég er algjör-
lega óákveðin í því, hvað ég tek
mér fyrir hendur þegar ég hef
lokið skyldunámi. Það getur verið
að ég þurfi að vinna í eitt ár, áður
en ég get haldið áfram í námi.
Viltu því segja mér allt um
fjárhagshliðina á þessu máli líka?
Getur þú komið því á framfæri
fyrir mig þarna í Vikunni, að mig
langar til þess að skrifast á við
stráka fædda 1961 og eldri. Og að
síðustu. Er hægt að lesa eitthvað
úr skriftinni. Með fyrirfram þökk.
Hólmfríður Pálsdóttir.
Því miður getur Pósturinn ekki
gefið þér greinargóð svör við
þessum spurningum þínum Hólm-
friöur mín. Skó/akerfið er, eins og
allir vita, sífelldum breytingum
háð og einmitt á síðustu árum
hefur verið gerð bylting í þessu
kerfi hér á landi. Það er lang
einfa/dast fyrir þig að skrifa ti/
einhvers menntaskóla og biðja um
upp/ýsingar. Þar færðu örugglega
allar þær upplýsingar sem þig
vanhagar um og þá líka um
menntaskólana sjálfa. Mennta-
skólar eru annars hugsaðir sem
undirbúningur fyrir háskólanám
og eru því mjög almenns eð/is.
Þetta hefur samt breyst nokkuð á
síðustu árum og er nú hægt að
velja um fleiri námsbrautir, en það
er þó mjög misjafnt eftir skólum.
Húsmæðraskólanám tekur einn
vetur, en einnig eru á vegum
húsmæðraskólanna haldin þriggja
mánaða námskeið, sem hafa
reynst mjög vinsæl nú i seinni tíð.
Pósturinn vill alls ekki gera upp á
milli húsmæðraskólanna. Þeir eru
allir jafn frábærir. Hér dettur nú
botninn algjörlega úr Póstinum.
Það er vist alveg örugglega ekkert
hægt að segja mönnum um
fjárhagshliðar nú á timum. Þær
eru breytilegar frá degi til dags ef
svo má að orði komast. Þú verður
bara að spara eins og þér er
frekast unnt efþú ætlar þér i skó/a
siðar meir. Beiðni þinni verður
komið á framfæri i dálkum penna-
Hafdís Magnúsdóttir, Miðfelli 5,
Hrunamannahreppi, Árn. óskar
eftir pennavinum á aldrinum
14—16 ára, sérstaklega strákum,
Áhugamál margvísleg.
Svanhildur Skúladóttir, Miðfelli
4, Hrunamannahr., Árn. óskar
eftir pennavinum á aldrinum
13— 15 ára. Sérstaklega strákum.
Áhugamál margvísleg.
Hulda Ágústsdóttir, Birtinga-
holti 4, Hrunamannahr., Árn.
óskar eftir pennavinum á aldrinum
14— 16 ára. Sérstaklega strákum.
Áhugamál margvísleg.
TELFT Á TÆPASTA VAÐ.
Keith Carr fyrrverandi orrustu-
flugmaður aðstoðar skæruliða,
sem berjast fyrir frelsi föður-
landsins. Sekúntubrot ráða úr-
slitum um líf eða dauða. Það
þarf karlmennsku og klókindi i
þeim hildarleik. Snilldarlega
skrifuð bók, sem verður lesin I
einni lotu.
Margfaldur metsöluhöfundur.
HJARTA MITT HRÓPAR Á
ÞIG.
Ástarsaga, sem gerist að hluta í
Agadir, þar sem jarðskjálftar og
flóðbylgja orsökuðu miklar
hörmungar 29. febr. 1960. Ástir
og dularfullir atburðir fylla síður
bókarinnar. Það sýnir best vin-
sældir þessarar bókar eftir Erling
Poulsen, að hún hefur verið
endurprentuð oftsinnis.
UPP Á LÍF OG DAUÐA.
Sjö fallhlífahermenn svífa niður í
frumskóga Burma, þar sem
japanir höfðu búið um sig.
Fallhlífasveitin átti að sprengja í
loft upp þýðingarmikla brú.
Þetta er hörkuspennandi frásögn
um ótrúlega hreysti og karl-
mennsku.
Höfundurinn er sjálfur meistar-
inn Francis Clifford.
ÖRLÖG OG ÁSTARÞRÁ.
Cecilia Walters elskaði Hákon
Borg, en óttaðist hann samtímis.
Hann var faðir barnsins, sem
hún hafði gefið frá sér. Hver var
dularfulli maðurinn í svarta
frakkanum? Bodil Forsberg skrif-
ar enn sem fyrr heillandi og
spennandi bók um dularfull ör-
lög og heitar ástríður.
HÖRPUÚTGÁFAN
Akranesi.
49. TBL. VIKAN 11