Vikan - 02.12.1976, Qupperneq 12
Steinblómið hans C
og bórskaffið hans
Hvað gera karlmenn, þegar þeir bjóða
vinum til veislu?
Jú, þeir leita flestir á náðir kvenna,
því þeir telja sig alls ófæra um að
annast slíka hluti.
En þeir sem Vikan hitti í
Húsmæðraskóla Reykjavíkur, verða
ekki í vandræðum með matseld og
veisluhöld í framtíðinni.
Væri ég um tvítugt núna, þá held
ég helst ég færi í Húsmæðra-
kennaraskólann og tæki svo að mér
að kenna karlmönnum að kokka.
Mikil lifandis skelfing virðist það
vera þakklátt starf. Um það sann-
færðist ég, þegar Vikunni bauðst að
koma á síðasta námskeiðskvöldið hjá
karlmönnunum, sem Stella Skafta-
dóttir hafði verið að kenna ýmsar
eldhúslistir tvö kvöld í viku um
fimm vikna skeið.
Þeir teyguðu hrifnir hvert orð af
hennarvörum, hlýddu hverri henn-
ar bendingu (einn og einn þó með
vinsamlegum mótbárum), og þegar
sest var að borðum til að njóta
veisluréttanna, kom í ljós, að við
diskinn hennar Stellu beið lokkandi
böggull með laglegri slaufu, og áður
en upp var staðið var búið að halda
þrjár ræður og afhenda Stellu
blómvönd og kyssa hana í bak og
fyrir. Karlmenn!!!
Jakobina Guðmundsdóttir skóla-
stjóri Húsmæðraskóla Reykjavíkur
fræddi okkur á því, að þessi
sérnámskeið fyrir karlmenn hefðu
byrjaði hjá skólanum haustið 1975
og eiginlega verið hugsuð sem
tillegg skólans til kvennaársins.
Finnst okkur það vel til fundið, því
seint næst jafnrétti kynjanna, nema
bæði verði jafnvig á heimilunum.
Húsmæðraskóli Reykjavíkur hefur
um árabil kennt mikið í formi
námskeiða, og karlmönnum hafa
staðið þau opin, en það hefur gengið
ákaflega erfiðlega að fá þá til að
sækja þau. Fyrir tæpum fjórum
árum þótti þátttaka eins karlmanns
í matreiðslunámskeiði slíkum tíð-
indum sæta, að Vikan sagði frá í
máli og myndum (10. tbl. 1973).
Stjóm skólans virðist nú hafa
Jafnvel þrautþjálfaðir matreiðslu-
kennarar þurfa stundum að líta á
uppskriftirnar.
hitt á réttu leiðina til að fá karl-
mennina á námskeið með því að
miða þau eingöngu við hið „sterk-
ara” kyn. Aðsóknin sýnir, að
karlmenn kjósa heldur það fyrir-
komulag.,, Ég hefði aldrei treyst mér
ó svona námskeið með kenfólki, það
hefur þetta allt í sér, og ég hefði
haft það á tilfinningunni, að ég
stæði þeim langt að baki. En hér
erum við allir jafnvígir”, sagði einn
þátttakenda á námskeiðinu, og
fleiri tóku undir það.
„Fljótur maður, ég er að brenna
mig á puttunum”, sagði Gunnlaug-
ur við ljósmyndarann. Svuntan er
af dóttur hans.
12 VIKAN 49.TBL.