Vikan

Eksemplar

Vikan - 02.12.1976, Side 14

Vikan - 02.12.1976, Side 14
Hákarl og brennivín Soðnar gellur og nýjar kartöflur Sviðasulta og rófustappa — og þá var gert hlé á áti og farið í skoðunarferð um Reykjavík. En þegar heim kom fengu lögfræðing- arnir 30: Hangikjöt og Gunnsusalat, sem er viðfrægt salat, kennt við merkilegan kvenmann, sem kokkaði meðal annars fyrir Georgiu forseta- frú, og Gunnlaugur gaf það ekkert eftir, að ég gæfi lesendum Vikunnar uppskriftina. GUNNSUSALAT — fyrir 20 manns — 600 g mæjones, sykur (9—10 msk.), 1/2 tsk. pipar, 1. msk. Worchester- sósa, 1/2 msk. edik, 2 msk. franskt sinnep, 1/2 msk. salt, piparrót á hnífsoddi. Þetta er allt hrært saman daginn fyrir veislu, en skömmu áður en neyta á salatsins, er blandað saman við sósuna 1 pela af þeyttum rjóma og 2 kg af soðnum kartöflum. Bragðast vel með hangi- kjöti, skinku eða uxatungu. Nú, þetta salat er fyrir 20 manns, enda var Gunnlaugur þegar búinn að seðja lögfræðingana 30 allvel, áður en að Gunnsusalati kom. En HRAÐGRILL 3 TÆKI I EINU Handhæg tæki, sem fer lítið fyrir. ★ Mjög auðvelt að þrífa. ■fr Tæki, sem vert er að sjá. LRTTilg UMBOÐIÐ næsta dag bauð hann svo 55 manns í leyfamar af öllu saman, og fara ekki sögur af öðru en að allir hafi orðið vel mettir af. Ég lét í ljósi undrun fyrir því, að Gunnlaugur skyldi telja sig eiga erindi á matreiðslunámskeið með aðra eins reynslu i veisluhöldum. En hann kvaðst hafa lært mikið og vera nú færari en nokkru sinni fyrr að halda veislu. Ég þorði nú ekki að trufla Gunnlaug frekar við stroganoffið og sneri mér að næsta manni. Sá kvaðst heita Tómas Waage og vera veggfóðrarameistari. Ég spurði, hvað hefði dregið hann á þetta námskeið. Hann kvaðst hafa gaman af að elda, hann hefði verið kokkur til sjós síðastliðna 9 mánuði og verið meira en litið leiður orðinn á brúnu sósunni. Tómas var mjög ánægður með námskeiðið, sagði, að þeir hefðu fengið þarna góða undir- stöðu og 20—30 uppskriftir af aðalréttum og lært sitthvað um salöt og annað meðlæti, bakstur og fleira. Tómas tók það fram, að honum þætti ekki dýrt að borga 6 þúsund krónur fyrir þetta allt saman, þvi að með því borguðu þeir ekki aðeins kennsluna og uppskriftirnar, sem þeir ættu áreiðanlega oft eftir að grípa til, heldur einnig hráefnið, og svo borðuðu þeir alltaf þessa listi- legu rétti að loknu hverju nám- skeiðskvöldi. Þessu var kröftuglega samsinnt af öðrum þátttakendum, en þeir voru, auk þeirra, sem þegar eru nefndir: Kolbeinn Gíslason tæknifræðing- ur, Ingimundur Hjartarson skrif- stofumaður, Aðalsteinn Eiriksson yfirkennari i Kvennaskóla Reykja- víkur (við nám í Háskólanum í vetur), Gísli Baldur Jónsson starfs- Það var glatt ó hjalla við borðið. eina og sjá má á þessari mynd. Nemendur Aðalsteins Eirikssonar i Kvennaskólanum hljóta að fyllast aðdáun, þegar þeir sjó, hvað hann tekur sig vel út við eldhússtörfin. maður hjá Olís, Gunnar Stefánsson dagskrármaður hjá Ríkisútvarpinu (fyrrum þulur par) og^ Gunnar Halldórsson byggingaverkamaður. Einn vantaði í hópinn þetta kvöld, örn Jóhannesson starfsmann hjá Rafha, en starfsmenn Rafha voru einmitt að halda upp á 40 ára afmæli fyrirtækisins þetta sama kvöld. Ekki hafði þó veisluglaumur- inn sá glapið örn meira en svo, að hann sendi Stellu og félögum skeyti með þakklæti fyrir samveruna. Það var sérlega skemmtilegt að fylgjast með námskeiðinu þessa kvöldstund. Samkvæmt lýsingum var töluvert annar svipur á þátt- 14 VIKAN 49. TBL.

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.