Vikan

Eksemplar

Vikan - 02.12.1976, Side 24

Vikan - 02.12.1976, Side 24
Skin shampoo 41 Clompexion milk 41 Medicated soap 41 Moisturistng milk 41 Ante acne cream 41 Solution 41 „Litu þeir í áttina til okkar?” „Já, rétt sem snöggvast.” „Æ, hvaða máli skiptir það?” sagði Jo og reyndi að hafa hemil á kvíðanum, sem var að hrannast upp innra með henni. , ,Hið eina sem þeir hafa getað séð er dökkhærð, kona sitjandi nálægt tveimur rútubíl- stjórum, önnur rauðhærð inni í miðjum krakkahóp og svo þrjár nunnur. Þeir hafa áreiðanlega ekki séð gulbrúna Fordinn. Okkur er því óhætt að vera rólegar og bíða eftir Dave, en leyfa Milan og Jan að aka að landamærum Sviss.” En þeir þurfa ekki að fara mjög langt til þess að komast að raun um, að þeir hafi misst af okkur Og þeir munu snúa við og þrautkanna hvert einasta útskot meðfram veginum. Það væri annars gaman að vita hversu mörg þau eru á leiðinni norður á bóginn. „Hvenær heldurðu að David komi?” „Eftir hálftíma eða ef til vill fyrr.” Eða seinna, hugsaði hún, en vildi ekki hafa orð á þvi. „Og þegar á allt er litið getum við verið ánægðar. Þetta er ágætis felustað- ur” Hún leit i áttina að bílstjór- unum og þeir horfðu ó móti. Hún brosti og rétti fram Chiantiflöskuna „Gjörið svo vel,” sagði hún og ruddi út úr sér einhverju á itölsku. Þeir þóðu vínið og þökkuðu kærlega fyrir sig. Já, samsinntu þeir, þetta var ágætur staður til þess að eyða eftirmiðdeginum á. Voru nokkrir aðrir samsvarandi staðir norðar? Nei, svöruðu þeir, þetta er sá eini á þessum slóðum. Já, vegurinn er tiltölulega beinn og útsýni til allra átta, þangað til komið er i fjalla- skörðin. Þegar hún hafði fengið þessar upplýsingar hjó þeim lét Jo þeim það eftir að njóta vinsins. „Nú,” sagði Jo er hún hafði lokið við að þýða samræðurnar fyrir Irinu, „við getum þá ótt von á þeim fyrr en varir. Ef þetta eru á annað borð Milan og Jan. Þeir eru ekki lengi að leita af sér allan grun á þessum vegarkafla. En við skulum ekki verða felmtri slegnar, þó að þeir komi hingað og svipist um. Þeir eru visir til þess og þeir munu ekki endurtaka sömu skekkjuna.” „Og hvað svo?” Undarlegt bros lék um varir Irinu. Já, hvað svo? Jo reyndi að virðast kærulaus. „Þeir staldra ef til vill við hér og bíða þess að við förum. Auðvitað munu þeir líta sakleysislega út. Þeir halda að við vitum hvorki af þeim né hvíta Fíat- inum. Og við munum taka þátt í leikaraskapnum og látast halda að þeir séu venjulegir ferðamenn. En um leið og David kemur þá munum við snúa við blaðinu og reyna að stinga þá af.” En hvernig, hugsaði Jo. Á þessu augnabliki langaði hana mest til þess að hlaupast á brott. En þetta eru kjánaleg viðbrögð, sagði hún við sjálfa sig, um leið og hún leit í kringum sig og þóttist vera að dást að útsýninu. Þær sátu þarna i skjóli norðan- áttarinnar, sem lék um dalinn endilangan. Rétt hjá þeim reis SOLtirtON innoxa innoxa Innoxa 41 er framleitt fyrir alla sem vilja stemma stigu viö hinu alkunna húö- andamáli. Heildsölubirgðir KRISTJÁNSSON HF. Sími: 12800, 14878. Leitiö nánari upplýsinga í snyrtivöruverslunum og apótékum. að neinn myndi taka eftir slíku. En Bohn gerði það. Hún vissi það núna. Samt jafnaði hún sig fljótt eftir þetta áfall og hún varð undar- lega róleg. Hún fylgdist með þeim hluta vegarins, sem var sjáanlegur. Hún hlustaði á Jo tala reip- rennandi ítölsku, nunnurnar svara i einum kór og masið i krökkunum. En jafnframt hafði hún auga með bílunum sem fóru hjá. Einn var blár, annar brúnn, só þriðji lika blár og einn grár. Aftur og aftur spurði hún sjálfa sig sömu spum- ingar. Af hvaða sökum var enn verið að elta hana? Mark Bohn hafði hringt til Vínar fyrir mörgum klukkustundum síðan. Skilaboðum hans hlaut að hafa verið komið þaðan og til Prag, en síðan frá Prag til Merano. Þá hafði Ludvik komist að raun um, að áfangastaður hennar var Sviss. En til hvers vom þeir þá enn að elta hana? Auðvitað gat það hugsast að Jo skjátlaðist. Jo var raunar að fá hana til þess að halda það núna. Ef til vill hafði hviti bíllinn þegar staðnæmst einhvers staðar. Ef til vill var hann aðeins... En svo kom hún auga á hann. Hann var á mikilli ferð. Hún sat grafkyrr og horfði á veginn, sem var nú auður aftur. „Alveg eins og ég hélt,” sagði Jo er hún kom til baka. „Þetta em munaðarleysingjar, sem hafa fengið að fara í stutta skemmtiferð. Grey- skinnin.” En svo þagnaði hún i miðjum klíðum. Irina horfði eins og dáleidd á veginn. „Sástu hann?” sagði hún vantrúuð. „Jó,” sagði Irina og var nú aðeins búin að jafna sig. „Ég sá hann.” „Hvitur Fíatbíll?” „Ég þekki ekki eina bílategund frá annarri. En hann var hvítur. Tveir menn sátu frammí.” „Ertu að segja satt?” sagði Jo vantrúa. Hún leit aftur á munaðar- leysingjana. Þeir virtust þó alténd hamingjusamir. En hún gat ekki fyrirgefið sjálfri sér heimskuna. Þetta litla góðverk gat orðið þeim dýrkeypt. Hún hefði átt að vita að það er til fólk i þessum heimi, sem gerir ekki greinarmun á snúð og pönnuköku. En svo herti hún upp hugann. „En stansaði bíllinn eða hægði á sér?” „Nei. Hann var á miklum hraða.” FJÖLSKYLDA BÓLUMORÐINGJANS Solution 41, sem oft hefur verið nefndur ,,Bólumoröinginn", tyrir þann eiginleika aö ,,drepa" bólur. Solution 41 áJíka góöa ættingja, sem eru allar vörur frá Innoxa merktar 41. Innoxa 41 vörurnareru sérstaklega geröarfyrirtáninga og aöra þá sem hafa mjög feita húð og bólótta. Innoxa 41 eru sótthreinsandi vörur. Face mask 41 Foundation 41 Cover Stick 41 Hair shampoo 41 Spray deodorant 41 LNjNOXA medicated soap moiBturtsmg mtik skih shampoo ami-dandmn |>ft>tein caoditiaaing hatr shampoo > finícd foundatíoa g 7Hl fFHftCT MATT MAKt-íff 9 HJR GBEASV DllOCUU $WNS compttíxioa miífe 24 VIKAN 49. TBL.

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.