Vikan - 20.10.1977, Blaðsíða 3
Einar S. Einarsson, forseti Si,
færir Jóni hringinn fagra, en hann
var faiinn írósavendi. 77/ hægri er
Jón að þakka Stefáni Björnssyni,
formanni Taflfélags Reykjavíkur,
en féiagið gaf Jóni forláta
tafimenn úr bronsi.
þegar maður beitir hugsuninni til
hins ítrasta — mér persónulega
veitir til dæmis ekkert af tveimur
og hálfum tíma á móti góðum
skákmanni.
— Geturðu nefnt einhvern
uppáhaldsskákmann?
— Nei, það eru svo margir....
— Viltu nefna fimm?
— Tal, Smyslov.... jú, Fischer
(Nú kom löng þögn)...Kortsnoj.
námi. Ég sé núna, að ég hef haft
mjög gott af því að fara yfir
skákirnar þeirra Spasskýs og
Horts með Smyslov, en við
skýrðum skákirnar fyrir tímaritið
Skák. Flestar skákirnar voru
leiðinlegar og ég hefði ella ekki
gefið þeim neinn sérstakan gaum.
Kannski hef ég lært mikið af þeim
einmitt vegna þess að þær voru
leiðinlegar, hver veit? Ég vil ekki
einblína eingöngu á teóríuna, þótt
nauðsynlegt sé að vera vel að sér í
byrjunum. Maður á ekki að læra
skák eins og páfagaukur — skák
er fyrst og fremst hugsun.
— Er tímahrakið nokkuð að
hrella þig?
— Ég lendi yfirleitt ekki í miklu
tímahraki og tókst t.d. nokkuð vel
að halda tímahrakshættunni frá í
heimsmeistaramótinu. Annars er
ekkert óeðlilegt við tímahrakið,
(Enn lengri þögn).... kannski ég
endi þá á Karpov!
— Hvað er framundan hjá þér?
— Ef til vill tek ég þátt í
Evrópumeistaramóti fyrir unglinga
20 ára og yngri, sem haldið verður
í Hollandi um áramótin og svo
verð ég örugglega með í Reykja-
víkurmótinu í febrúar.
— Kom Frökkunum mikið á
óvart þegar Ijóst varð að þú áttir
möguleika á heimsmeistaratitl-
inum?
— Nokkuð mikið, en þeir höfðu
áður fengið upplýsingar um stiga-
fjölda hjá keppendum og ég átti
að eiga möguleika samkvæmt því.
Ég held að það hafi vakið mesta
athygli að smáþjóð eins og island
gæti blandað sér í baráttu milli
stórþjóðanna, Sovétríkjanna og
Bandaríkjanna og hreppt fyrsta
sætið. S.J.
Ta/ið frá vinstri: Jóhann Þ. Jónsson, ritstjóri Skákar, Guðmundur
Sigurjónsson, stórmeistari, Stel/a Óskarsdóttir. Ennfremur grillir í
Steinunni Jóhannesdóttur, leikkonu og Einar Kari Haraldsson,
fréttastióra ÞjóðvHjans.
Talið frá vinstri: Sigurður Sigurðsson, fréttamaður, frú Alda Snæhólm,
Guðmundur Arnlaugsson. rektor og Sissa í Ísafold, eiginkona Sigurðar.
Maðurinn í miöið, Heimir Hannesson virðist skipta öllu máli_það kom
Hka fram í fréttum, nokkrum dögum síðar, að Ferðamálaráð, en Heimir er
framkvæmdastjóri þess, býðst tii að styrkja Skáksambandið ef það
hyggst taka að sér næsta heimsmeistaraeinvígi í skák. A myndinni eru
einnig, talið frá vinstri: Gís/i Árnason, Matthias Johannessen, Einar S.
Einarsson, Sigurður Sigurðsson, Högni Torfason, Ólafur Ragnarsson og
Jóhanna Ingólfsdóttir.
\
Guðbjartur Guðmundsson (snýr baki í myndavélina) er hér að segja
eitthvaö skemmti/egt við þá Jón L. Árnason, Runótf Þórarinsson,
deildarstjóra í menntamá/aráðuneytinu og Þorstein Þorsteinsson. Á bak
við þá sést Matthías Johannessen, ritstjóri Morgunblaðsins og Pétur
Guðfinnsson, framkvæmdastjóri Sjónvarpsins. Ennfremur sér á bak
Jóhönnu Ingólfsdóttur, eiginkonu Matthiasar.
Menntamálaráðherra i hópi forystumanna í skákhreyfingunni, talið frá
vinstri: Björn Hal/dórsson frá Taflfélagi Kópavogs; Þorsteinn
Þorsteinsson, kennari og æskulýðsfu/ltrúi Si; Vilhjá/mur Hjálmarsson,
menntamá/aráðherra; Jón L. Árnason, heiðursgestur kvö/dsins; Einar S.
Einarsson, aða/bókari í Samvinnubankanum og forseti Si; Kristin
Guðjohnsen starfar hjá Flugleiðum og er i varastjórn Si; Högni Torfason,
skrifstofustjóri og varaforseti Sl; Þráinn Guðmundsson, skó/astjóri og
ritari Si; Guðbjartur Guðmundsson, /eigubí/stjóri, en hann hefur setið
lengst viðstaddra i stjórn Si; Sigfús Kristjánsson, tollvörður, í varastjórn.
42. TBL. VIKAN 3