Vikan - 20.10.1977, Blaðsíða 36
Cary
Grant
CARY GRANT, sjarmörinn mik/i
með spékoppana frægu, er
orðinn 73 ára og skilinn að
skiptum við hvíta tjaidið — og
konurnar einnig. Hann
viðurkennir hreinskilnislega, að
hann hafialltaf verið hræddur
við konur, vegna þess að þær
hafi alltaf brugðist honum.
Þegar hann skildi við þriðju konu
sina, Betsy Drake, fór hann í
meðferð hjá sálfræðingi, og eftir
100 skipti hjá honum, taldi hann
sig hafa komist að þvi, að undir-
rótin að ö/lum hans raunum væri
það áfall, sem hann varð fyrir 12
ára að aldri, þegar móðir hans
var lokuð inni á geðveikrahæli.
Cary sýndi móður sinni
36 VIKAN 42. TBL.
umhyggju og ástúð ti/
dauðadags, en hún afneitaði ást
hans og hafnaði gjöfum hans.
Cary taldisig hafa unnið bug á
vandamálum sínum, þegar hann
kvæntist fjórðu konu sinni,
gamanleikkonunni Dyan
Cannon, árið 1965. En eftir
aðeins eins árs hjónaband fór
Dyan frá honum með einkabarn
hans, /it/u dótturina Jennifer.
Þrátt fyrir mikinn málarekstur
fær hann aðeins örsjaldan að
njóta samvista við dóttursína.
En þótt Cary sé nú einmana og
yrirgefinn 73 ára kart, heldur
hann sér vel, eins og sjá má, og
reynirað dylja hjartasárin á bak
við brosið fræga.
HÚN HEITIR ANNA og hefur
/eikið í nokkrum svokölluðum
djörfum kvikmyndum. Faðir
hennar hefur líka komið nálægt
kvikmyndum, því hann er enginn
annar en hinn frægi Ingmar
Bergman. Móður önnu hét
Helene, en samband þeirra