Vikan - 20.10.1977, Blaðsíða 13
að hann sé undir reglulegri pressu.
Hann er alltaf eins."
David Frost uppsker vel, og
hann vill njóta ávaxta erfiðis síns.
Hann á 8 milljón króna Bentleybíl,
glæsihýsi í Knightsbridge-hverfinu
í London, vel birgan vínkjallara og
fullan skáp af vönduðum fötum.
Einu sinni bauð hann 60 vinum
sínum flugleiðis til Bermuda til
þess eins að snæða þar með sér
hádegisverð. Og hvar sem hann
fer leitar hann uppi bestu veitinga-
staðina.
David Frost hefur löngu náð
þeim frægðartindi, sem sjónvarpið
hefur upp á að bjóða. Hvað skyldi
hann nú ætlast fyrir? þeið margra,
sem frægir hafa orðið á svipaðan
hátt, hefurfyrr eða seinna legið út
í pólitík, en David þvertekur fyrir,
að hann hafi áhuga á þeirri braut.
Bumir halda því þó fram, að hann
ætli sér ekkert minna en Down-
ingstræti 10 í London (bústað
forsætisráðherra Bretlands).
David Frost býst ekki við að
yfirgefa sjónvarpið í bráð. Hann er
viss um, að sjónvarpið hafi upp
á marga ónýtta möguleika að
bjóða — en hvar þeir eru, er hann
ekki viss um enn. Hann veit það
eitt, að hann ætlar að nýta sér þá.
Á meðan lætur hann sér nægja að
vinna að hinum „hefðbundnu"
þáttum sínum, auk hliðarverkefna
eins og 2 þúsund milljón króna
mynd um skrímslið í Loch Ness og
13 þáttum um Sir Harold Wilson,
fyrrum forsætisráðherra Breta —
hvort tveggja hin áhugaverðustu
efni.
1 Davids Frost
Hér tekur Constantine, 14 ára
sonur Caroline Cushing skyndi-
mynd af móður sinni og David
Frost.
skilnaði Caroline og manns hennar
bjuggust flestir,sem til þekkja, við
því, að hún og David Frost, sem
nú er 38 ára, myndu ganga í
hjónaband. Ekkert bendir þó til
þess enn, enda segist David Frost
harðánægður með þetta eins og
það sé og í öllu falli sé nægur tími
til stefnu. Caroline er honum
sammála og segir, að þau vilji ekki
rjúka út í neitt í fljótfærni. Hún
segist elska hann, þau séu
hamingjusöm saman og hún setji
hið góða samband þeirra ofar
hjónabandi.
Caroline reynir að fylgja Frost,
hvert sem hann fer. Til dæmis
dvaldist hún með honum í Los
Angeles þær 10 vikur, sem hann
vann að viðtalsþáttunum við
Nixon. Hún segist geta verið
ferðbúin ,,á tveimur sekúndum,"
ef á þurfi að halda, og það sjást
ekki á henni nein þreytumerki,
þrátt fyrir allan þeytinginn. David
þykir aftur á móti eldast ískyggi-
lega hratt í útliti. Hann viðurkennir
þó ekki, að hann finni á sér nein
þreytu- og streitumerki, og sé
hann spurður, hvaðan baugarnir
undir augunum komi, og hvað sé
orðið að nöglunum, hlustar hann
ekki á það. Hann segist vera í fínu
formi.
David Frost virðist vissulega
vera í fínu formi fyrir framan
sjónvarpsmyndavélina, og honum
tekst að ná út úr fólki ýmsu, sem
öðru sjónvarpsfólki tekst ekki að
fá fram. Caroline bendir á, að
David hafi lag á að draga fólk út úr
þeirri skel, sem umlykur flesta, og
honum takist að láta því líða vel í
návist sinni. Hann fari eins að við
móður hennar og við Nixon.
Sjálfur segir David í þessu
sambandi: „Sólskin og hlýja eru
líklegri til að fá fólk til að varpa af
sér vetrarklæðum heldur en
stormur. Það, sem verkar í
sjónvarpi, verkar einnig í daglegu
lífi. Með því að fylgjast með David
Frost í sjónvarpinu fæst nokkuð
glögg mynd af hinum eiginlega
David Frost."
Libby Prudie, sem verið hefur
einkaritari og hálfgerður lífvörður
David Frost í þrjú ár, segir um
hann: „Ég trúði því ekki, að David
gæti alltaf verið svona elskulegur
— og það hlyti að verða hræðileg
stund, þegar upp úr syði hjá
honum. En það hefur ekki gerst
enn. Maður verður aldrei var við,
42. TBL. VIKAN 13