Vikan - 20.10.1977, Blaðsíða 37
FORSÍÐAN
FORSÍÐAN En hann Jim er ekki
alltafað hugsa um bíla á
fleygiferð, eins og
forsíðumyndin okkar sannar.
Fyrirsætan á myndinni er Brynja
Norðquist, en hún er ein af eftir-
sóttustu fyrirsætunum
hérlendis. Vikan birti viðtal við
hana fyrir einu ári, en hér sjáum
við hana með hundinn sinn,
hann Lúkas. Og þessi fallegi og
friðsamlegi gamti bíll fullkomnar
svo myndina.
r
A
FLEYGI
FERÐ
LJÓSMYNDAFtA VIKUNNAFt,
Jim Smart, klæjaði auðvitað í
fingurna hér á dögunum, þegar
landsins mestu ökuþórar
geystust um vegi og vegleysuri
/engstu rallykeppni, sem haldin
hefur verið hérlendis. Hann var
nefnilega eitt sinn aðstoðar-
ökumaður Árna Bjarnasonar,
sem lesendur Vikunnar kannast
við úr bi/aþáttunum, og erþví
ekkiað undra, þótt um hann fari
fiðringur, þegar annað eins erað
gerast. En heldur en ekki neitt
fór hann og tók þessa ágætu
myndafÁrna, þarsem hann
geystist á bílnum sínum í eina
ána á leiðinni. Árni og fé/agi
hans voru ekki svo lánsamir að
hreppa eitt af efstu sætunum, en
eins og landslýð mun kunnugt,
urðu þeir bræðurnir Ómar og
Jón Ftagnarssynir í fyrsta sæti.
Ingmars slitnaði, þegar Anna var
þriggjaára, og aðeins þrettán
ára var Anna komin ti/ Englands
að freista gæfunnar. Anna hefur
alltaf vitjað fara sínar eigin leiðir,
rétt eins og faðirinn, þóttleiðir
þeirra liggi ekki beint saman.
Ung eignaðist hún soninn Niki,
og hún er reyndar farsællega gift
föður hans, Peter, sem var
lögregluþjónn, þegarþau
kynntust fyrst, og hafði meðal
annars þann starfa að halda upp
lögum og reglu í kringum
Buckinghamhöll. Nú hefur hann
lagt lögregluþjónsbúninginn til
hliðar um stundarsakir og gætir
hús og barns, á meðan Anna
vinnur fyrir fjölskyldunni —
oftast afar fáklædd.
De Gaulle
MADAME DE GAULLE/ét ekki
mikið á sér bera, meðan hers-
höfðinginn hennar var á lífi, en
síðan hannlést9. nóvember árið
1970 hefur hún hreinlega ekki
sést á meðal manna, svo heitið
geti. Þessi sjö ár hefur hún lokað
sig inni með sorg sína og aðeins
sést utan dyra, þegar hún hefur
farið til messu eða til að vitja um
gröf eiginmanns síns. Þess
vegna þóttu það tiðindi hér á
dögunum, þegar sonarsonur
frúarinnar gerði brúðkaup sitt,
að viðstöddum ættingjum og
vinum, þar á meða/ madame de
Gau/le, sem þar með rauf margra
ára einangrun sína. Hér sjáum vð
hana ásamt öðrum ættingjum
eftir vígsluna. Lengst ti/ hægri er
sonur forsetahjónanna fyrrver-
andi, og má með sann; greina
líkingu við föðurinn. Þá kemur
madame de Gaulle, og tengda-
dóttir hennar, brúðurin Annick
Courtey, brúðguminn Philippe
de Gaulle og foretdrar
brúðarinnar.