Vikan - 20.10.1977, Blaðsíða 41
„Vinirmínir,” sagði Edward.og um
leið þögnuðu allir, ,,nú skulum við
athuga hitt morðið. Aftur stóð kona
í vegi fyrir glæpamanninum. Það er
ekki erfitt að ímynda sér ástæðuna
fyrir því.
Rósa gat aldrei látið eigur fólks í
friði. Hve mörg ykkar hafa ekki
einhvern tíma saknað litillar nælu
eða annars skartgrips? En alltaf var
því skilað aftur, þegar Rósa var
búin að fá nóg af því. Hún geymdi
þessa muni á felustað innst í
herberginu í borgarhliðinu. Ef til
v:'l hefur hún verið að koma fyrir
einhverjum nýfengnum grip, þegar
morðinginn kom inn til að fela
búning sinn.
Hún sá hann og lét hann vita af
því. Rósa var ekki sú manngerð,
sem færi til lögreglunnar. Hún vildi
heldur hagnast á vitneskju sinni.
Mútur og hún mundi þegja. En
morðinginn vildi ekki eiga neitt á
hættu. Svo hann Iosaði sig við
Rósu, þegar hún beygði sig niður til
að gleðjast yfir feng sínum. Hún
hafði líka hjólpað honum með því að
henda tómat í Tomaso og kalla
hann morðingja.”
Giuliano var náfölur. „Fyrst þú
veist svona mikið, Edward, segðu
okkur þá, hver morðinginn er?”
Augu Edwards hvörfluðu yfir
mannfjöldann, þangað til þau
staðnæmdust ó ákveðnu andliti.
Það var aðeins einn aðili, sem hafði
hag af dauða Filomenu,” sagði
hann mjög alvörugefinn. „Beppo
Tebaldi.”
Það varð mikið uppþot í garð-
inum. Ungi lögregluþjónninn, sem
staðið hafði við hliðið, reyndi að
brjóta sér leið gegnum mann-
þröngina.
Matteo var staðinn á fætur og
Regína righélt sér í handlegg hans,
til að hindra það að hann bryti sér
leið gegnum þvöguna til fósturföður
síns. Margir urðu til þess að þrífa í
Beppo og ýta honum, móðum og
másandi, gegnum röð mótorhjóla-
klíkunnar og alla leið upp að
pallinum.
Edward rétti upp hendina, til að
fá þögn, og mannfjöldinn stilltist.
Hann horfði niður á Beppo,
sorgmæddur á svip.
„Það var bílaverkstæðið, var það
ekki Beppo? Þú vildir selja, en
Filomena vildi ekki flytja fró
Roccaleone, og af þvi að eignin var
á nafni ykkar beggja, þurftirðu
samþykki hennar.
Svo var það líka þetta verkstæði
fyrir utan Genoa. Ég fór í gær til La
Spezia, og fasteignasalinn þar sagði
mér frá þvi. Það var einmitt það,
sem þú vildir, og ef þú festir það
ekki strax, myndi annar kaupandi
hremma það.”
Beppo svaraði engu.
Framhald í næsta blaði.
Smáauglýsingar
BIAÐSINS
ÞverholtiH sími 2 70 22
Opið til kl.10 í kvöld
42. TBL. VIKAN 41