Vikan - 20.10.1977, Blaðsíða 43
Ljósmyndari Vikunnar átti leiö niður Laugaveginn eitt laugardagskvöld
fyrir skömmu og kom þá auga á nokkur ungmenni, sem sátu fyrir utan
verslunarglugga og horfðu á sjónvarp. Þau höföu komið sér vel fyrir við
borð og höfðu með sér vistir. Þegar hann fór að forvitnast um, hverju
þetta háttalag sætti, komst hann að því, að þetta voru nemendur úr
Menntaskólanum í Kópavogi, og voru þeir í eins konar vísindaleiðangri
þarna. Voru þeir að gera könnun á viðbrögðum fólks, en Vísindafélag
Menntaskólans í Kópavogi hefur einmitt staðið fyrir fleiri slíkum
könnunum. Voru viðbrögð vegfarenda á ýmsa lund, að sögn þeirra.
Sumir spurðu, hvort þeir væru herstöðvarandstæðingar, en aðrir voru
vissir um, að hér væri B.S.R.B. I setuverkfalli. Einhverjum datt meira að
segja í hug, að þetta væri Spilverk þjóðanna. Lögreglan kom sjö sinnum
og spurði, hvort þau vildu ekki færa sig, en flutti þau samt ekki burtu með
valdi, þótt bannað sé með lögum að tefja umferð á gangstéttum
borgarinnar. Þessi vísindalega könnun stóð yfir í rúmlega tvær
klukkustundir, en nöfn þátttakenda eru (talið frá vinstri): Sigríður
Þórisdóttir, Kristinn Arnarson, Andrés Pétursson, Elísabet Arnardóttir og
Hannes Þorsteinsson.
ANNA BRETAPfílNSESSA
hefur nú að ráði lækna sinna
hætt að koma fram opinber/ega,
þangað til hún hefur alið
erfingjann, sem von erá í
nóvembermánuði. Hún tekurnú
Hfinu með skynsemi og ró og
dundar við að sauma og prjóna
og undirbúa komu barnsins,
meðan fjölskylda hennar veltir
vöngum yfirþvi, hvað barnið eigi
að heita. En það er ekki einungis
drottningarfjölskyldan, sem
bíður barnsins með
eftirvæntingu, heldur ganga nú
veðmálin á vix/ meðal
almennings um fæðingardaginn,
kyn og þyngd þessa /angþráða
erfingja þeirra önnu og Marks.
ÍT1E/T
um
FÓLK
42. TBL. VIKAN43