Vikan - 20.10.1977, Blaðsíða 48
AÐ HLAUPA Á EFTIR HESTI
Kæri draumráðandi!
Ég ætla að biðja þig að ráða
draum, sem mig dreymdi í nótt
sem leið. Hann er svona: Mér
fannst ég og X og þrír eða fjórir
aðrir vinir hans vera í útreiðartúr.
Veðrið og umhverfið var svona
sæmilegt. Strákarnir voru allir á
dökkbrúnum hestum, en ég var
með gráhvítan hest og reið
jafnframt í fararbroddi. Öll riðum
við berbakt (bara með beisli). En
það skrítna var, að ég fór aldrei á
bak hestinum, heldur hélt í
tauminn og hljóp samsíða hestin-
um. Hann hljóp svo ofsalega
hratt, að ég næstum því fór í
loftköstum. En ég man, að það
var geysilega erfitt að stöðva
hestinn, vegna þess hve hann var
viljugur. Svo allt í einu vorum við
komin heim til mín. Þegar
strákarnir ætluðu að fara eitthvað
út, vildi ég bara vera heima, svo
ég bað X að vera hjá mér. Hann
sagðist nauðsynlega þurfa að fara
með strákunum, en ég fékk stóran
koss í staðinn. En mér finnst
svolítið skrýtið, hvers vegna hann
var svona lengi að koma sér af
stað, og hann var ennþá hjá mér,
þegar ég vaknaði. Að síðustu
endaði draumurinn með gráti.
Með innilegri þökk fyrir ráðn-
inguna.
,,Ein spennt."
Þessi draumur er þér fyrirboði
mikillar gæfu. Þó er nafn piltsins
ekki gott, boðar venjuiega eitt-
hvert tjón, svo þér er ráðiegast að
fara að öHu með gát og sýna ekki
fljótfærni í neinu, sem þú tekur
þér fyrir hendur. Brúnir hestar í
draumi eru yfir/eitt fyrir góðri
veðráttu, en í þessu tilfelli boða
hestarnir þér farsæld og ávinning.
Lík/egast ferðu í iangferð, sem
verður þér til mikiiiar gleði.
AUGLÝSINGAR i BLAÐI OG
FREKNUR
Kæri draumráðandi!
Ég er með tvo drauma, sem mig
langarað biðja þig að ráða. Annar
Mig
dreymdl
var svona: Ég las auglýsingu í
Dagblaðinu, sem náði yfir 1/4 af
blaðsíðu og var svona orðuð:
Mamma, við viljum tala við þig,
(og svo stóð pínulitlum stöfum
undir) og llmu vinnufélaga, og
undir stóðu nöfnin G. og J. Ég
skildi þetta þannig, að þeir hefðu
verið reknir að heiman, en vildu
hafa samband (ég er hrifin af J.).
Hinn draumurinn var svona: Ég
hitti J. og heilsaði honum með
handabandi, en svo vildi hann ekki
sleppa strax. En þá tók ég eftir
því, að hann var með freknur, en
svo fór ég að skoða hann betur,
og þá sá ég að þetta voru
einhverjar doppur eftir stækkunar-
gler sem sól skein í gegnum.
Þessir draumar voru mjög skýrir.
Þökk fyrir.
Þú færð fréttir, sem valda
breytingu á högum þinum. Þú
auðgast mikið, og heilsa þín
verður góð. Af þessum draumum
er ekki hægt að lesa neitt varðandi
samband þitt og J. nema þá
vináttu.
SAUR í RÚMFÖTUM
Mig dreymdi, að ég væri
sofandi í hjónarúminu með litlu
dóttur mína við hlið mér (maður-
inn minn var til sjós). Ég var með
sængina ofan á mér. Svo vaknaði
ég og tók sængina og lét það snúa
upp, sem sneri niður. Þá var
sængin öll útötuð í mannaskít.
Þetta var þó ekki af okkur, þessi
saur. Fyrir hverju er þetta? Þetta
var síðasta nóttin, sem ég og
dóttir mín sváfum f þessari íbúð,
því við erum að flytja í aðra íbúð.
Með fyrirfram þökk.
Ástrós.
Táknin i þessum draumi eru þér
öii tii góðs. Að dreyma sig í rúmi-
sínu boðar yfir/eitt giftingu, efni-
legan erfingja eða einhverjar
breytingar tii góðs, aiit eftir því,
hvernig högum þínum er háttað.
Þú verður aönjótandi mikiiiar
heimi/ishamingju, en þó megið þið
mæðgur búast við að verða fyrir
einhverjum smávægitegum von-
brigðum. Mannasaurinn táknar
peninga eða annan hagnað — og
boðar líklegast ennfremur manni
þinum aflasæld.
HERBERGI FULLT AF PÖDDUM
Kæri draumráðandi!
Þessi draumur hefur kannski
enga merkingu, en mig langar að
prófa það. Ég var á leið heim í rútu
og sat við hliðina á strák, sem er
góður vinur minn. Draumurinn:
Ég var stödd í stóru herbergi og
var þar enginn nálægt. Allt í einu
var herbergið fullt af köngurlóm
og pöddum. Sú stærsta settist við
hlið mér og ýtti alltaf við mér með
einni löppinni (en svo sagði
vinkona mín mér, að ég hefði sigið
á hina hliðina frá stráknum ) eða
köngurlónni) en svo hætti hún
skyndilega að koma við mig, og
svo fóru allar köngurlærnar og
pöddurnar úr herberginu. Stuttu
seinna var ég vakin, og vorum við
þá komin heim. Þá var strákurinn
voða spotskur á svip og spurði,
hvort ég hefði ekki sofið vel, en ég
sagði: ,,Nei, mig dreymdi köngur-
lær og pöddur." Síðan hefur hann
mjög lítið talað við mig. Ég vonast
eftir birtingu á svari, draumurinn
þarf ekki að birtast.
Með fyrirfram þökk.
Rúna.
Þessi draumur er þér viðvörun-
armerki um, að sá, sem þú e/skar,
er óákveðinn og ístöðulaus og
tætur hrífast af fagurga/a og flátt-
skap. Hinsvegar boðar köngur/óin
þér mikla hamingju.
DRAUMUR UM SYSTKINI
Kæri draumráðandi!
Viltu vera svo vænn að ráða
eftirfarandi draum fyrir mig:
Mér fannst ég vera stödd í húsi.
Þá komu þangað systkini, sem ég
þekki, (maðurinn er dáinn). Ég
varð mjög undrandi, því mér
fannst maðurinn vera kominn til
okkar aftur (eða risinn upp frá
dauðum). Svo varð ég allt í einu
svo innilega ánægð og tók svo
fast utan um hann og þrýsti
honum að mér og kyssti hann.
Mér fannst, að ef ég sleppti
honum, mundi hann ekki koma
aftur. Mér fannst hann brosa svo
blítt til mín , eins og hann væri
mjög ánægður, en hann talaði
aldrei neitt við mig. Svo fannst
mér systir hans sitja og prjóna á
mig peysu. Mér fannst hún svo
óeðlilega fljót að því. Svo var hún
búin að prjóna tvær peysur sama
daginn, á einhverja aðra stelpu
líka, nema hún átti eftir að sauma
aðra peysuna saman. Mér fannst
ég vera að skoða þær, en þau
stóðu I dyrunum og horfðu á mig.
Við það vaknaði ég. Viltu vera svo
vænn að birta fyrir mig ráðningu á
draumnum, en ekki drauminn
sjálfan. Mér er mjög mikið í mun
að vita hvað þetta táknar, vegna
þess að þetta var svo skýr
draumur.
Með fyrirfram þökk.
„Systkini."
Ég tók mér það bessaleyfi að
birta drauminn þinn, þar sem ég
birti ekki aðeins svar við draum-
um, og þar sem ekkert I þessum
draumi vísar á þig, ta/di ég það
óhætt, sem ég vona að sé. —
Draumur þessi er þér tákn um
hamingjuríka framtíð. Þér mun
fylgja gæfa og gengi, og einnig
hlotnast þér einhver ávinningur.
Framiiðni maðurinn táknar, að þér
er óhætt að halda stefnu þinni,
þar sem hu/in öf/ eru þér ti/
aðstoðar. Þó áttu á hættu, að
einhver, sem þú treystir, muni
svíkja þig i máli, sem varðar þig
miklu. Systurinnar bíöur bættur
hagur og mikil hamingja.
48VIKAN 42. TBL.