Vikan - 20.10.1977, Síða 5
Arabar
ndingar Danir
Viðtal við Karl Mooney
byggingaverkfræðing, sem starfar
við vatnsmiðlunar-
framkvæmdir
skammt frá
Tehran í Iran.
Hirðingakonur og börn þeirra við
tja/d sitt. Mennirnir eru úti við
hjarðmennsku. Þetta fóik fer með
griðarstórar hjarðir (kindur og
geitur) um 300 km ieið mifii sumar-
og vetrarhaga. Sumarhagar þeirra
fara undir vatn, þegar stíflan
verður fullgerð.
GAMALDAGS GESTRISNI
Karl Moorey stundaði á sínum
tíma nám í Menntaskólanum að
Laugarvatni, en að því loknu hélt
hann til Skotlands og lagði þar
stund á byggingaverkfræði við
háskólann í Dundee. Þar sem faðir
Karls var Bandaríkjamaður.sagðist
hann hafa mátt velja um, hvort
hann vildi heldur vera bandarískur
eða íslenskur ríkisborgari og valdi
síðari kostinn, en það gekk hálf
erfiðlega að koma því inn í
hausinn á blessuðum Bandaríkja-
mönnunum, að hann vildi frekar
vera íslenskur ríkisborgari. Síðan
spurði ég Karl að því, hvers vegna
hann hefði farið til náms í
Skotlandi.
— Á þessum tíma var ekki hægt
að Ijúka verkfræðinámi hér heima,
og það var svo dýrt að fara til
Bandaríkjanna, að Skotland varð
fyrir valinu, aðallega vegna tungu-
málsins.
— Þú hefur dvalið í Skotlanai
nokkuð lengi, ert kvæntur skoskri
konu og hlýtur því að vera orðinn
nátengdur landi og þjóð. Er mikill
munurá íslendingum og Skotum?
— íslendingar og Skotar eiga að
mínum dómi það sameiginlegt, að
þeir bjuggu til skamms tíma við
mjög slæm skilyrði, bæði efna-
hagslega og frá náttúrunnar
hendi. Skotar bjuggu aðallega við
landbúnað og sjósókn eins og við
Íslendingar og lifðu í skugga
sterkari þjóðar, án þess þó að tapa
þjóðerniskennd sinni. Skotar lifa
ennþá við gamaldags gestrisni
eiris og íslendingar og eru þannig
miklu persónulegri í viðskiptum en
flestir aðrir útlendingar, sem ég
hef kynnst. Þeir hafa alla tíð þurft
að vera ákveðnir eins og við og
hafa aldrei tapað sjónum af
heiðarleikanum fremur en við.
Efnahagslega hafa þeir átt erfiðara
uppdráttar nú í seinni tíð, og þess
vegna búa Skotar við minni
velmegun en islendingar. Sá
munur kemur m. a. fram í
húsakosti, en veðráttan þar er líka
önnur, og þeir hafa ekki þörf fyrir
eins góð hús og við hér. Yfirleitt er
hægt að treysta meira á skipulagið
í Skotlandi, en hlutirnir eru hins
vegar ekki eins sveigjanlegir þar
og hér, fyrir bragðið. Skotar
standa líka mjög fast á sínu.
I GEGNUM FJÖLL OG
FIRNINDI
— Flvað svo með iran. Hvers
.yegna ertu að vinna þar núna?
— Fyrir u. þ. b. ári var mér
boðið starf í iran i sambandi við
gerð stórrar vatnsstíflu! Það á að
42. TBL. VIKAN 5