Vikan


Vikan - 20.10.1977, Qupperneq 9

Vikan - 20.10.1977, Qupperneq 9
®É> — Teldu förin, svo viö vitum, hvað barnið er komið með margar tennur. — Ég veit það eru margir, sem syngja í baði, en ég hef aldrei heyrt um neinn, sem verður að hafa undirleik. — Giftingar til hægri, skilnaðir til vinstri! — Pabbi lét flytja símann, þegar hann fékk reikninginn síðast. I NÆSTU VIKU STEINKA í STUÐI Á LJTOPNU Steinunn Bjarnadóttir hafði lítt haft sig í frammi um margra ára skeið, þegar hún allt í einu stökk fram á sjónarsviðið með Stuðmönnum og söng lagið um hana Stinu stuð og fleira gott. Og úr því hún var komin á bragðið, skellti hún sér i að syngja inn á plötu lagið um hann Bjössa bollu og fleira gott. Steinunn er reyndar búsett í þeirri ágætu borg London, en bregður sér öðru hverju til heimalandsins, og i einni slikri heimsókn gómaði Vikan hana. í næsta blaði fáum við sem sagt Steinku i stuði á útopnu. UNGFRÚ HEIMUR 1907 í litlu fjallaþorpi í Montenegro í Júgóslavíu kúra litil grá steinhús í voldugum fjallasal. Þarna virðist tíminn hafa staðið kyrr síðustu 600 árin. Þetta er þorpið Godinje. Staðurinn er kunnur fvrir tvennt: Ljúffengt vín og Milenu Lekovic. elstu núlifandi fegurðardrottn- inguna og þá fvrstu, sem hlaut titilinn ..Ungfrú heimur”. í næsta blaði fáum við örlítið að kynnast þessari 95 ára gömlu fegurðardrottningu. PEYSUR HANDABÁÐUM Oft fer tíminn fyrir framan sjónvarpið fyrir litið. en þá er upplagt að hafa eitthvað þægilegt á prjónunum. svo að tíminn fari ekki algjörlega til spillis. Í næsta blaði birtum við uppskriftir af ljómandi fallegum peysum. sem er bæði einfalt og fljótlegt að prjóna, og við höfðum engu síður til karlanna en kvennanna, þvi við erum sannfærð um það, að þeir geta ekki síður prjónað, ef þeir bara vilja^ og skorum nú á þá að sprevta sig á myndarlegri og góðri peysu, eins og sjá má í næsta blaði. STJÖRNUSPÁ ÁSTARINNAR Fyrir nokkrum árum birtist í Vikunni stjörnuspá ástarinnar, sem unnin var af kunnum sænskum stjörnuspekingi. Þessi skemmtilega spá virðist nú lesin og nýtt upp til agna, þvi hér linnir ekki fvrirspurnum frá gunnum og jónum um það, hvernig þessi og hin merkin eiga saman. Þessu er svolítið erfitt að sinna, auk þess sem það er heldur einhæft lestrarefni, og því bregðum við á það ráð að birta þessa spá i heild sinni i næsta blaði. VIKAN. Útgefandi: Hilmir hf. Ritstjóri: Kristín Halldórsdóttir. Blaðamenn: Aðalsteinn Ásb. Sigurðsson, Anna Kristine Magnúsdóttir, Sigurjón Jóhannsson. Útlitsteiknari: Þorbergur Kristinsson. Ljósmyndari: Jim Smart. Auglýsingastjóri: Ingvar Sveinsson. Ritstjórn og auglýsingar í Síðumúla 12. Símar 35320—35323. Afgreiðsla og dreifing i Þverholti 11. Simi 36720. Pósthólf 533. Verð í lausasölu kr. 400. Áskriftarverð kr. 1500 pr. mánuð, kr. 4500 fyrir 13 tölublöð ársfjórðungslega, eða kr. 8460 fyrir 26 tölubl. hálfsárslega. Áskriftarverð greiðist fyrirfram. Gjalddagar: Nóvember, febrúar, maí, ágúst. 42. TBL. VIKAN 9

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.