Vikan - 20.10.1977, Side 14
GROUCHO
MARX
- ebkaði peninga,
vindla og konur
Groucho Marx var alltaf með
sömu alpahúfuna hvert sem hann
fór, jafnt utandyra sem I virðu-
/egum samkvæmum. Erin Fleming
var aftur á móti ekki í samkvæmis-
kjólum sínum nema einu sinni.
Eitt af því síðasta, sem haft var eftir
leikaranum fræga Groucho Marx var:
,,Bræður mínir lofuðu að gefa mér
merki að ofan, ef þar væri eitthvað
skemmtilegt að hafa. Þeir hafa aldrei
kallað á mig/'
bólusetja hana með grammófóns-
nál."
Önnur kona Grouchos var
Catherine Gorsey. Þau giftust árið
1945 og áttu saman dótturina
Melindu. Eitt sinn var Melindu
neitað um aðgang að sundlaug
íþróttaklúbbsins í hverfinu, þar
sem þau bjuggu, á þeirri forsendu,
að hún væri gyðingur. Groucho
skrifaði forseta klúbbsins opið
bréf, þar sem hann sagði: ,,0r þvi
dóttir mín er ekki nema hálfur
Groucho Marx, einn hinna frægu
Marx bræðra, var orðinn 86 ára, er
hann lést fyrir skömmu. Hann var
alla sína tíð frægur fyrir tilsvör sín,
og á banasænginni var hann jafn
kaldhæðinn sem fyrr. „Gleymið
ekki að láta umboðsmanninn minn
hafa 10% af öskunni," á hann að
hafa sagt. Honum var annt um
aurana, enda sagði hann: ,,Ég hef
alltaf elskað peninga, vindla og
konur — sérstaklega konur."
Þrátt fyrir ást sína á konum lét
Groucho kaldhæðnina bitna mest
á þeim, bæði í kvikmyndum sínum
og einkalífi. Sú sem hvað mest
varð fyrir barðinu á kaldhæðni
hans var Margareth Dumont, sem
lék aðalhlutverk í mörgum mynda
hans. Við hana sagði hann einu
sinni: ,,Augu yðar Ijóma eins og
rassinn á gömlu buxunum mín-
um."
Groucho Marx kvæntist þrisvar
— og skildi þrisvar. Fyrsta kona
hans var Ruth Johnson, en henni
kvæntist hann árið 1920. Með
henni átti hann soninn Arthur,
sem nú er 57 ára. Um Ruth konu
sína sagði Groucho: ,,Hún er svo
málgefin, að það þyrfti að
Með Mariiyn Monroe I kvikmyndinni ,,Leitin að fjársjóði" frá 1949.
Groucho hafði strax mikia trú á hæfi/eikum Mariiynar.
14VIKAN 42. TBL.