Vikan - 31.08.1978, Blaðsíða 10
GAMALT FÓLK
r
A
FÖRNUM VEGI
SKÚLI ÓLAFSSON,
tæplega áttræður:
„Það má vera
vont veður ..."
Ég reyni að eyða eins miklum
tíma og ég get, í að halda garð-
inum mínum í sæmilegu ástandi,
en þar gripur veðrið nú oft inn í
góðan ásetning. En það má vera
mjög vont veður ef ég sleppi því
að ganga mér til heilsubótar. Og
þar sem ég er einbúi, þá fer
mikill timi í hversdagslega hluti,
eins og að búa til mat, þrífa í
kring um sig og þvo af sér. Og
svo hlusta ég mikið á útvarp, þó
mér finnist nú efnið í útvarpinu
vera svona upp og ofan. En
Hverju hefur sextugur maður að meðaltali
afrekað?
Hann hefur:
Fjarlcegt eina milljón af skegghárum.
Dregið andann 500 milljón sinnum.
Hjartað hefur slegið 2 milljarði slaga.
Unnið fyrir brauði sínu 90 þúsund tíma.
Sofið í samanlagt 18 ár.
Legið veikur 11 ár.
Drukkið 10 þúsund lítra af mjólk.
Borðað: 2 tonn af brauði, 2 tonn af sykri, 7 tonn af
kartöflum og 1 1/2 tonn af kjöti.
Texti:
Anna Kristfne Magnúsdóttir
Hraf nhildur Sveinsdóttir
Jóhanna Þráinsdóttir
Ljósmyndun:
Jim Smart
sjónvarp vil ég ekki sjá takk
fyrir! Mér var boðið upp á
sjónvarp, en það má mikið
ganga á, fyrr en ég þigg það.
KRISTÍN ÁRNADÓTTIR:
„Sakna stund-
um þess besta
úr fortíðinni,. ."
Kristin Ámadóttir er fædd árið
1900, og býr í eigin húsnæði við
Mjölnisholt í Reykjavík. Hún
hefur verið ekkja í 14 ár, á tvö
börn, 11 barnabörn og 13
langömmubörn (það 14. á
leiðinni): „Það er ekki hægt að
segja annað en það sé frjósamt
út af mér,” segir Kristín
hlægjandi. „Ég veit heldur ekki
hvað það er að vera einmana, ég
fæ svo mikið af heimsóknum.
Svo gerir umferðin við Hlemm
það líka að verkum, að ég fæ
mikið af gestum, svo dagurinn
hjá mér er fljótur að líða. Ég er
sem betur fer það heilsuhraust
ennþá, að ég get alveg annast
mig sjálf, og ég vona að ég þurfi
ekki að þiggja neina hjálp fyrr
en ég verð áttræð. Ég kaupi allt
inn sjálf, og fer allra minna
ferða. Að vísu háir það mér á
veturna, hvað ég get lítið verið
úti við vegna kuldans, þar sem
annað lungað í mér lamaðist
eftir uppskurð. Deginum eyði ég
að mestu við að prjóna á barna-
börnin og lesa, og svo að sjálf-
sögðu við að taka til! Á sumrin
dunda ég mér í garðinum við
blómin mín. Ég hef mikið
samband við systkini min, og við
tölum oft saman í síma daglega.
Svo spilum við líka mikið, —
Manna — enda er oft gert grín
að okkur. Mér finnst það létta
skapið mikið, þegar ég fer og
hitti þau, en við hittumst
yfirleitt eitt kvöld i viku og
höfum gert það í u.þ.b. 20 ár.
Mér gengur ágætlega að lifa af
ellilífeyrnum, þótt maður geti að
sjálfsögðu ekki veitt sér neinn
„lúxus.” Ég hef alltaf verið
kröfulítil og unað vel við mitt,
en maður hefur nú gaman af að
gleðja barnabörnin og lang-
ömmubörnin. Mér finnst þetta
ágætt líf, ég sakna aðeins þess
besta úr fortiðinni stöku sinn-
um, en ég vildi þó gjarnan
upplifa að vera ung í dag, því
mér virðast möguleikarnir fyrir
ungt fólk svo miklir. Það er
kannski bara vitleysa í mér?
Skapgerð mín er sem betur fer
þannig, að ég finn aldrei til
leiðinda, en ég vildi þó vera betri
til heilsunnar. Það er lögmál
lífsins að eldast, og ég kann því
bara vel.”
ÞÓRARINN ÁRNASON
„Það þarf að
þjálfa hugann
þannig að ellin
verði ekki
grýla..."
„Aldur kemur yfírleitt sígandi.
Ef ekki koma veikindi til, þá
finnur maður ekki svo mikið
fyrir honum fyrst í stað, en
þegar farið er að gleyma manna-
nöfnum og segja sömu söguna
aftur og aftur — þá er aldurinn
að byrja að segja til sín. Þetta er
auðvitað einstaklingsbundið,
sumir halda minni fram í and-
látið, þó þeir verði nálega
hundrað ára.
Aftur geta menn orðið gamlir,
ef þeir telja sig jafnvel á góðum
aldri gamla. Þá verða þeir
hrumir fyrir aldur fram. Ég hef
alltaf talið mig ungan, vil helst
samlagast ungu fólki. Það er
með aldur eins og sjúkdóma. Ef
maður telur sig ganga með ein-
hvern sérstakan sjúkdóm, þá
getur hugsunin framleitt hann
og skapað bæði andlega og
líkamlega vanlíðan. Allir, sem
gamlir verða, finna til líkam-
legrar hrörnunar, — en ef sálin
er ung, þá er allt í lagi með
árafjöldann., Mér finnst, þrátt
fyrir háan aldur, að tíminn hafi
liðið of fljótt. Þannig býst ég við
að þeim þyki, er hafa haft
gaman af lífinu, þrátt fyrir þótt
10VIKAN 35. TBL.