Vikan


Vikan - 31.08.1978, Blaðsíða 17

Vikan - 31.08.1978, Blaðsíða 17
Framhaldssaga eftir HAMMOND INNES Forsaga: Neil Blair er kominn suöur i ítölsku Alpana, I skiðaskála uppi f fjöllum, en þangað gengur togbraut úr þorpinu. Hann er atvinnulaus blaðamaður, sem hefur fengið vinnu hjá gömlum kunn- ingja úr hernum, Engles að nafni, en sá er orðinn þekktur kvikmyndaleik- stjðri. Neii veit ekki vel 1 hverju starflð er fólgið. Hann á að látast vera að skrifa kvikmyndahandrit, og ætlar sér reyndar að gera það, en það skiptir ekki máli. Aðalstarf hans er að fylgjast með öllu sem gerist i skálanum, og láta Engles vita um það. Hann hefur meðferðis stúlkumynd, og á að svipast um eftir þeirri, sem hún er af. í fylgd með Neil er kvikmyndatökumaður, Joe Wesson, og þeir hafá hitt einn annan gest, Valdini, ásamt Forelli greifafrú, sem Neil þykist viss um að sé stúlkan á myndinni. ]VÆaYNE,” stundi ég. „Reyndi að drepa mig.” Ég lokaði augunum. Ég var svo þreyttur. Eins og í fjarska heyrði ég Joe segja: „Hlýtur að vera með óráð.” ítali sagði eitthvað. Ég gat ekki heyrt, hvað hann var að segja. Ég var ekki með fullri meðvitund. Ég óskaði þess, að þeir færu og létu mig sofa í friði. Þá var mér lyft upp á bakið á einhverjum, og vind- urinn lék um andlit mitt á ný. Þetta og takið í handleggjunum kom mér til fullr- ar meðvitundar. Kinnin á mér kom við þykkt dökkt hár undir húfu. Ég þóttist sjá loðið eyrað á manninum. En augu mín hvíldu á skíðum hans. Hann var ekki með neina stafi, hann hélt undir hnésbæturnar á mér og síðan greip hann undir hendur mínar. Þetta var hálf óhugnanleg ferð. Ég frétti síðar, að þetta var leiðsögumaður frá Tre Croci, sem hafði oft borið slasaða menn á þennan hátt áður. „Ég held ég komist áfram sjálfur,” sagði ég við hann á ítölsku. „Það líður yfir þig,” sagði hann. „Þú ert of slappur.” En ég krafðist þess að fá aö reyna, og loks stansaði hann og lét mig niður. Þeir settu á mig skíðin og síðan héldum við áfram, ég við hliðina á leiðsögumannin- um. Hann hafði rétt fyrir sér. Það var alveg að líða yfir mig, og ég var hræði- lega máttlaus. En úr því ég hafði verið svona rogginn, varð ég að halda áfram. En mér létti, þegar ég sá snævi þakið þak Col da Varda. Það var eins og að koma heim eftir langferð. Leiðsögumaðurinn og Joe hjálpuðu mér upp í herbergið mitt. Þeir færðu mig úr fötunum og byrjuðu að nudda líkama minn, til þess að koma blóðrásinni af stað. Ég kenndi ólýsanlega mikið til í höndunum, þegar HLUTI blóðið fór aftur að renna um þær. Síðan var ég lagður upp í rúm, ásamt nokkrum hitaflöskum, og ég sofnaði þegar. Þegar ég vaknaði, stóð Joe yfir mér með mat á bakka. „Klukkan er rúmlega tíu,” sagði hann. „Þú ert búinn að sofa í næstum fjórar klukkustundir. Þú ættir að fá eitthvað ofan í þig.” Ég settist upp. Mér leið miklu betur; allur stirður, en mér leið ekki svo bölvanlega. Joe gekk að dyrunum. „Komið inn,” sagði hann :„Hann er vakandi.” Það var Mayne, sem kom inn. „Guð minn góður, Blair,” sagði hann. „Það gleður mig að sjá yður.” Hann settist óboðinn til fóta í rúminu. „Ég var að koma frá Carbonin. Ég var fainn aó örvænta, jiegar við vorum að leita í skarðinu. Við sáum engin merki eftir yður. Síðan, þegar við komum aftur, þá sagði Joe Wesson, að þér væruð fund- inn. Mér hefur aldrei létt eins mikið. Ég var orðinn vonlítill. Hvernig líður yður? Hvað kom fyrirr’ Þetta var ótrúlegt. Þetta viðkunnan- lega strákslega bros. Það var svo eðlilegt. En það náði ekki til augnanna. Hin gráu augu hans voru sviplaus. Þau sögðu mér ekkert. Eða var þetta ímyndun? Hann virtist svo ánægður með að sjá mig. Það var á honum að heyra, að hann væri glaður að sjá mig aftur. En ég gat ekki hugsað um annað en sjóvegginn koma þjótandi á móti mér. „Þér ættuð að vita, hvað kom fyrir," sagði ég kuldalega. „Þér sáuð um, að þetta kom fyrir.” Hann hélt áfram, eins og hann hefði ekki skilið mig. „Þegar ég kom fyrir endann á dalnum, sá ég, að ég var staddur á jökulröndinni. Það var Crist- allinojökullinn. Ég vissi þá, að við höfðum beygt of langt til hægri. Ég beið þar I nokkrar mínútur. Þegar þér birtust ekki, fór ég að verða kvíðinn. Ég hélt aftur sömu leið og ég hafði komið. En ég hafði ekki gert ráð fyrir þvi, að snjórinn féll svo ört. Loks sá ég ekki för mín leng- ur. Ég sá hvergi nein spor. Án þeirra gat ég ekkert. Ég mundi ekki eftir landslag- inu, vegna þess hve snjórinn var þéttur. Ég var staddur i ógurlegu völundarhúsi, eintómum litlum dölum. Ég leitaði alls staðar. Ég klifraði upp brekkurnar og kallaði á yður. Að lokum gafst ég upp og hélt niður að Carbonin- gistihúsinu. Guð minn góður,” sagði hann með afsökunarbrosi. „Ég held ég hafi aldrei verið eins hræddur. Sjáið þér, mér fannst ég eiga sökina á þessu. Ég hefði átt að vera nær yður. Hvað kom eiginlega fyrir?” spurði hann. Ég var sem þrumu lostinn vegna 35. TBL.VIKAN 17
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.