Vikan


Vikan - 31.08.1978, Blaðsíða 54

Vikan - 31.08.1978, Blaðsíða 54
PÓSTIRI\N Þegar stíf lan brestur KæraS.Þ. Það er ófrávíkjanleg venja okkar að birta aldrei, né svara neinu, sem kemur nafnlaust. Viljirðu þess vegna fá ábending- ar í sambandi við söguna þína, verður þú að snúa þér til okkar með fullu nafni. Það er heldur ekki hundrað i hættunni, við bít- um ekki, og erum ákaflega hlynnt því að styðja unga rithöf- unda í upphafi ferils síns. Engum til góðs Pósturinn, Vikunni. Mig langar að leggja orð í belg, eins og þið óskið eftir við lesendur í 30. tbl., varðandi bréfaflóðið um ástamál unglinganna, sem til ykkar berst. Mín tillaga er einföld. Hættið að birta þessi heimsku- legu bréf og þá losnar Póst- urinn við að svara, enda oft á tíðum engu að svara. Ég tel að birting á svona bréfum, eins og sýnd eru í um- ræddu blaði, sé engum til gagns, og að segja megi um þau eins og Stefán Jónsson rit- höfundur segir í formála fyrir sögunni „Hjalti litli”, að mörg þau ævintýri og margar þær þýddu sögur, sem börn og unglingar lesa í dag, geri þau aðeins að meiri kjánum. Það hlýtur að vera vanda- laust að velja úr þau bréf, þar sem spurt er af viti um ástar- og kynferðismál ásamt fleiru. Þar getur gott svar ef til vill hjálpað, því sem betur fer eru unglingarnir okkar ekki svo miklir ráðleysingjar upp til hópa, sem lýsir sér í þessum bréfum. Ég held að þau séu ekki síður fær um að ráða fram úr sínum „smáskotum”, en við, þegar við vorum á þeirra aldri, án allrar blaðaþjónustu. Áskrifandi. Pósturinn lítur svo á, að öll bréf, sem honum eru skrifuð, séu skrifuð vegna þarfar bréfrit- ara á aðstoð. Lausnin, sem hér er bent á, er vissulega einföld, en Pósturinn hefur langa reynslu af bréfum sem þessum og telur, að þau bendi eindregið í þá átt, að unglingar nú á dögum séu inn- hverfari og leiti ekki til sinna nánustu með „smávandamár af þessu tagi. Hvernig á ég að f itna? Kæri Póstur! Þetta er í annað skiptið sem ég skrifa þér, og ég vona að þetta bréf lendi ekki I þinni elskulegu vinkonu, Helgu, eins og hitt hefur sjáfsagt gert. — Mig langar til að biðja þig að segja mér hvernig hægt er að fitna, og hvaða matur erfit- andi, en þó hollur. Það var ein- hver sem skrifaði þér einu sinni, og spurði þig ráða til að fitna, en þú snérir bara út úr, og sagðir að hanrdhún mætti bara þakka fyrir að vera ekki of feitur. En ég skil þessa manneskju mjög vel, því það er siður en svo gaman að vera of mjór. Nóg með það. En getur þú nokkuð frætt mig um, hvað það kostar að vera í samvinnuskólanum að Bifröst einn vetur, og hvað það séu miklar líkur á því, að hægt sé að komast I hann, eftir ár. — Veist þú um eitthvert gott ráð til að losna við bólur I andliti og á baki, annað en að þvo sér kvölds og morgna? Að lokum vil ég segja það, að mér finnst mjög heimskulegt af stelpum, t.d. sem verða ólétt- ar, að skrifa til þín Póstur góður, og spyrja þig ráða, þeg- ar maður veit ekki einu sinni hvort þú ert karl eða kona, eða hvaða viðhorf þú hefur til slíkra mála. — Auðvitað á maður að tala við þá nánustu fyrst af öllu. Jœja... jæja. Hvernig fara svo saman Ijónið (kvk.) og krabbinn (kk.) og svo Ijónið (kvk.) og hrúturinn (kk.) Hvernig skaplyndi og mann- gerð lest þú úr skriftinni. En ég veit alveg hvað ég er gömul, svo þú þarft ekki að reyna að finna það út. (Ég skil bara ekki, hvernig þið farið að því að lesa úr skrift fólks?) Þetta ætti að vera nóg handa þér í bili. Vertu blessaður og sæll og ég vonast eftir þvi að bréfið verði birt. Gudda. Ef þú ert bæði að biðja um ráð til að fitna, og ráð til að losna við bólur, fyrir sjálfa þig. ja, þá er úr vöndu að ráða. Þvi óbrigðult ráð til að fitna, er að borða mikinn og feitan mat, og eins að borða eins mikið og þú getur milli mála, svo sem kökur, brauð og sælgæti. En ef þú þarft að losna við bólur, þá er sælgæti algjör bannvara. — Mörg ráð hafa verið við óæskilegum ból- um, eins og að setja andlitið í gufubað tvisvar í viku, þvo það upp úr spritti, þvo það með sápu, en ég held að allir séu sam- mála Póstinum í því, að þetta sé mjög persónubundið. Þess vegna er best fyrir þig, að leita á náðir húðsjúkdómasérfræðings (þú finnur nöfn þeirra á bls. 380—383 í símaskránni) sem gefur þér góð ráð, eftir að hafa athugað hvort þú ert með feita, eðlilega, eða þurra húð. Ómögulegt er að segja til um nákvæmlega hvað það kostar að vera einn vetur á Samvinnuskól- anum að Bifröst, en Pósturinn hafði samband við Hauk Ingi- bergsson skólastjóra og taldi hann að nemendur hefðu þurft að borga um 350.000 krónur fyrir síðasta vetur. En eins og þú veist breytist verðlagið frá ári til Ættartölur Halló Póstur! Þetta er í fyrsta sinn sem ég skrifa þér, og ég vonast eftir svari, því ef ég fæ það ekki hjá þér, þá fæ ég það líklegast hvergi. Nú, þannig er mál með vexti, að mig langar til að láta rekja fyrir mig ætt mína. Getur þú sagt mér hvert ég á að snúa mér, hvað það kostar og hvað það tekur langan tíma? Nægir ekki að ég viti um þrjá ættliði, það er að segja, ömmu, langömmu og langalangömmu? Og svo þetta vanalega. Hvað lest þú úr skriftinni og hvað heldur þú að ég sé gömul? Hvernig eiga saman krabbi (kvk.) og Ijón (kk.)? Hverjir eru happalitir-dagur-tala og mánuður þess sem erfæddur 27.6. Með fyrirfram þökk fyrir birtinguna. Ein, sem er forvitin um fortíðina. Engin skrá er til yfirfólk, semrekur ættir. En á Landsbóka- safninu fékk Pósturinn þær upplýsingar, að námsflokkarnir hefðu verið með kennslu í ættfræði, undir leiðsögn Ólafs Þ. Kristjánssonar. Ef þú hefur samband við hann, getur hann ef til vill bent þér á einhvern, sem vill taka það að sér að rekja ætt þína. Einnig hafði Pósturinn spurnir af tveimur stúlkum, Heru Maríu Karlsdóttur og Helenu Hreiðarsdóttur, Völvu- felli 46, sem hafa eitthvað fengist við að rekja ættir, og getur þú reynt að fá þær til að gera það fyrir þig. Skriftin bendir til þess að þú sért viðkvæm, og fljót að skipta skapi, og líklega ert þú á 16. ári. Milli krabba og ljóns eru miklar ástríður, happatölur þess sem er fæddur 27.6 eru 9 og 7, happadagur mánudagur og happalitur ljósblár. 54VIKAN 35. TBL.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.