Vikan


Vikan - 31.08.1978, Side 55

Vikan - 31.08.1978, Side 55
árs, svo ef þú ert að hugsa um skólavist að ári liðnu, þarft þú að útvega þér nánari upplýsing- ar um þau mál, þegar þar að kemur. Inn i skólann eru teknir u.þ.b. 40 nemendur árlega og er þá undirstöðumenntun látin ráða úrslitum. Ljón og Krabbi fara ágætlega saman, ef þið takið tillit til hvors annars og milli ljóns og hrúts ríkir gagnkvæm virðing — og ást! Þú ert viljasterk og fljót að svara fyrir þig, og skynsemi þín er sterkari en tilfinningarnar. Hvað heitir hesturinn? Kæri Póstur! Best að koma sér strax að efninu. Svo er mál með vexti, að ég og vinkona mín erum að rífast um hvað hesturinn heitir, sem Sigurður Ólafsson söngvari (og hestamaður) situr á, í aug- lýsingunni í sjónvarpinu, þar sem verið er að auglýsa plöt- una hans? Elsku Póstur. Mig vantar svo svar við þessu. Viltu ekki sleppa því í þetta sinn, að gefa Helgu bréfið, því mér liggur meira á svari en henni. Jæja, svo er það þetta venjulega. Hvernig er skriftin og hvað lest þú úr henni? Ein, sem bíður eftir svari. Hesturinn sem Sigurður Ólafsson söngvari situr á í sjón- varpsauglýsingunni, heitir Völs- ungur. Hann er 23. vetra og kominn út af Laugarneskyninu. Pósturinn vonar að þetta svar nægi til að gera út um deilumál ykkar vinkvennanna. Skriftin er snyrtileg og sýnir að þú ert skjót- ráð og athafnasöm. Á ég að halda framhjá? Sæll góði Póstur! Ég hef skrifað þér einu sinni áður. Þá birtir þú bréf mitt, og gafst mér gott ráð. Fór ég eftir því og varð ekkert nema gott af. Þakka þér kærlega fyrir. Nú ætla ég að biðja þig að hjálpa mér aftur. Ég á við dálítið vandamál að stríða. Ég er með strák, sem er með mér í skóla, í sama bekk og ég. Hann er farinn norður á land og verður þar í sumar. Áður en hann fór hétum við hvort öðru að vera trú (halda ekki framhjá). Vinkonur mínar eru báðar með strákum, sem þær halda oft framhjá, og verður oft voða vesen, sem venjulega endar með uppsögn. Ég og strákurinn, sem ég er með, erum alltaf hreinskilin hvort við annað og höldum aldrei framhjá hvort öðru, þó við höfum oft tœkifæri til þess. Við erum búin að vera saman í eittoghálftár. Nú, vinkonur mínar vilja endilega að ég sé með einhverjum strák eða strákum í sumar, meðan stráksi er fyrir norðan, en ég vil ekki hlada framhjá honum, því ég veit að hann heldur ekki framhjá mér, það hef ég margreynt. Ég er svo sár út í stelpurnar. Þær segjast ætla að hætta að vera með mér ef ég sé svona fúl , en ég vil frekar missa þessar vinkonur mínar en strákinn, því ég hef aldrei átt eins góðan og hreinskilinn unnusta, og hreinskUni met ég mikils. Finnst þér að ég eigi að láta undan og halda framhjá, og skrökva svo að honum þegar hann kemur heim í haust? Jæja, elsku góði Póstur, ég ætla að hætta núna. Bið kærlega að heilsa öllum á Vikunni, gangi henni, og þó sérstaklega þér, allt í haginn í framtíðinni Með fyrirfram þökk. Lúsý P.S. Veist þú nokkuð hvar ég get lært íslensku (ritgerð, stafsetningu og málfrœði) eingöngu? Ef svo er, viltu þá vera svo góður að segja mér það um leið og þú svarar bréfinu. Lifðu heill, L Nei, mér finnst alveg eindregið að þú eigir að halda loforð þitt við stráksa, og halda ekki framhjá honum. Auk þess get ég ekki ímyndað mér að þig langi nokkuð til, þess, eftir þessu bréfi þínu að dæma, og þú ert örugglega skynsamari en svo, að þú farir að hlusta á vinkonur þínar og láta þær hafa þau áhrif á þig, að þú gerir eitthvað, sem samviska þin býður þér að gera ekki. Ef þú ert með gagnfræða- próf eða hliðstæða menntun, tel líklegt að þú getir fengið að taka íslensku eina og sér í Mennta- skólanum við Hamrahlíð. Þú ættir að hafa samband við skólann í síma 85140 eða 85155, og þá geturðu fengið allar upplýsingar um þetta. Það er svolítið erfitt fyrir Póstinn að svara þessu, þar sem þú gefur ekki upp hvaða menntun þú ert með. Bankará Keflavíkurflug- velli Kæri Póstur! Nú er illt I efni hjá mér. Mig langar að fá svör við nokkrum spurningum, og var ég búin að velta því mikið fyrir mér hvar éggætifengið þessi svör, en það fór allt I eina flækju í kollinum á mér. Að lokum ákvað ég að leita til þín, og vona ég að þú getir hjálpað mér að greiða úr þessari Jlœkju, Spurningarnar eru þessar: 1. Eru fleiri en einn enskur eða amerískur banki á Keflavíkurflugvelli? 2. Ef svo er, hvað heitaþeir? 3. Ogmig langar líka til að vita hvað bankastjórar eða yfirmenn bankans heita. Ein í vanda. Það eru eingöngu starfræktir íslenskir bankar á Keflavíkur- flugvelli, enginn bandarískur. Sumar í Þórsmörk Hæ sísvarandi Póstur! Þetta er nú ífyrsta skipti, sem ég skrifa þér, og líklega í það síðasta. Ég ætla að spyrja þig að svolitlu: Eru farnar reglubundnar ferðir í Þórsmörk á sumrin? Efsvo er, segðu mér þá allt um það, hvað það kostar og svoleiðis. Bæ, bæ, ég bið að heilsa þér. Inga Hjá ferðafélagi íslands fengum við þær upplýsingar, að ferðir í Þórsmörk eru farnar á hverjum föstudegi, og komið til baka á sunnudegi. Ferðir og gisting (í skála) kostar samtals 9.000 krónur 35. TBL. VIKAN 55

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.