Vikan - 31.08.1978, Blaðsíða 48
henni. „Þú þarft að taka vatn í lófa þinn
og drekka það. Svo geturðu óskað þér.
Þú verður auðvitað að halda óskinni
leyndri, því annars rætist hún ekki, og
þú þarft að fara með töfraþulu —
svona:”
Hann lokaði augunum og þuldi —:
„Hlauptu vindur, hlauptu vatn.
Hlauptu hjörtur, hlauptu hind.
Hlaupið með ósk mina,
svo þeir megi heyra hana.”
Hann opnaði augun og setti upp
fræðimannlegan alvörusvip. „Þetta
hljómar betur á gelísku, eins og amma
mín segir það.”
Isabel hló, og drakk af vatninu, og fór
svo með þuluna Angusi til velþóknunar.
„Kannt þú einhverja galdra?” spurði
hann.
Isabel braut heilann um þetta vanda-
mál.
„Bara einn, sem ég man eftir í svipinn.
Hann er svona—:
„Ikki, Okki, Svarti Bokki,
Allra fiska tal;
Ef þú leitar ástarinnar,
eigna mér þitt val.”
t þvi hún lauk við þuluna heyrði hún
lágt hljóð fyrir aftan sig og leit snöggt
við. Þar stóð Torquil, og brosti hinn ró
legasti til hennar.
Hún blóðroðnaði og flýtti sér á fætur.
„Komdu nú, Angus. Hjálpaðu mér
með matarkörfuna.” Hún flýtti sér að
taka upp matinnjsem hún hafði fengið é
hótelinu, og henni til mikils léttis kom
hitt fólkið frá ströndinni.
Málsverðurinn var fremur þegjanda-
legur. Það virtist enginn kæra sig um að
tala mikið, og Angus var sá eini, sem
skemmti sér konunglega.
Torquil hallaði sér hinn rólegasti upp
að þúfu, en hann horfðt nugsandi á
Floru og Ross með hálfluktum águm.
Clive var einnig óvenju þögull og
djúpt hugsi. Hann borðaði lítið og drakk
enn minna af víninu, sem hann hafði
komið með frá hótelinu, en fyllti þó glös
Floru og Ross að börmum, hvenær sem
þau réttu honum þau. Það var ósjaldan.
Þegar þau voru búin að taka saman
eftir matinn, varð Isabel fegin þeirri upp-
ástungu Angusar að ganga hringinn i
kringum eyjuna, óg fara svo og fóðra
haf-anemónurnar með brauðmolum.
„Kemurðu með, Clive?” spurði hún.
Clive var nýbúinn að kveikja sér í síg
arettu, og sýndi ekki á sér neitt farar-
snið.
„Ég finn ykkur seinna,” sagði hann‘
Litla eyjan var þakin grófu grasi í
skjólinu landmegin, og þar spruttu líka
hávaxin hvít og fjólublá brönugrös hér
og þar. Við lækinn, sem rann úr lind
inni, spruttu brúskar af hávöxnum, gul-
um sverðliljum. Auk þess var þama ara-
grúi af litlum bláum, fjólubláum og gul-
um blómum, sem Isabel bar ekki kennsl
á, og býflugurnar voru önnum kafnar.
„Pabbi segir, að hér séu svo mörg
blóm, vegna þess að hér hefur aldrei
búið fólk, og kindur og kýr hafa aldrei
verið hér á beit,” sagði Angus henni.
„Hún er ennþá alveg eins og Guð skap-
aði hana. Falleg, finnst þér ekki?”
Hin hlið eyjunnar var mun hrikalegri,
og þar hafði útfallið skilið breiða
grunna polla eftir milli steinanna.
Angus tautaði ánægður við sjálfan sig
á meðan hann tróð brauðmolum i ane-
mónurnar, sannfærður um það, að þær
hlytu ekki slíkan veislumat í annað sinn
á ævinni.
Isabel sat og fylgdist með honum, og
reyndi að hugsa ekki of mikið um at-
burði morgunsins.
Hvað, ef Torquil hefði ekki verið
þarna fyrir með bátinn sinn? Ross hefði
áreiðanlegasett þau i land í víkinni, þótt
hann vissi vel, að flóðið var hættuelgt,
og hvað svo? Hugur hennar hörfaði frá
tilhugsuninni um það, sem á eftir hefði
getað orðið.
Hversu langt vildi Flora ganga, til að
losa sig við keppinaut? Hafði hún losað
sig við keppinaut áður... Mary-Cather-
ine?
Þrátt fyrir sólarylinn fór hrollur um
Isabel. Hún kallaði á Angus, og saman
luku þau við hringferðina um eyjuna og
komu aftur þangað, sem þau höfðu skil-
ið við hitt fólkið.
Þar komust þau að því, að vínið hafði
haft sín áhrif á Floru og Ross. Flora var
rjóð og virtist vera heitt, en Ross hafði
greinilega verið að skemmta félögum
sinum með sögum frá þeim tíma, er
hann var í kaupskipaflotanum.
Hann var í miðju kafi að segja mjög
tvíræða skrítlu um „skemmtanirnar” í
Penang-höfn, þegar Isabel og Angus
komu.
„Hættu, Ross,” sagði Clive hvasst,
um leið og Isabel gat heyrt til þeirra.
„Ha ... hvað?” Ross leit í kringum
sig, og Isabel sá, að augu hans voru blóð-
hlaupin og að tóm hálfflaska af viskíi lá
á milli vínflasknanna í grasinu.
„Æ, já ... má ekki móðga dömuna,”
sagði Ross og brosti ógeðslega til hennar.
8
Gæðavara á góðu verði
Girmi rafmagnstækin létta þér heimilisstörfin.
★ Girmi eldhústæki ★ Girmi heimilistæki
★ Girmi snyrtitæki
RAFIÐJAN / RAFTORG
Aðalumboó Kirkjustræti 8, s.: 19294 — 26660
Girmi raftækin fást í öllum helstu raftækjaverslunum landsins.