Vikan


Vikan - 31.08.1978, Side 18

Vikan - 31.08.1978, Side 18
) iSŒNZKAR BÆKUR DANSKAR BÆKUR OGBLÖÐ | NORSKAR BÆKUR | SÆNSKAR BÆKUR ÞÝZKAR BÆKUR OG BLÖÐ ) SPÆNSKAR BÆKUR \ ÍTALSKARBÆKUR FRANSKAR BÆKUR OG BLÖÐ Bókaverzlun SNÆBJARNAR Hafnarstræti áræðni hans. „Þér ætlið þá að segja mér, að þér vitið alls ekki, hvað kom fyrir?” sagði ég reiðilega. „Það veit fjandinn, að þér eruð hugaður, Mayne.” Ég skalf allur. „Hvers vegna fóruð þér beina leið niður þessa brekku. Þér þurftuð að snar- stansa í dalnum, og þér vissuð, að það get ég ekki, ef ég er á mikilli ferð.” „En ég snarstansaði ekki,” sagði hann og leit djarflega framan í mig, kaldur og rólegur. „Ég beygði bara til hægri. Það var auðvelt þarna niðri. Ég veit, að ég var á þó nokkurri ferð, en þetta var alls ekki erfitt. Ég þurfti alls ekki að stansa.” „Þetta er lygi,” sagði ég. gekk i UNRRA og fór til Grikklands. En hvað kemur þetta málinu-------?” „Skiptir ekki máli,” sagði ég. „Mér líður bara ekki sem best.” Ég hallaði mér aftur. „Jæja þá,” sagði hann. „Ég er feginn, að yður líður vel. Ég gerði allt sem í mínu valdi stóð. Mér þykir fyrir þessu. Þetta var allt mér að kenna. Ég veit það. En satt að segja hélt ég, að þér kæmust yfir dalsbotninn. Ég ásaka sjálfan mig fyrir að hafa ekki gert mér grein fyrir því, hve fljótt snjórinn þakti förin.” Hann stóð upp. Ég sagði. „Hafið engar áhyggjur.” Hann starði á mig undrandi. „Ég endurtek það: Ég þurfti ekki að stansa. Yður hafði gengið svo vel, að ég þóttist viss um, að þér hefðuð þetta af.” „Þér vissuð vel, að ég gat það ekki.” Ég var orðinn rólegri. „Þér urðuð að snarstansa, og þér vissuð, að ég hlyti að lenda á kafi í snjónum.” „í guðanna bænum,” sagði hann. „Hvað eruð þér eiginlega að gefa í skyn?” Ég leit á hann. Gat það verið, að ég hefði rangt fyrir mér? En ég sá ljóslega fyrir mér staðinn, þar sem snjórinn hafði þyrlast upp. „Mætti ég spyrja yður um eitt°” „Auðvitað.” „Þér genguð í herinn árið 1942. Hvað skeði eftir að þér komuð til ltalíu?” Hann virtist ekki skilja. „Ég veit ekki hvað þér eruð að meina, Blair,” sagði hann. „Ég gekk í herinn árið 1940, en ekki 1942. Fór til Norður-Afriku árið 1943. Siðan var ég liðþjálfi. Við fórum til Salerno. Ég var tekinn höndum, flúði. GAR hann var farinn rétti Joe mér hrærð egg á bakka. „Hvern and- skotann ertu að reyna að gefa i skyn, Neil?” sagði hann þegar ég var byrjaður á eggjunum. „Hversvegna varstu að að spyrja hann um herinn og það allt?” „Af því að mér var sagt, að hann hefði verið liðhlaupi,” sagði ég með munninn fullan. Það var gott að bragða mat aftur. „Annar er lygari. Ég kemst áreiðanlega að því, hver er lygarinn.” „Ég skil þig ekki,” muldraði hann. „Mayne er ágætis náungi. Hann gat ekki gert meira. Hann hringdi undir eins og hann kom til Carbonin. Ég svaraði í símann. Hann var mjög áhyggjufullur. Hann hlýtur að hafa verið orðinn dauð- þreyttur. En hann fór rakleitt áfram með leitarflokknum. Hann kom ekki fyrr en það var orðið dimmt. Það var ekki honum að kenna, að hann fann þig ekki.” Ég yppti öxlum og hélt áfram að borða. Hann virtist ekki kunna við þögnina. „Mér finnst þú fjandi ósann- EMSKAR úgI AMERISKAR BÆKUR J ÚTVEGUM ALLAR FÁANLEGAR BÆKUR SÍMAR 14281 13133 11936 Bókaverzlun SNÆBJARNAR Hafnarstræti 18VIKAN 35. TBL.

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.