Vikan


Vikan - 13.09.1978, Blaðsíða 8

Vikan - 13.09.1978, Blaðsíða 8
Lesley gefur dóttur sinni pela eftir heimkomuna. Nú langar mig mest af öllu að komast heim. Fólk hefur verið mér einstaklega gott, en ég þrái heimili mitt. Ég er bara ósköp venjulega manneskja, og húsið okkar er ekkert til að státa af, en við erum ánægð með heimili okkar. Ég hlakka til að koma heim með Louise, fara út með hana í vagninum hennar, lifa ?ftur eðlilegu fjöl- skyldulífi. Ég ætla sjálf að sjá um uppeldi Louise. Ég ætla ekki að vinna úti. Ég er ákaflega heimakær og á mér ekki aðrar hugsjónir en að sjá vel um fjölskyldu mína. Margir hafa spurt hvort ég ætli að reyna aftur. Ég vildi gjarnan gera það, ef dr. Steptoe samþykkir það. Mig langar til að eignast fleiri börn. Rétt áður en Louise fæddist, spurði ég John hvort hann sæi eftir þessu. — Auðvitað ekki, sagði hann. Þetta svar hans gladdi mig mjög. Ég vil eindregið ráðleggja öðrum konum, sem ekki geta átt börn af sömu ástæðu og ég, að reyna þessa aðferð. Um þetta eru mjög skiptar skoðanir, sjálfri finnst mér ekkert óeðlilegt við þetta. í minum augum eru allar fæðingar kraftaverk. Dóttir min er þó alveg sérstakt kraftaverk. Stundum finnst mér alveg ótrú- legt, að þetta skyldi henda mig. Ég er ósköp venjuleg manneskja, og langt frá þvi að vera auðug. Ég hef Louise á brjósti núna. Lifið hefur verið mér örlátt. Og ég ætla að sjá til þess að dóttir mín verði hamingjusamur ein- staklingur. JOHN VISSIEKKI AÐFÆD- INGIN VAR í VÆNDUM — Þriðjudagurinn 25. júlí var ósköp venjulegur, segir John Brown. — Ég sat hjá Lesley næstum allan daginn, fór bara í bæinn til að kaupa afmælisgjöf handa henni. Hún átti 31. árs afmæli næsta mánudag. Annars lásum við blöðin, og horfðum á sjónvanjið. Ég fór frá Lesley klukkan tíu um kvöldið. Ég hafði ekki hug- mynd um, að fæðingin stóð fyrir dyrum. Lesley var samt undarlega þögul, en ég hélt að henni hefði verið gefið eitthvað róandi. — Hún hafði fengið að vita hvað stæði til klukkan 6. En hún vildi ekki segja mér frá því, þar sem hún hélt að það mundi valda mér of miklum óþarfa áhyggjum. Þar sem mér fannst hún þögulli en venjulega, hringdi ég á sjúkrahúsið klukkan að verða 11. Þá var mér sagt að koma, þar sem henni virtist brugðið. — Ég heimsótti Lesley, og þegar ég kom út aftur var mér sagt að nú ætti hún að fara á skurðstofuna. 8 VIKAN 37. TBL.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.