Vikan - 13.09.1978, Blaðsíða 11
Frá kristnu siðgæðissjónarmiði eru ekki
sjáanlegir meinbugir á því út af fyrir sig að
koma getnaði í kring utan móðurlífs, ef
makar, sem geta ekki eignast afkvæmi
saman með venjulegum hætti, vilja fá for-
eldraþörf sinni fullnægt á slikan veg. Sú til-
tekna tilraun.sem hér er um að ræða, þar
sem tekist hefur að koma mannsfóstri fram
með þvi að hnika til ásköpuðum skilyrðum,
er mikið afrek og byggist á forsendum,
þekkingarlegum og tæknilegum, sem vafa-
laust má hagnýta til mikils góðs, ef vel er á
haldið. Hitt veit enginn, hve margar slíkar
tilraunir hafa verið gerðar án árangurs.
Slikt eru reyndar engin tíðindi í sjálfu sér,
hver sú tilraun í vísindum, sem heppnast,
kostar jafnan margar misheppnaðar. En í
þessu tilviki snertir tilraunastarfsemin við-
kvæmar, mannlegar tilfinningar og mennsk
örlög, fléttast inn í líf mannlegra einstakl-
inga og þess vegna finnst mönnum meira
að kveða og meira í húfi en þegar gerðar
eru tilraunir með mýs og rottur. Þetta er
mál fyrir sig. Hitt er stærra atriði, að i sam-
bandi við þetta fréttnæma afrek eru menn
minntir á ýmsa aðra möguleika, margs
konar tilraunir og tæknibrögð með lifið,
sem fela í sér mjög alvarlegar spurningar.
Það er nú orðið flestum mönnum ljóst, að
takmörk eru fyrir því, hvað náttúran lætur
bjóða sér. Það eru varla takmörk fyrir því,
hvernig tæknin getur ráðskast með mann-
legt líf. En það eru takmörk fyrir því, hvað
hún má í því efni, ef hún á ekki að valda
meiri bölvun en blessun, þegar lengra er
horft og dýpra. Sá tími er liðinn, þegar unnt
var að fagna hverju vísindaafreki með fyrir-
varalausri bjartsýni. Menn geta myndað
fóstur með tæknilegum tilfæringum.
Menn geta deytt fóstur með auðveldu
móti. í námunda við þetta og í nánum
tengslum við það eru óteljandi möguleikar í
augsýn, sem gera fært að stýra gangi lífsins
langt út fyrir alla eðlilega farvegi. Það
eru fullkomin úrræði fyrir hendi til þess að
meðhöndla manneskjur, frá getnaðar-
stundu til dauðadags, eins og búpening, þar
sem eintökin og afbrigðin hafa engan rétt,
engan tilgang nema þann að samsvara
hugmyndum og kröfum um nytjar þeim til
handa, sem taka sér vald til þess að ákvarða
eigindir þeirra og sköpulag. Lotning fyrir
lífinu er stórt orð og hugsjón, sem flestir
vilja viðurkenna i orði kveðnu. En það er
djúptækt siðgæðislegt hugtak og stefnu-
mið, sem mannkyn verður að virða í raun,
ef það vill allsgáðum huga fóta sig í fluga-
björgum og ekki láta gambanteina sið-
blindrar tækni og mengaðrar hugsunar
seiða sig fram af feigðarbrún.
Sigurbjörn Einarsson.
Biskup íslands,
herra Sigurbjörn Einarsson
Að meðhöndla mann-
eskjur eins pg búpening.
37. TBL.VIKAN 11