Vikan


Vikan - 13.09.1978, Side 9

Vikan - 13.09.1978, Side 9
Louise Joy Brown stuttu eftir fæðinguna. Hún öskraði hástöfum. Ég sá ekki Lesley, og skömmu síðar var farið með dóttur mína á sérstaka deikd, ætlaða börnum, sem fæð- ast fyrir tímann. — Ég gekk út. Það var rigning. Ég stóð þarna lengi og reyndi að róa taugarnar, ég fann ekki einu sinni fyrir þvi að ég varð gegnvotur. Ég gerði mér enga grein fyrir tímanum. Loks tók ég á mig rögg, og hringdi til tengdamóður minnar. Hún varð yfir sig glöð. Við höfðum ákveðið, að ef þetta yrði drengur þá skyldi hann heita Patrick í höf- uðið á dr. Steptoe. Við höfðum ekkert hugsað um stúlkunafn. Ekki svo að skilja, að við hefðum neitt frekar kosið okkur dreng. Aðalatriðið er, að óskabarnið okkar er fætt. Við ákváðum að skíra hana tveimur nöfnum, og báðum dr. Steptoe að velja annað nafnið. Hann stakk upp á Joy, sem þýðir gleði. Ekkert nafn hefði getað verið betur við hæfi. — Ég á engin orð til að lýsa þakklæti minu i garð læknanna tveggja. Ég vildi gjarnan, að við gætum eignast annað barn. Við mundum hvorugt okkar hika við að ganga aftur í gegnum það sama, ef við fá- um tækifæri til þess. — Biðin var erfið. Ég var eins og svefn- gengill, bað þess bara stöðugt að ekkert kæmi fyrir Lesley. Skyndilega kom sjúkra- liði til mín og sagði: — Nú máttu koma og sjá dóttur þina. Ég fór með honum til skurðstofunnar. John Brown kemur til að sækja fæöingar- vottorð Louise. Frú Bramford, sem skráð hefur þúsundir fæðinga, sagði að hendur sinar hefðu skoffið, er hún skráði þennan sögulega atburð, fæðingu fyrsta „glasabamsins". 37. TBL. VIKAN 9

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.