Vikan - 13.09.1978, Page 55
I
Hann fór út I
lönd
Kæri Póstur.
Ég vil biðja þig að leysa smá
vanda. Svo er mál með vexti
að ég er svaka hrifin af einum
strák og hann af mér. En svo
fór hann út í lönd og er ný-
kominn heim, og ég veit ekki
hvort hann er ennþá hrifinn af
mér. Á meðan hann var úti
kynntist ég einum strák, sem
var svaka sætur við mig, og er
ofsalega hrifinn af mér. Mér
finnst hann líka ofsa sætur. Og
nú kæri Póstur get ég ekki gert
upp á milli þeirra. Segðu mér
nú hvað ég á að gera. Með
fyrirfram þökk,
D.Þ.A.
Jæja, þú getur í það minnsta
ekki kvartað yfir þvi að enginn
sé hrifinn af þér! Taktu þann,
sem þú ert hrifnari af, einföld
lausn! Sestu nú niður, skrifaðu
alla kosti þeirra og galla, og
haltu þig svo að þeim, sem þér
finnst þú eiga meira sameigin-
legt með...
Ertu ekki sam-
mála því?
Elsku Póstur!
Þannig er mál með vexti að
ég er með strák, sem er á sjó,
og ég er að vinna úti á landi.
Ég skrifa honum a.m.k. einu
sinni I viku, en fæ aldrei neitt
svar frá honum. Hann hringir
mjög sjaldan (kannski svona
1—2 í mánuði). Stundum segisi
hann ætla að koma, en kemur
svo aldrei. Ég skil ekki af
hverju hann hringir stundum,
ef hann er búinn að missa
áhugann á mér. Svo skil ég
heldur ekki af hverju hann er
að segjast ætla að koma að
heimsækja mig en kemur svo
ekkert. Hann gæti þá alveg
eins sleppt því að segjast ætla
að koma. Ertu ekki sammála
því? Ég tek það fram að ég er
ofsalega hrifin af þessum strák,
og mér líður þess vegna mjög
illa út af þessu. Gerðu það nú
elsku Póstur, ekki segja;
„Hættu bara að hugsa um
hann og finndu þér einhvern
annan. ” Getur þú nokkuð
hjálpað mér?
R.Ó.R.B.
Viltu nú ekki bíða róleg, þar til
þið eruð bæði komin heim, og
athuga þá hvort þetta lagast
ekki? Hann er kannski penna-
latur með afbrigðum, og þú veist
nú sjálf að símtöl út á land geta
verið ansi hreint dýr. Það er vel
líklegt að það sé ekki af áhuga-
leysi, þótt þú heyrir svona sjald-
an frá honum, — hann virðist
alla vega ekki vilja missa þig
alveg. Auðvitað á hann ekki að
vera að gefa þér einhverjar gylli-
vonir, en kannski kemst hann
bara ekki frá störfum sínum til
að heimsækja þig. Bíddu róleg,
þetta hlýtur alit að lagast.
Unglingabólur
Kœri Póstur.
Ég er með unglingabólur,
eins og margir eru með. Ég
ætla að biðja þig að leysa þetta
með einhverjum ráðum. Þetta
erfyrsta bréfið, sem égsendi
þér, Póstur kær, og vonast eftir
birtingu.
Sverrir J.M.
Þú getur keypt þér „bólumorð-
ingjann” í apóteki, en þó vil ég
heldur ráðleggja þér að fara til
húðsjúkdómalæknis, sem getur
bent þér á hvaða áburð þú getur
notað. Þið unga fólkið gerið allt-
of lítið af því að leita til lækna
með vandamál ykkar.
Heimilisfang
pennavina-
klúbbsins
Kæri Póstur!
Viltu vera svo góður að
segja mér heimilisfangið á
pennavinaklúbbnum I Finn-
landi.
KSV
Heimilisfangið er: International
Youth Service, Turku, Finland.
Eitt og annað
Kæri Póstur ...
Svo er mál með vexti að ég
skotin I strák, sem var með
r í bekk og ég held að hann
sé skotinn í mér (ekki viss). Við
erum bæði feimin að tala hvorl
við annað. Ég hef aldrei talað
við hann, sem heitið getur. Ég
vona að heppnin verði með þér
að leysa þetta mál. Hér koma
nokkrar spurningar: 1. Hvað
færðu mörg bréf á viku? 2.
Finnst þér gaman að þessu
starfi. 3. Þarf maður endilega
að birta nafn sitt í Vikunni?
Getur maður ekki bara skrifað
dulnefni?
Bæ,
Ein I vanda stödd.
Farðu nú ekki að verða alvar-
lega skotin fyrr en þú hefur að
minnsta kosti talað við hann!
Hann er kannski alveg hund-
leiðinlegur og óspennandi, þegar
þú ferð að kynnast honum. Þú
kynnist honum kannski betur
þegar skólinn byrjar aftur hjá
ykkur, og þá geturðu bara skrif-
að mér aftur, ef hann skyldi nú
vera alveg þrælskemmtilegur...
Ég er löngu hættur að hafa tölu
á bréfunum, sem mér berast,
það er misjafnlega mikið eftir
árstíðum og öðru, en ætli þau
séu ekki að meðaltali svona um
20—30 á viku. Auðvitað finnst
mér gaman að þessu starfi, ann-
ars væri ég ekki að þessu! Það á
alltaf að úndirrita bréf fullu
nafni, hvort sem það er bréf til
Póstsins eða einhvers annars,
það er bara kurteisi. Að sjálf-
sögðu er hægt að láta dulnefni
fylgja, eins og flestir gera, en
það er algjört skilyrði að Póstur-
inn viti hið rétta nafn bréfritara,
þau eru ófá bréfin, sem hafa lent
í ruslakörfunni, vegna þess að
fullt nafn og heimilisfang vantar
undir.
— Þú ættir kannski að losa
myndavélarnar af honum!
37. TBL.VIKAN 55