Vikan - 19.04.1979, Qupperneq 30
STJÖRNUSPÁ
llrúlurinn 2l.ni;irs 20.;i|*ril
Þú hefur verið óvenju
eirðarlaus upp á sið-
kastið og ekki haft
nokkra ró í þínum
beinum. Þetta lagast
bráðlega og þú öðlast
eftirsótta innri sálarró á
ný.
N.iuliú 2l.tipríl 2l.ni;ii
Það er engin ánægja í
raun og veru af dauðum
hlutum nema þú getir á
einhvern hátt deilt
kjörum með öðrum
lifandi verum, sem
einnig hafa áhuga á
skyldum hugðarefnum.
Tiíhurarnir 22.m;ii 2l.júni
Góðir vinir koma í
heimsókn og þú ættir að
leggja þig fram við að
taka sem best á móti
þeim, miðað við fyrri
atvik eiga þeir svo
sannarlega skilið að þú
sýnir lit.
hr.'hhinn 22. júni 2.V júli
Tilfinningasemi þín í
ákveðnu máli veldur þér
áhyggjum, en þér er
alveg óhætt að gleyma
því. Þetta er ekki annað
en mannlegt á meðan
ekki gengur úr hófi
fram i því efni.
1 jjessari viku verður þú
að taka ákvörðun, sem
er mjög erfið viðfangs.
Þú getur á engan máta
gert þér hugmyndir um
afleiðingarnar, sem
verða jákvæðari en
nokkru sinni.
I.júniú 24. júli 24. íi»ú*'l
Líklega gerir þú þér
alltof háar hugmyndir
um vináttu og ást, sem
gæti valdið þér sárum
vonbrigðum síðar. Láttu
vit og skynsemi ráða
ferðinni í þeim efnum
öðru hverju.
Bæði andlegt og
líkamlegt þrek hefur
tekið stórstígum fram-
förum á síðustu vikum.
Þú hefur samt lagt
alltof hart að þér og er
ráðlegt að hvílast vel
um tíma.
Mikill mannfagnaður er
á næstu grösum og
getur það satt að segja
valdið þér ótrúlegum
áhyggjum. Undir-
búningurinn hefur
staðið svo lengi yfir að
varla er um skemmtun
hjá þér að ræða.
|{ogm;iúiirinn 2-1.núi. 21.úcs.
Láttu ekki sjaldgæft
tækifæri til að sjá þig
um ganga þér úr
greipum. Óvíst er
hvenær þér býðst annað
eins til að láta gamla
ferðadrauma rætast á
undraverðan máta.
Slcini>cilin 22. dcs. 20. j;in.
Hart verður lagt að þér
í kappræðum og þú ert
uppgjöf næst, þegar þér
berst óvæntur liðs-
styrkur. Þú berð hærri
hlut, en sigurinn er ekki
eins sætur og búast
mátti við.
Talnshcrinn 2l.jan. lO.fchr.
Vertu sem mest heima
við á kvöldin, því ef þú
heldur áfram þessu
sama endalausa hring-
sóli verður ekkert
unnið, en hins vegar
gætir þú orðið tauga-
veiklun að bráð.
I iskarnir 20.fchr. 20.mars
Þú hefur haft svolitlar
áhyggjur af heilsu þinni.
í þessari viku færðu að
vita, að þær hafa verið
ástæðulausar með öllu og
vikan verður einstaklega
ánægjuleg.
Hvaðer þetta?
•Suox £ TJOjjjiduips JUÁJ i^ay 'Z ubuibh ’1
30 Vikan 16. tbl.