Vikan - 31.05.1979, Side 22
skyldu þinni vel allan öryggisútbúnað og
útgönguleiðir, ef illa tekst til. Slíkar leiðir
eiga alltaf að vera greiðfærar en ekki
notaðar sem geymslur. Notaðu aldrei lyftu í
brennandi húsi.
Reykskynjarar ættu að vera í öllum
húsum og sömuleiðis handslökkvitæki. Á
þetta að sjálfsögðu við öll hús, en þó sér-
staklega timburhús. Þess má geta að ef
slökkvitæki er í húsi er veittur afsláttur af
brunaiðgjaldi.
Segja má að vatn sé hefðbundin aðferð til
þess að slökkva eld. En í nokkrum tilvikum
má alls ekki slökkva eld með vatni. Það getur
beinlínis verið stórhættulegt ef t.d. um er að
ræða fítubruna, bruna í rafmagnstækjum og
bruna út frá olíukyntum tækjum. Olian flýtur
ofan á vatninu og breiðir úr eldinum. Hægt er
að nota mold eða sand til þess að slökkva smá-
vægilegan eld en aldrei fitubruna.
Smábál er einnig hægt að kæfa með ábreiðu
eða einhverjum fatnaði. Ef kviknað hefur i
fötum einhvers getur t.d. verið gott að vefja
viðkomandi í ábreiðu. Þetta er hins vegar
gagnslaust og getur verið hættulegt ef um
mikiðbáleraðræða.
Fitubruni getur verið stór-
hættulegur
Eins og áður segir er fitubruni, þegar
verið er að djúpsteikja á eldavélinni, ein-
hver algengasti eldsvoðavaldurinn á
heimilum (á þetta sérstaklega við í
Bretlandi). Slíkur eldsvoði er meira ógn-
vekjandi en nokkur getur gert sér í
hugarlund sem ekki hefur lent í slíkum
eldsvoða. Ef þú bregst ranglega við, þegar
kviknar í fitupotti, er allt eins líklegt að þú
hljótir ævilöng örkuml eftir.
Ef þess er nokkur kostur skaltu t>egar í
stað slökkva á eldavélinni og reyna að kæfa
eldinn, t.d. með eldvarnarteppi. Hafðu ætíð
lokið af fitupottinum við höndina til þess
að geta skellt því á hann ef illa fer. Lokið
verður að setja á pottinn á ákveðinn hátt,
þannig að það hallist einar 45°. Eldurinn
leitar eftir láréttum fletinum, upp með rönd-
unum og getur skaðbrennt handleggi þína.
Einnig verður að halda eldvamarteppinu á
sama hátt, eins og myndin sýnir.
Ef fitubruninn er mjög heiftarlegur getur
farið svo að hvorki hlemmurinn eða teppið
dugi. Ef teppið nær að komast í snertingu
við sjálfa fituna verður það líkt og kveikur
og eldurinn færist upp eftir því. Þá er ekki
um annað að ræða en forða sér hið snarasta
og loka dymnum á eftir sér.
Ef hins vegar tekst að kæfa bálið í
fitunni, gætið þess þá að hafa pottinn
byrgðan, annaðhvort með lokinu eða
eldvamarteppinu, þar til fitan hefur kólnað.
Annars er hætta á því að kvikni í henni á
nýjan leik.
Ef kviknar í fötum einhvers látið þá ekki
viðkomandi hlaupa um í skelfingu. Það er
hættulegt, örvar eldinn og veldur því að
hann leitar í andlitið. Reynið því að
slökkva eldinn með því að vefja einhverju
tiltæku fati um viðkomandi og/eða skella
honum fiötum á gólfið. Ef kviknar í þínum
eigin fötum skaltu einnig skella þér i gólfið
og velta þér á gólfteppinu.
Besta skyndimeðferð á brenndu hörundi
er kalt vatn. Varast ber að smyrja bruna-
smyrslum á brennt hörund.
Slökkvitæki
Þau geta verið mjög nytsöm en þó því
aðeins að viðkomandi viti hvernig þeim er
beitt. Ef slökkvitæki er notað af kunnáttu-
leysi getur það gert illt verra og beint
eldinum í ranga átt. Innihaldi slökkvitækis-
ins getur verið eytt á rangan hátt.
Varasamt er að kaupa mjög lítið slökkvi-
tæki. Kaupið ekki minna tæki en sem inni-
heldur 6 kg af þurrdufti. Miðað er við að
eitt slíkt tæki sé fyrir hverja 200 fermetra
af íbúðarhúsnæði. Slík tæki kosta á
markaðinum hér frá rúmlega 17 þúsund kr.
og upp í um 30 þúsund. Kynnið ykkur
leiðarvisinn með tækinu og haldið eld-
varnaræfingu af og til með öllu heimilis-
fólkinu. Geymið slökkvitækið á vel
aðgengilegum stað. Slökkvitæki eru oftast
höfð við útgöngudyr húsa.
Reykskynjarar ættu að vera i öllum
húsum. Til eru tvenns konar tegundir af
reykskynjurum, bæði stakir og einnig sam-
tengdir. Þá eru fleiri en einn skynjari
tengdir saman á þann hátt, að ef reykur
kemur upp í íbúðinni eða húsinu gefa þeir
allir frá sér hljóð samtímis. Stakir skynjarar
kosta tæpar 10 þúsund kr., en þeir sem eru
til þess að tengja saman kosta rúmlega 17
þúsund kr. stykkið.
Þá eru ótalin eldvarnateppin sem ættu
að vera til á hverju heimili. Hér hafa verið
til teppi sem eru 4x4 fet á stærð, ofin úr
glertrefjaefni. Slíkt teppi kostar um 6
þúsund kr., og eftir að það hefur verið
notað til eldvarna má hæglega þvo teppið
og nota það á nýjan leik.
Jafnvel þótt handslökkvitækið sé alls ekki
notað á að láta athuga það að minnsta kosti
einu sinni á ári. Og að sjálfsögðu þarf að
endurhlaða tækið, hversu lítið sem það
hefur verið notað. Hér hafa verið til á
markaðinum vatnsslöngur sem eru hentug-
ar t.d. fyrir einbýlishús og sveitaheimili.
Slöngurnar eru á þar til gerðu hjóli og
hægt að tengja þær við hvaða krana sem
er. Þær má að sjálfsögðu nota til annars en
að slökkva eld, eins og t.d. til garðverka og
bíl- eða gluggaþvotta. Eru slökkviliðsmenn
mjög hlynntir slíkum slöngum þar sem
ganga má út frá því sem vísu að þær séu
jafnan í lagi og vel aðgengilegar ef eldsvoða
ber að höndum. 25 m slanga kostar (með
hjólinu) um 25 þúsund kr.
Eldvarnir eru svo sjálfsögð varúðar-
ráðstöfun að við borð liggur að taka ætti
upp einhvers konar eldvarnafræðslu í
grunnskólum landsins. Því miður er
eldsvoði ekki eitthvað sem aðeins hendir
hjá einhverjum öðrum. Hann getur einnig
hent heima hjá þér sjálfum. Látum það
ekki henda heima hjá okkur að þurfa að
lesa eftirfarandi frétt í blöðunum:
„Húsið brann til kaldra kola og var það,
ásamt öllum innanstokksmunum,
óvátryggt.”
Byggt á grein i breska neytendablaðinu Which? A. Bj.
Birt i samráði við Neytendasamtökin.
Veistu hvers ég sakna mest úr fangelsinu?
Leiðindanna!
22 Vikan 22. tbl.