Vikan - 21.06.1979, Page 25
I
Hann er á nýju, frönsku línunni og
notar eingöngu fersk hráefni í matinn.
Þarna eru hibýli og húsbúnaður með
einfaldasta móti, en öll áhersla lögð á
mat og vin. Meðal frægustu rétta eru
dúfur með truffe sveppasósu og lamba-
hryggur og get ég mælt með hvoru
tveggja.
Annar fremur dýr staður með góðum
mat er DIE BASTEI við Konrad-
Adenauer-Ufer 80. Veitingahúsið var
reist árið 1924 ofan á leifum gamals
turns í borgarmúrnum alveg á bakka
Rinar. Úr risastórum útsýnisgluggum er
frábært útsýni yfir fljót og borg.
Þetta er stórt veitingahús, sem tekur
um 200 manns i sæti og býður þeim
meðal annars upp á grillaðan humar.
laxa-fondue og kálfasteikur. Upplagður
stemmningarstaður, ef seðlaveskið er
hæfilega digurt.
WEINHAUS IM WALFISCH við
Salzgasse 13 er sennilega sögufrægasta
veitingahús Kölnar, starfrækt í sama
húsi allar götur frá 1626 og er því orðið
meira en 350 ára gamalt. Matseðill
dagsins kostar frá 19 og upp í 24,50
mörk. Og þarna gat ég valið milli 250
mismunandi víntegunda.
Gluggarnir á veitingahúsinu Bastei
visa til allra átta.
Eitt eftirsóttasta veitingahúsið er
SIGI’S BISTRO við Kleiner Griechen-
markt 23. Þar verða menn að panta með
nokkrum fyrirvara til að njóta hinnar
frönsku eldamennsku.
Fremur ódýrir staðir með skemmti-
legum innréttingum og ágætum mat eru
ALT KÖLN AM DOM við Trankgasse
7. RÁUCHER KÖBES við Kleine
Budengasse 1 og BALKAN-GRILL við
Friesenstrasse 33.
Á Kölsch-knæpum mæla menn
sér mót
Enginn getur komið til Kölnar án þess
að bragða á hinum sérkennilega bjór
staðarins, Kölsch. Það er best að gera á
einhverri gamalli knæpu, þar sem hægt
er að fá með ..hálfan hana" (brauð með
ostil, „Kölnar-kavíar” (blóðpylsu) eða
„Rievkooche” (kartöflupönnukökur).
Kölnardómkirkjan gnæfir yfir borg
og fljót.
Meðal ágætra knæpa af þvi tagi eru
FROH AM DOM við Am Hof 12,
ðRAUHAUS SION við Unter Taschen
macher 5 og HAUS TÖLLER við
Weyerstrasse 96. Sion er við eina elstu
götu borgarinnar, einkar afslappaður
staður, þar sem háir og lágir mæla sér
mót.
Öll hótelin og og veitingahúsin. sem
hér hefur verið bent á. eru í miðju
Kölnar. i flestum tilvikum aðeins
steinsnar frá hinni frægu dómkirkju.
Jónas Kristjánsson
/ ncBstu Viku: Frankfurt
í* Jf/' Jm Æ æ 7 L V Jp
markmið laganna er að koma í
veg fyrir að ofbeldi sé notað sem
tæki til að ala börn upp.
Mikil umræða spannst um
frumvarp þetta í sænska þinginu
þar sem þingmenn bentu rétti-
lega á hversu erfitt yrði að fram-
fylgja lögunum. Þrátt fyrir það
voru lögin samþykkt af
meirihluta þingsins.
Sem stendur er foreldrum
barna undir 10 ára aldri heimilt
að sinna veikum börnum sínum
i 12-18 daga á ári, eftir því hvað
börnin eru mörg, á fullu kaupi,
en nú á að bæta um betur og
Bömin i Svíþjóö fá akki einu sinni að
kjósalll
dagafjöldi þessi aukinn um 60
daga auk þess sem aldur barn-
anna verður miðaður við 12 ára
i stað 10. Það er félagsmálaráð-
herra Svía sem stendur fyrir
þessu og auk þess bætti hann 50
dögum við fæðingarorlof
kvenna sem vinna erfiðisvinnu.
Einnig voru greiðslur til foreldris
eða foreldra sem hagnýta sér 9
mánaða orlof eftir fæðingu
barns hækkaðar.
Og menntamálaráðherrann lá
ekki heldur á liði sínu. Hann
ákvað að bæta 7,5 milljónum
sænskra króna við upphæð þá
sem ætluð hafði verið til
menningarstarfsemi fyrir börn.
Rennur það fjármagn til barna-
bókasafna, listasafna, þannig að
þau geti sinnt þörfum barna
fyrir þau mál, og svo í það að
koma góðum kvikmyndum,
leikritum og tónlist til blessaðra
barnanna. Einnig verður gerð
bragarbót á opnum svæðum þar
sem börn eiga að geta komið
saman og leikið sér, málað og
yfirleitt gert hvað það sem
sköpunargleði þeirra býður þeim
í það og það skiptið.
Svona gera Svíar á barnaári, og
það verður gaman að sjá hvað
þessir ágætu nágrannar okkar
gera þegar ár dýranna verður
haldið hátíðlegt um víða veröld.
Ætli þeir setji þá ekki lítinn
dýragarð inn á hvert heimili?
25. tbl. Vikan 25