Vikan - 02.08.1979, Síða 43
hefur gleymst að gera ráð fyrir
umtalsverðum bókakosti, það er
helst að þar rúmist eitthvað af
Ef þetta er leiðinleg veisla þá látum við
hana bara vera það.
postulíns- og glervörum. Verð
fyrir þrefalda slíka samstæðu er
á bilinu 300—800 þúsund
krónur, þannig að þarna er varla
verið að framleiða fyrir náms-
menn, unglinga og fólk í lægri
launaþrepum. Þar við bætist að
valkostir í niðurröðun eru litlir
og ef húsrými er lítið, þörf er á
bókahillum, vélritunar- eða
skrifborði fer málið að vandast.
Hjá fyrirtækinu Skúlason og
Jónsson hf., Bíldshöfða 18, má
fá nokkuð hentugt efni í sam-
stæðu, sem viðkomandi vinnur
svo að mestu leyti sjálfur.
Aðeins þarf örlitla þolinmæði og
næstum enga handlagni til að
leysa vandann á sérstaklega
ódýran máta. Þarna er um að
ræða kantlímdar spónaplötur í
stöðluðum stærðum, sem aðeins
þarf að fara örlítið yfir með
sandpappír, mála eða bæsa og
raða síðan saman með sérstök-
um járnfestingum.
Fyrst er að ákveða hvað á að
vera í hillusamstæðunni, síðan
er hún teiknuð upp og tekið mið
af hinum stöðluðu stærðum. Af-
greiðslufrestur á plötunum er
svo einn til tveir dagar.
Þegar Neytendasíðan reyndi
þetta gekk allt eins og best
verður á kosið. Ákveðið var að
mála hillurnar með grunnmáln-
ingu og lakka síðan yfir með
dökku lakki. Það þarf nokkurt
rými til að mála hillurnar og í
þetta skiptið voru svalirnar
hentugasti staðurinn. Gætið
þess að láta hverja umferð þorna
vel áður en næsta er borin á og
einnig er betra að tveir hjálpist
að við að festa einingarnar
saman og reisa síðan allt við í
lokin. Þetta er auðveld og ódýr
lausn og þegar tískan tekur
næsta stökk, eða skipt er um
húsnæði, má taka allt i sundur
og nota á ýmsa aðra vegu. baj.
Hrukkurnar burt með
Jovan Wrinkles Away1
,T M
Nú er hægt að slétta andlitshrukkur á
nokkrum mínútum, hrukkur, sem tók
mörg ár að safna.
Smádropi af Jovan Wrinkles Away™
virkar um leið. Hjálpar til að slétta
hrukkur, djúpar sem grunnar, og
tekur bauga undan augum svo fljótt
að þú sérð næstum hrukkurnar
hverfa.
Þetta nýja fegurðarefni hjálpar þér
að halda andlitinu hrukkulausu, jafnt
að degi sem að kvöldi.
Þúverður undrandi yfir breytingunni.
— Littu inn og fáðu að reyna í næstu
snyrtivörubúð.
Haltu æskuljómanum við með Jovan
Wrinkles Away™.
JOPCO HF.
LAUGAVEGI 22 - SÍMI 19130
(Actual Unretouched Photographs)
3l.tbl. Vikan 43