Vikan - 21.02.1980, Blaðsíða 22
A HOIVTDA
Æcord
Helstu kostir 1980
Hljóðlátur — lipur — öntggur
Jafnvel aðdáendur BMW og Mercedes Benz reka upp
stór augu þegar þeir f inna hve Honda Accord er hljóð-
látur, lipur, þýður og öruggur i akstri. Ströngustu
gæðakröfur hvers ökumanns eru uppfylltar.
Honda býður einnig upp á sérhannaða sjálfskiptingu
(Hondamatic) með overdrive sem jafnast fyllilega á
við 5 gira beinskiptan kassa.
Bifreiðin er með öllum fullkomnasta öryggisbúnaði
sem völ er á. Sérhönnuð framsæti. — Sætaáklæði og
klæðning í stíl.
ENN ER HONDA
FETI FRAMAR
Aætlað verð 3. janúar 1980:
3ja dyra um kr. 5,2 millj.
4ra dyra um kr. 5.4 millj.
Þeir sem eiga pantaða bila, vinsamlegast hafið sam-
band við umboðið sem fyrst.
Æcord
HONDA
HONDA — umboðiö á Islandi
Suðuriandsbraut 20 sími 38772
Framhaldssaga
W
I
mánaskini
væri gerð hér í Paris. Allt annað yrði þér
of erfitt eins og sakir standa. Hefur þú
einhverja peninga?”
„Ó. já. Pabbi var með ávísana-
reikning en hann lét mig undirrita alla
ferðatékkana, svo hann losnaði við —
svo hann —”
„Ég skil. Hvað með önnur fjármál
hans? Hafði hann lögfræðing í
Englandi?”
„Bankinn hans sér um allt slíkt. Hann
— gekk frá öllu slíku seinast þegar hann
var á ferðinni, því ég var farin að vera
miklu meira I Englandi heldur en i
Afríku. Ég var á seinasta ári í skólanum
þegar hann kom siðast.”
„Og hvað ertu gömul nuna, væna
mín?”
„Tuttugu.”
Kökkurinn I hálsinum var alveg að
kæfa mig og ég gat ekki sagt meira.
Pabbi hafði verið búinn að segja mér
hvað hann ætlaði að gera þegar ég yrði
tuttugu og eins árs í júni. Ég hafði
millilent nokkrum sinnum I París og
Róm, en þar fyrir utan hafði ég aldrei
komið til Evrópu. Og þess vegna hafði
hann ráðgert að fara með mig til
Flórens, Feneyja og Grikklands...
Augun voru aftur full af tárum og
herra Robertson sagði eins glaðlega og
hann gat: „Ef þú lætur mig hafa
heimilisfang frænda þin skal ég senda
honum skeyti.”
Þegar ég spurði um jarðarförina,
sagði hann: „Hún verður seinnipartinn
á morgun. Krufningin leiddi i ljós að það
var hjartað sem gaf sig.
Blóðþrýstingurinn hafði hækkað — þú
minntist á að hann hefði verið
flughræddur. Ég skal sjá um þetta allt.
Segðu mér nú eitthvað meira um
þennan frænda þinn. Ætlaðir þú að
heimsækja hann? Hvað hefurðu hugsað
þér aðgera núna?”
„Ég vinn hjá skrifstofufyrirtæki í
London og þaðer búist við mér þar strax
eftir páska. En pabbi pantaði bílaleigubíl
sem átti að vera tilbúinn á Heathrow-
flugvelli, þegar við kæmum þangað,
þrátt fyrir að ég áliti að hann ætti ekki
að keyra sjálfur. . Ég starði eins og
hálf utangátta á herra Robertson. „Og
svo biður hann eftir okkur. Ó!”
„Láttu mig hafa nafnið á bílaleigunni
svo ég geti afpantað bílinn. Hafðu engar
áhyggjur. Á þessi frændi þinn börn?”
„Eina dóttur, Vivien. Hún er eldri en
ég”
Ég hnyklaði brýrnar og reyndi að
hugsa skýrt. Vivien. Það var eitthvað í
sambandi við hana ... Hún var „undar-
leg”. Ég hafði heyrt mömmu segja að
22 Vlkan 8. tbl.