Vikan - 21.02.1980, Qupperneq 37
Erlent:
Margaret Thatcher: Bauð
skátunum í te.
MAGGA OG
UPPVASKIÐ
— Jafnvel forsætisráðher;a
verður að vita eitthvað um
heimilishald, er haft eftir
Margaret Thatcher.
Og maðurinn hennar
fullyrðir að hún sé alveg
ágætis húsmóðir þrátt fyrir
stjórnmálastússið. Svo að það
hefur ekki bara verið út í
bláinn að járnfrúin fékk þá frá-
bæru hugmynd að vinna inn fé
til góðgerða með uppvaski.
Hún fékk 60.000 breska skáta
til að vinna í heilan dag við
uppvask á hótelum — kaup-
laust. Launin runnu öll til
aðstoðar við nýjar land-
búnaðaráætlanir í Nepal. í
þakklætisskyni bauð Margaret
Thatcher hópi af skátum heim
til sín í te þar sem hún afhenti
þeim heiðursbikar fyrir vikið.
Skop
Ég bað ekki um spaghetti-
samloku!
Þaö er ágætt að vera giftur — alla
vega betra en aö vera alltaf aö röfla
við ókunnuga.
BARNARD
SYNGUR
VIÐ
PIZZU
BAKSTUR
Þeir 120 gestir sem boðið var til
opnunar nýs, ítalsks matsölustaðar
með sérrétti fengu svo sannarlega
heilmikið til að undrast yfir. Þvi að
Barnard ásamt söngvaranum John
Paul Young við opnun hins nýja
matsölustaöar.
eigandinn, Christian Barnard, sem
hingað til hefur verið þekktastur
sem hjartasérfræðingur og kvenna-
maður bauð ekki bara upp á spag-
hetti og parmaskinku. Heiðurs-
gestur kvöldsins var söngvarinn
John Paul Young, sem þekktur er
fyrir lög eins og Love is in the air
og Standing in the rain og tók
hann lagið fyrir prófessorinn, sem
nú virðist hafa snúið sér að pizzu-
bakstri í stað hjartauppskurða.
Bamard stóðst ekki mátið, heldur
þusti upp á sviðið til söngvarans og
tók með honum lagið. Þeir sungu
saman gamla, skoska þjóðlagið
Ol’lang Syne við mikla hrifningu
gestanna og fádæma undirtektir.
Því það er ekki á hverjum degi sem
fólk er kynnt fyrir syngjandi og
bakandi hjartasérfræðingi.
Á ströndinni
Það þarf góð
bein . . .
Hið Ijúfa líf hefur augljós áhrif í
vexti Christinu Onassis og hvergi
kemur sá vöxtur eins berlega í Ijós og
á baðströndinni. Það þarf góð bein
til þess að þola góða daga og
samkvæmt þessari mynd af
Christinu, sem tekin er á strönd
eyjunnar Skorpios, er ekki vanþörf á
þvi aðbeinin séu sterk.
við kynnum
einn nýjan
frá Póllandi
PDLDNEZ
POLDNEZ
er óvenju g/æsilegur bíll á ótrúlega
góðu verði eða aðeins frá kr.
komið á 4.200.000.
BÍLASÝNINGUNA UM NÆSTU HELGI
FÍAT EINKAUMBOÐ Á ÍSLANDI
DAVÍÐ SIGURÐSSON hf
SfÐUMÚLA 35. SfMI 85855.
8. tbl. Vikan 37