Vikan - 21.02.1980, Side 38
Vikan og Neytendasamtökin
Hristan lcngst til vinstri er úr plasti. Nokkur börn voru aö leik og spiluöu á hrist-
una, en þá sprakk hún og út ultu blýhögl! Græni naghringurinn er úr mjúku plasti,
en inni i hringnum er hringla úr haröplasti. Sex mánaöa drengur hafði hana milli
handanna, henti henni í gólfið og hún brotnaði — út ultu plastkúlur á stærð við
hrísgrjón. Leikföng ættu alls ekki að vera úr harðplasti. Rauða hringlan er úr
mjúku plasti en rifnaði á samskeytum, þegar lítil stúlka hafði hana i höndunum, og
yfir hana hrundu „plasthrísgrjón”. Litli trompetinn er varhugaverður. Munnstykk-
ið er illa fest og barnið nagar það strax af. Hringlan lengst til hægri er eina leik-
fangið á þessari mynd sem ekki er gert úr svo smáum hlutum að hætta stafi af.
Bæði börn og fullorðnir eru hrifin af tréleikföngum. Yfirleitt eru
það æskileg leikföng, sterk og einföld. En eins og sjá má á
myndinni eru kubbarnir og litlu lestarfarþegarnir það smáir hlutir
að börn gætu hæglega gleypt þá. Ef trélcikföng eru límd saman er
ástæða til að forðast þau. Þegar barnið sýgur og nagar leikfangið
getur límið leyst upp og hluturinn fallið sundur.
Gefið bömum
EKKIteíLng
Leikföng, sem sett eru saman úr ótal
smáhlutum, eru stórhœttuleg. Börnin
geta plokkað sundur leikföngin og
troðið smáhlutum í öndunarfæri og
eyru. í hringlum og brúðum eru
stundum litlar plastkúlur. Hættu-
legustu leikföngin eru þó þau sem
innihalda smáhluti sem ekl i sjást.
Það er vissulega umhugsunarefni hvað
skal velja þegar við ætlum að kaupa
leikföng fyrir börn — ekki sist þau
yngstu. í mesta sakleysi gefum við
barninu i hönd hringlu, sem það
skemmtir sér við að hrista, en ef hún
brotnar við ónijúka meðferð hrynja út
plastkúlur eða annað álíka og þá er alltaf
hætta á að barnið troði þessu i vitin á
sér.
Börn undir þriggja ára aldri troða
næstum öllu i munninn. Þau vilja prófa,
bragða, sjúga og kynnast umhverfi sinu
á þennan hátt. Við verðum því að vera
sérstaklega á varðbergi gagnvart þessum
aldurshópi. Það er allmikið um það að
aka verður börnum á slysavarðstofu
eftir að þau hafa gleypt smáhluti eða
troðið þeim í vitin á sér.
Leikföng, sem við ætlum börnum
yngri en þriggja ára, ættu ekki að vera
samsett úr ótal smáhlutum eða úr
þannig efni að þau brotni auðveldlega.
Það er erfitt að geta sér til um hvaða
tróð er t.d. notað i dúkkur. Sumar eru
fylltar með litlum plastkúlum sem geta
lent ofan I barnið — jafnvel ofan i
lungun. Þvi miður er það svo að
merking leikfanga er ófullkomin og
engar varúðarmerkingar á íslensku. Það
er ekki óaigengt að lesa enska eða þýska
varnartexta, en ekki hægt að ætlast til
að ölluni sé tamt að lesa erlend
tungumál.
Þvi miður er leikfangaúrvalið i
islenskum verslunum heldur tilviljana
kennt. Vissulega eru þó til verslanir sem
leggja alúð við vöruval og að leiðbeina
kaupendum varðandi heppileg leikföng
fyrir hvern aldurshóp barna. Vert er að
aðgæta vel hvern þann hlut sem barni
er gefinn. Leikföng, sem brotna og losna
sundur, eru stórhættuleg og ábyrgðar-
hluti að láta i hendur smábarna eitthvert
drasl.
Við skulum lita á myndirnar sem hér
eru á síðunum. Á þeim getur að lita
ýmislegt sem varhugavert er að fá óvita í
hendur.
Birt í samráði virt Neytendasamtökin. Þtð.: S.H. úr
Rád och Rön.
38 Víkan 8. tbl