Vikan - 21.02.1980, Side 41
Útvarp
Akureyri
getur sent út f stereo!
Fjölmiðlun
Kvikmynda- og hljóðupptökumenn
sjónvarpsins á Akureyri að störfum
fyrir framan útvarpshúsið. T.v.
Sigurður Hlöðversson hljóðupptöku-
maður og sinkstjóri og t.h. Steindór
G. Steindórsson myndatökumaður.
Þeir félagar vinna eingöngu með
tæki sem þeir eiga sjálfir og dags
daglega vinnur Steindór við járn-
smiðar og Sigurður hjá Rafveitu
Akureyrar.
Heiðdísar Norðfjörð. Einnig mun Einar
skáld Kristjánsson frá Hermundarfelli
vera með hálfsmánaðarlega þætti í
smíðum óg svo mun eitt reka annað.
Björgvin Júníusson, upptökumaður
útvarpsins á Akureyri. er enginn
nýgræðingur i upptökum. Fyrir utan að
hafa verið upptökumaður útvarpsins
fyrir norðan i heil 10 ár hefur hann um
langt skeið safnað gömlum segulbands-
upptökum og er sú elsta frá 1922. Þessar
gömlu upptökur voru teknar upp á
svokallaða Edison-hólka sem senda
þurfti til Kaupmannahafnar þar sem
hljóðin voru sett yfir á band. Að
aðalstarfi er Björgvin framkvæmdastjóri
Borgarbíós á Akureyri en þar var hann
vanur að taka upp útvarpsefni við bágar
aðstæður áður en nýja útvarpshúsið
kom til skjalanna. E.J.
Björgvin Júníusson, upptökumaður
útvarpsins á Akureyri. Honum er
ýmislegt til lista lagt. Hann var fyrsti
Akureyringurinn sem sveif i
svifflugu, hann vann fyrsta
skiðamótið i svigi, sem haldið var
1938, hann var fyrsti Íslendingurinn
sem sendur var á skiða-
heimsmeistaramótið í St. Moritz,
þangað fór hann ásamt Magnúsi
Brynjólfssyni og stóðu þeir félagar
sig vel, urðu nr. 47 og 48 af 150
keppendum.
Eins og flestum mun kunnugt þá
hefur Ríkisútvarpið fest kaup á húseign
á Akureyri undir starfsemi sína þar í bæ.
Húsið lætur ekki mikið yfir sér og er
langt frá því að vera glæsileg bygging —
en á því sannast hið fornkveðna að ekki
skal dæma eftir útliti einu saman — því í
þessu húsi er eina aðstaðan utan Reykja-
víkur til beinna útsendinga.
Að sögn Jónatans Klausen hjá Pósti
og síma á Akureyri þá er örbylgjusendir-
inn (FM-sendir) á Vaðlaheiði þannig
útbúinn að hægt er að senda út í stereo.
Þó er það ekki hægt beint úr útvarps-
húsinu því enn er aðeins ein leiðsla frá
símstöðinni í húsið, þurfa að vera tvær
fyrir stereo, en ef stereo-plata yrði spiluð í
símstöðinni sjálfri þá myndi hún hljóma
þannig um Akureyri og næsta nágrenni.
Ekki munu þó slikar sendingar vera i
bígerð í náinni framtið, FM-sendar
draga tiltölulega skammt þannig að það
yrðu aðeins Akureyringar og næstu
nágrannar þeirra sem njóta myndu
munaðarins en aðrir Islendingar fara á
mis við hann. Eitt skal yfir alla ganga —
á meðan fólk í Loðmundarfirði fær ekki
að hlusta á útvarpið sitt í stereo þá fær
þaðenginn.
Á fyrstu hæð útvarpshússins mun
sjónvarpinu vera ætluð aðstaða til
upptöku fréttaefnis og annars efnis auk
þess sem tónlist mun verða tekin þar
upp. Á efri hæðinni verður útvarpið
aftur á móti með aðsetur sitt og verður
stefnt að því að hægt verði að fullvinna
útvarpsefni þar. Morgunpóstsmenn riðu
á vaðið með beinum útsendingum frá
Akureyri og síðan hefur ýmislegt efni
verið flutt. Nú mun í bígerð upptaka
sérstaks barnaefnis frá Akureyri í umsjá
8. tbl. Vikan 41